Fálkinn - 17.10.1962, Qupperneq 32
Þar sein asiiiiin ...
Framhald af bls. 13.
og er rúmir 30 metrar á hæð, öll einn
steinn, flutt að nokkur hundruð kíló-
metra frá Assían, því obeliskan er úr
rauðleitum steini, sem ekki er til við
Luxor. Hæstu súlurnar í musterinu
sjálfu, sem er raunverulega röð af bygg-
ingum, ná um 23 metra hæð og eru um
3 metrar í þvermál. Sem dæmi um
stærð þessara húsa má geta þess, að
undir stærsta loftinu stóðu um 134 súl-
ur og eru hinar lægstu þeirra um 18
metrar á hæð og standa flestar enn þann
dag í dag, þótt loftið sé fyrir löngu fall-
ið. Allar eru súlur þessar þaktar helgi-
letri og guðamyndum sem og flestir
fletir í hinum fornu musterum og gröf-
um.
Nú er Luxor framar öllu ferðamanna-
bær. Mikill munur er á Luxor og
Alexandríu. Hér gengur yfirgnæfandi
meirihluti manna í „galabíah“, hinum
arabíska klæðnaði og töluverður hluti
manna gengur hér enn um berfættur.
í Luxor sjást aðeins örfáir leigubílar,
og þeir eru hér ekki fremur en annars
staðar í Egyptalandi af nýjustu árgerð-
um. Hins vegar er hér mikið af hesta-
kerrum og asninn er algengasta einka-
farartæki. Verzlanir eru nær allar með
arabísku sniði og evrópiskar veitinga-
stofur vart eða ekki til nema á örfáum
fyrsta flokks hótelum, sem þarna eru
og myndu vafalaust teljast til annars
flokks í Evrópu.
Þótt fátækt virðist mikil í Egypta-
landi, sjást þó vart eða ekki betlarar
og allir virðast vel nærðir enda fæði
ódýrt, og sögðu mér kunnugir, bæði
Evrópumenn og Egyptar, að á þessu
sviði hefði orðið mikil breyting til batn-
aðar síðan byltingin varð 1952. Einnig
er það sárasjaldgæft að sjá bæklaða
menn eða aumingja á götum úti, en hið
Trölofunarhringar
Fljót afgreiðsla.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastræti 12
Sími 14007
Sendum gegn póstkröfu.
32 FÁLKINN
sama verður ekki sagt um öll hin ara-
bísku lönd.
Strax og komið er á j árnbrautarstöð-
ina í Luxor þyrpast að hótelþjónar,
burðarmenn og síðar ökumenn. Þeir
bjóða ekki aðeins þjónustu sína, held-
ur þrífa af ferðalanginum pjönkurnar
°g þjóta af stað, hafi hann sig ekki all-
an í frammi við að halda þeim saman.
Fyrir utan hótelið stendur svo annar
hópur, leiðsögumenn, forngripasalar,
menn, sem leigja báta og fleiri tegundir
sölumanna, sem elta hvern gest, er út
gengur, hlaupa við hlið hans og láta
móðann mása um stund, unz þeir loks
skilja, að ekki verður neinu prangað
inn á þennan.
Enginn skyldi ganga að fyrsta boði
þessara manna, því að arbískum sið
er það tvisvar til þrisvar sinnum hærra
en hið rétta verð. Verður að þrefa góða
stund áður en samkomulag verður um
verð, sem báðir geta sæmilega unað
við. Prang þetta lendir mest á ferða-
mönnum. Landsbúar þekkja verðlagið
og sjást sjaldan deila um verð sín á
milli.
Sé einhver svo óheppinn að rekast
inn í eldhús á egypzkri veitingastofu
í upphafi dvalar sinnar þar x landi, þá
er líklegt, að matarlystin segi ekki
verulega til sín á ný fyrr en þetta fagra
og sérkennilega land er horfið á bak
við sjóndeildarhringinn. Ef til vill veld-
ur aldagamall vatnsskortur og eyði-
merkurrykið, sem alls staðar smýgur
inn, því hvernig ástandið er í þessu
efni, en það er ólystilegt í meira lagi
og lítið ánægjuverk að skýra nákvæm-
lega frá því. Á góðum hótelum er með-
ferð matar auðvitað sæmileg, en erfitt
reynist að uppræta rótgrónar þjóðar-
venjur. Meira að segja byltingarstjórnin,
sem komið hefur á ýmsum uppbótum,
hefur átt í nokkrum erfiðleikum vegna
þessa sóðaskapar og þeirrar ónákvæmni
í starfsháttum og þess trassaskapar,
sem virðist af sömu rótum runninn.
Kairó er miðdepill Egyptalands, ekki
aðeins sem stærsta borg landsins með
um 3 millj. íbúa, heldur einnig fjöl-
mennasta borg Afríku og stærsta borg
hins arbiska heims. Hún er hin eiginlega
miðstöð islamstrúarinnar og tengir
meira saman en nokkur önnur borg
heimsálfurnar þrjár, Afríku, Asíu og
Evrópu, enda sjást í borginni sterk
áhrif frá öllum þessum heimsálfum. f
Kaíró er stærsti bazar Arabalandanna,
elzti og frægasti háskóli múslema,,
stærstu moskur heims, en einnig stór
verzlunarhverfi með evrópsku sniði.
Þótt Kaíró hafi sérstaklega sterkan,
einkennandi blæ, þá minnir hún um
margt á aðrar stórborgir heims, um-
ferð er mikil bæði fótgangandi manna
og farartækja, hér eru fagrar breiðgötur
og jafnvel skýjakljúfar, glæsilegar
brýr og tilkomumiklar byggingar, bæði
fornar og nýjar. Nú gnæfir hár sjón-
varpsturn við vestri bakka Nílar yfir
borgina, en hann var tekinn í notkun
á síðastliðnu ári. o<* er sem fieiri nýj-
ungar eitt af verkum núverandi stjórn-
ar. Þaðan er yndisfagurt útsýni.
Ekki get ég látið vera að skýra frá
því, að aldrei hef ég verið í landi, þar
sem þjóðhöfðingi, sem jafnframt er
raunverulega einræðisherra, er jafn al-
mennt elskaður og dáður af háum sem
lágum og Nasser í Egyptalandi. Að vísu
gætir nokkurrar óánægju meðal mennta-
manna og sumra auðkýfinga og verzl-
unarmanna, en þessi óánægja er tiltölu-
lega smávægileg, sögðu mér útlending-
ar, sem voru vel kunnugir stjórnmmála-
lífinu í landinu.
Nú er meira unnið í landinu en
nokkru sinni fyrr, fjöldamargar verk-
smiðjur og skólar reistir, lagt kapp á
að gera alla læsa og skrifandi (enn eru
um 25% ólæsir), sjúkraþjónusta hefur
verið aukin og er ókeypis (þrifnaður-
inn á sjúkrahúsunum er önnur saga!),
betlararnir hafa verið teknir af götun-
um, komið hefur verið á betri sorp- og
götuhreinsun, vegir malbikaðir og síð-
ast en ekki sízt, því fjármagni, sem
til er í landinu, hefur verið komið á
hreyfingu í þörfum fyrirtækjum og
tekin hafa verið stór lán erlendis til
að byggja stíflur, koma upp stóriðnaði
og vélvæða landbúnaðinn, sem víða er
eins enn í dag og hann hefur verið um
þúsundir ára. Bankar hafa verið þjóð-
nýttir, strætisvagnar og sporvagnar
í borgum og einnig ýmis önnur stór-
fyrirtæki, en fyrrverandi eigendur fá
fullar bætur, sem greiðast þó á mörgum
árum.
Sett hefur verið fast lágmarkskaup,
en einnig hámarkslaun fyrir hálauna-
menn, og 42 stunda vinnuvika og frum-
stæðustu réttindi vinnandi manna gerð
að lögum, en áður ríkti hreint miðalda-
skipulag í þessum efnum og verkamenn
voru algerlega réttindalausir. Stórjörð-
um, sem í mörgum tilfellum voru áður
heil héruð, hefur nú verið skipt milli
bænda og má nú enginn eiga meira land
en þaðsem hann og fjölskylda hans getur
ræktað. Verkamenn fá nú 25% hagnað-
ar þeirra fyrirtækja sem þeir vinna
hjá og tvo fulltrúa í stjórn þeirra með
fullum réttindum.
Atvinnuleysið og sárasta eymdin er
horfið og aldrei hefur meira verið unn-
ið í Egyptalandi en í dag. Þótt örbirgð-
in sé enn mikil og það sé þungt verk
og langsótt að koma hinu mikla mann-
hafi þessa þéttbýla lands til viðunandi
lífskjara og það eigi langt í land, þá
sjást þó greinileg merki þess, að af ein-
lægni og festu er unnið af yfirvöldunum.
Það eru að vísu herforingjar, sem
halda um stjórnai’taumana, en útgjöld-
um til hersins hefur þó verið stillt í
hóf og herinn er ekki eins áberandi hér
og í öðrum einræðisríkjum Arabaland-
anna. Vestrænt lýðræði finnst yfirleitt
ekki í þessum löndum. Meira að segja
í Egyptalandi, sem er þrátt fyrir allt
eitt hinna frjálsari, er ströng ritskoðun
og enginn getur gagnrýnt stjórnina
opinberlega. Auðvitað eru í blöðunum
ýmis konar lygar og blekkingar og
Framh. á bls. 34