Fálkinn - 17.10.1962, Blaðsíða 31
fyrir mér í hrifningu póstbátinn, sem
var rétt að leggja af stað til Tortola.
Þetta var einkar virðulegur farkostur
með fræga fortíð. Hann heitir „Vigi-
land“, var byggður árið 1802 sem danskt
sjóræningjaskip, sigraði spánskan fall-
byssubát í návígi, sökk niður á sjávar-
botni í hvirfilbyl árið 1916, náðist upp
aftur og siglir nú milli Meyjareyja með
póst og farþega.
Einkennilegur farþegi hafði verið
settur í land af bátnum. Það var smá-
vaxinn náungi og hálfber, með villi-
dýrsaugu, bolurinn ber og loðinn og í
hörundið var flúruð fallöxi og haus-
kúpa er gægðist rétt upp fyrir buxna-
strenginn. Hann var með ferðatuðru
við hlið sér, festi um hálsinn úr tígris-
tönnum og gullhringi í eyrum. Það var
einhver hinn villimannlegasti hvítra
manna sem ég hef augum litið, og ég
varð forvitinn. Um kvöldið heyrði ég
sagt frá honum í Rasmussens barnum:
Þetta var Pierre, hann hafði fyrrum
verið fangi á Djöflaey, en var nú talinn
lifa af því að „gæta gúmmíþjófa“ í
frönsku Cayenne.......
Gúmmísafnararnir fara inn í frum-
skógana, og þegar þeir hafa fundið sér
hæfilegt tré, reisa þeir byssu sína upp
við stofninn, binda á sig einskonar
stauraskó og klifra upp í himingnæfandi
tréð í þeim tilgangi að tappa hinn dýr-
mæta gúmvökva úr stofni þess. Þá kem-
ur skálkurinn í skáldsögunni fram á
sjónarsviðið, og í þessu tilfelli er það
Pierre. Hann læðist fram skógargrunn-
inn, miðar á gúmþjófinn hátt uppi í
laufkrónunni og skýtur hann. Síðan læt-
ur hann fórnarlamb sitt hanga þar sem
það er komið, á stauraskónum með
höfuðið niður á við.
Af þessu má skilja að Pierre var ekki
allskostar viðfeldinn né geðug persóna,
en hann talaði Ijómandi fellega frönsku.
Þegar við hittumst, seinna um kvöldið,
bar hann fram uppástungu við mig.
Hann átti kjalsprungna skútu í höfninni
á Barlsey, er fyrrum var í eigu Svía.
Hvort mig langaði til að koma með hon-
um þangað? Dehanen vinur hans ætlaði
að sækja hann daginn eftir á smáflug-
vél, sem hann átti. Dehaenen! Síðasti
víkingurinn, — sjóræninginn — á Kara-
bíska hafinu. Þjóðsagnapersóna.
Auðvitað þökkuðum við Rune Hass-
ner fyrir boðið.
Kven|»ióðiii
Framhald af bls. 27.
Karamellur og Alaska pie
við 250° í 20—25 mínútur. Takið burt
pappír og fyllingu síðustu 5 mínúturn-
ar. Kælt.
Hitið ofninn vel 275°, áður en ávextir
og ís eru sett í skelina. Stífþeytið eggja-
hvíturnar, hrærið 2 msk. af sykri sam-
an við, þeytið áfram. Blandið nú öllum
sykrinum, nema 1 msk., varlega saman
við.
Setjið % af ávöxtunum í skelina, þar
ofan á ísinn (ágætt að kaupa tilbúinn),
þar næst afganginn af ávöxtunum.
Breiðið marengsinn yfir. Gætið þess að
hann hylji alveg. Stráið 1 msk. af sykri
yfir.
Sett inn í sjóðandi ofninn, bakað í
2—3 mínútur, þar til kominn er dálítill
litur á eggjahvítuna.
Borið fram strax, svo að ísinn bráðni
ekki.
Kæri Astró.
Ég er fædd kl. 4 að nóttu
fyrir vestan (fæðingardegi,
ári og stað sleppt samkvæmt
ósk). Ég var með strák í hitti-
fyrra, en við erum hætt að
vera saman, en ég er hrifin
af honum ennþá og virðist
mér hann einnig vera hrifinn
,af mér ennþá. Við hættum að
vera saman vegna sérstakrar
ástæðu. Heldur þú að leiðir
okkar eigi eftir að liggja
saman að nýju. Hvað um
ástamálin? Giftist ég seint
eða snemma. Verður hjóna-
bandið hamingjusamt. Hvað
um heilsufarið. Eignast ég
börn. Ég hef mikinn áhuga á
að sjá mig um í heiminum.
Ég hef mestan áhuga á verzl-
unar- og skrifstofustörfum.
Heldur þú að skrifstofustarf
henti mér.
Með fyrirfram þakklæti.
Sóley.
Svar til Sóleyjar:
Þú fæddist þegar sól var
23°26’ í merki Sporðdrekans
í öðru húsi fjármálanna.
Máninn var í 5°31’ í merki
Hrútsins í sjötta húsi vinn-
unnar og heilsufarsins og hið
rísandi merki var 9° Vog. Ef
við tökum fjármálin fyrst til
umræðu þá verður fyrst til
athugunar staða Venusar þar
í ásamt sólinni. Bæði þessi
himintungl eru heppileg
þarna og benda til þess að þig
skorti aldrei fé. Satúrn í tí-
unda húsi er einnig í hag-
stæðri afstöðu við Sólina og
það bendir til að fé sem þér
áskotnast komi fyrir reglu-
bundna vinnu, gæti verið að
einhverju leyti í þágu hins
opinbera og að það fé sem þú
aflar þér safnist í sjóði frem-
ur en að því verði eytt. Ekki
þannig að skilja að þú sért
nízk, síður en svo, þú kannt
bara að fara vel með fé og ert
hagsýn. f þessu sambandi
vil ég geta þess að varðandi
það starf, sem þú kannt að
velja þér síðar meir eða nú
þá finnst mér lang hentugast
fyrir þig að fást við af-
greiðslustörf, því til þess hef-
urðu lang ríkasta hæfileika.
Ef þú hugsaðir þér sjálf
verzlunarrekstur, þá mundi
þér ganga bezt í verzlun með
snyrtivörur allskonar, sér-
staklega allt er að hári lýtur.
Heilsufarið er undir áhrif-
um Fiskamerkisins og hefur
því tilhneigingu til að verða
nokkuð erfitt. Hins vegar er
hætt við að þú gerir þér oft
upp óþarfa áhyggjur út af því,
þar eð Máninn er staddur þar
eins og áður segir. Þeir, sem
hafa Mánann hér ímynda sér
oft algjörlega upp veikindi, en
þegar farið er að rannsaka
málin þá gengur ekkert að
þeim. Annar galli fylgir þess-
ari stöðu og hann er sá að sér-
staklega gott auga er fyrir
öllu, sem miður fer og má oft
vara sig á að láta ekki of
mikið á því bera, ef maður vill
ekki koma sér illa. Annars
má oft koma með tillögur til
úrbóta og setja þær þá fram
á rólegan og hógværan hátt.
Merki Vatnsberans á geisla
fimmta hús bendir til að ásta-
málin þróist út frá vináttu-
samböndum. Stundum verður
langvarandi vinátta skyndi-
lega að ást, sem svo leiðir til
giftingar. Talsvert af vonum
þínum og óskum verður tengt
ástamálunum og út frá ástar-
ævintýrum þínum geta svo
þróast annars konar draumar,
sem síðar leiða þig á veg ham-
ingjunnar. Löngunin eftir fé-
lagsskap er oft grundvöllurinn
að ástarævintýri, sem þó
kemst ekki fljótt á það stig,
sakir skorts á tilfinningaörv-
un, sem einkennir þetta merki
hér. Mér virðist 22 aldursár
verða afdrifaríkast í þessu til-
liti.
Þetta merki er talið fremur
hagstætt í sambandi við barn-
eignir, en gefur ekki til
kynna stóra fjölskyldu,
venjulega tvö til þrjú börn
og kynin misjafnt í meiri-
hluta. Maki með „frjósamt“
merki í fimmta húsi getur
hins vegar valdið því að börn-
in séu fleiri.
Ég mundi vilja ráðleggja
þér að standa ekki í miklum
ferðalögum, því afstöður eru
ekki hentugar í þeim efnum.
FÁLKINN
31