Fálkinn - 17.10.1962, Síða 35
önugur. Svo skrúfar hann pípuna á og
reynir að ræsa hjólið á ný. Þegar það
er árangurslaust með öllu, fleygir hann
áhöldunum frá sér í vonzku.
— Hafið þér athugað kveikjuspóluna?
spyr Marteinn.
— Þetta er ekkert í sambandi við
hana.
— Má ég aðeins líta á?
Marteinn krýpur við hreyfilinn, losar
hlífina af honum og reynir rofann. —
Eigið þér litla þjöl?
Páll réttir honum þjöl og Marteinn
sverfur gætilega.
— Ég ætla að biðja þig að eyðileggja
það nú ekki, segir Páll. Hinn svarar
engu, en rétt á eftir fær hann Páli þjöl-
ina og stígur á ræsinn. Hreyfillin fer
þegar í gang.
— Á, sagði ég ekki, kallar söngstjór-
inn.
— Við sjáum nú til!
Án þess að þakka fyrir með einu orði,
stígur Páll á hjólið, setur í gangskipti
og gefur bensín. Þannig hjólar hann svo
sem sex eða sjö metra, þá hemlar hann
snöggt.
— Bölvaður garmurinn! Nú er ekki
hægt að skipta um gang, segir hann við
Martein. — Þetta hefur maður upp úr
því, að láta aðra snerta á áhöldum sín-
um.
Marteinn gengur til hans og beygir
sig til að sjá hvar bilunin er, enda finn-
ur hann hana undir eins. Páll hefur
rykkt svo hraustlega í gangskiptinn, að
taug hefur sprungið, en ekki tekur nema
fáar mínútur að gera við þá skemmd.
— Ég vil heldur reyna það sjálfur
núna, segir Marteinn. — Þá er ekki
hægt að segja á eftir, að ég hafi eyðilagt
það.
Páll ætlar að hreyfa mótmælum, en
hinn er þegar setztur í hnakkinn. Hann
setur í „gír“ og leggur af stað. Út um
hliðið, yfir brúna, fyrir hornið og síðan
upp veginn gegnum þorpið.
Þrjátíu, fjörutíu, fimmtíu kílómetrar
á klukkustund! Marteinn ætlar að snúa
við, en dökkur, malbikaður vegurinn
laðar hann lengra. Hann ekur líkt og í
leiðslu.
Þegar hann er að fara út úr þorpinu,
kemur hjólandi maður á móti honum.
Það er Barði lögregluþjónn. Hann stekk-
ur af hjólinu, leggur því þvert yfir göt-
una og lyftir höndinni.
Það er sem Marteini renni kalt
vatn milli skinns og hrunds. Á hann
að reyna að komast framhjá honum.
Ætti hann að ... . ?
En hann ákveður að nema staðar, og
hemlar svo sem eitt skref frá lögreglu-
þjóninum, fullur þungra hugsana.
— Hvar hafið þér fengið þetta bif-
hjól?
Barði ber ekki kennsl á M'artein, en
hann þekkir bifhjólið.
— Hjá Páli Glomp, svarar Marteinn.
— Ég átti að reyna það fyrir hann. Ég
var að gera við það.
Barði lítur á Martein.
Framhald á bls. 38.
Dagslátta drottins
^alkinn
Ryan — léttlyndan frum-
stæðan mann með heil-
brigðar lífsskoðanir. Hann
hefði vissulega notið
lífsins betur en raun
varð á, ef hann hefði
ekki verið altekinn þeirri
hugsun, að gull væri
fólgið í landi hans. En
gullæði hafði gripið hann
og sleppti ekki takinu.
Það voru örlög hans.
Grisela er leikin af Tinu
Louise. Grisela er gift
Buck syni Ty Tys, en
hann þjáist af afbrýðis-
semi. Konan hans er fög-
ur og freistandi. Hún er
sér þess meðvitandi og
nýtur þess. Hennar veiki
punktur er fyrsta ást
hennar, Will, sem er gift-
ur Rósamundu dóttur
Tys. Hann er allt það sem
hún ætlast til af manni —
hann er karlmaður.
Will Thompson er leik-
inn af Aldo Ray. Will
hefur sömu tilfinningar
gagnvart Griselu eins og
hún gagnvart honum, og
hann reynir ekki að dylja
það. Hann vill, hvað sem
það kostar hleypa raf-
straumum á spunavélar
bómullarverksmiðjunnar,
en þær höfðu gert hann
og allan bæinn atvinnu-
lausan, þegar vinnu var
hætt þar. Og hann kemur
vilja sínum í framkvæmd
í örvæntingu.
TÓNABÍÓ sýnir á næst-
unni bandarísku stórmynd
ina Dagslátta drottins
(Gods little acre), eftir
hinni heimsfrægu skáld-
sögu Erskine Caldwells,
sem selst hefur í meira en
10 milljón eintökum. Þeg-
ar hún kom út fyrir 25
árum, vakti hún geysi-
lega reiði og gremju
margra siðgæðispostula,
svo að einsdæmi er um
skáldsögur. Settur hefur
verið íslenzkur texti við
myndina, svo að þeir sem
ekki skilja ensku geti not-
ið hennar betur.
Það er mörgum ann-
mörkum bundið að gera
kvikmynd eftir sögunni
af bóndanum Ty Ty og
fjölskyldu hans. Og þess
vegna hafa kvikmynda-
framleiðendur svo oft
gengið fram hjá henni.
Hinn erótíska blæ sög-
unnar og djöi'fu atvik er
ekki vandalaust að festa á
filmu, en nú hefur það
verið gert og það er álit
flestra að snilldarlega
hafi tekizt.
Ty Ty Walden bónda
í Georgíu leikur Robert
Ty Ty Walden,
bóndi og
Will Thompson
takast á.
Næsta mynd er af
Will og Griselu.
Neðst: Ty Ty
(Robert Ryan),
Grisela (Tina
Louise) og Will
(Aldo Ray)
FÁLKINN
VIKU BLAÐ
VÆNTANLEGAR