Fálkinn - 04.09.1963, Page 30
'/!{/
^efijre
DD
qd
Einangrunargler
Framieitt einungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið timanlega.
KORKIDJAIM H.F.
Skúlagötu 57. — Sími 23 200.
Shoor
CrtnJbS. snvxnrM ER
KJORINN BÍLL FYRIR ÍSLENZKA V. ..
RYÐVARINN.
RAMMBYGGÐUR,
AFLMIKIIL
OG ÓDÝRARI
TÉKHNE5KA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
VONARSTHíTI 12. SÍMI 378ÍI
8 og 16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flestar gerðar sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Tiimuíím og fl.
Lj ósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor).
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
Kveniial»úr —
' iamhald at bls. 17.
ferðalag til Evrópu. Þær eru þrátt fyrir
allan íburðinn ekki eins blindaðar af
einka svefnherbergi hans og þær voru
í fyrstu, en svefnherbergi hans er klætt
dýrindis pelsum og hann sefur í rúmi
Loðvíks XVI, sem klætt er demöntum.
Og honum myndi ekki falla það vel
í geð, ef ein þeirra stælist úr hópnum
og gæfi blöðunum nákvæma skýrslu um
lífið í arabisku kvennabúri og um duttl-
unga herra þess.
Kveii|>j»ftin
Framhald af bls. 23.
hverri umf., þar til 64 1. eru á. Þegar
síddin er 28 cm eru felldar af 2 1. í
byrjun hverrar umf., þar til 16 1. eru
eftir. Fellt af í einu.
Frágangur: Allt pressað léttilega
nema brugðningar. Saumið saman axla-
hliða- og ermasauma. Festið ermarnar
við bolinn. Snúið réttunni upp og takið
upp 65 1. í hálsmálinu á prj. nr. 3.
Prjónið 2% cm brugðningu. 1 sl. 1 br.
Fellt af slétt og brugðið. Snúið réttunni
upp og takið upp 93 1. meðfram kantin-
um á vinstri boðang. Prjónið 3 cm
brugðningu, 1 sl 1 br. Fellið af slétt
og brugðið. Gerið eins á hægri boðangi,
búið til 5 hnappagöt, þegar brugðningin
er 1 cm breið. Hnappagötin eru prjónuð
þannig frá neðri brún: Prjónið 4 1.
fellið 3 1. af ★ prjónið 17 1., fellið 3 1.
af ★. Endurtekið frá ★—★, þar til
komin eru 5 hnappagöt. í næstu umf.
eru fitjaðar upp á ný þessar 3 1., sem
felldar voru niður. Fellt af slétt og
brugðið, þegar brugðningin er 3 cm
breið. Hnappar saumaðir í. Allir saúmar
pressaðir.
Athugið: Peysu þessa er hægt að nota
á drengi. Þá eru hnappagötin prjónuð
á vinstri boðang.
Á valili
Framhald af bls. 13.
þyrfti að kæla sig. Á síðustu sekúnd-
um var eins og eitthvað brysti í heila
hans, og hann óð til baka.
— Svona getið þér ekki hagað yður
hrópaði lögregluþjónninn til hans.
Della, sagði Morty. Ég er búinn að
sýna, að þetta er hægt og það eru ekki
til nein lög, sem banna fólki að gera
það.
Maður gæti haldið, að þetta hefði
verið endirinn á þessari sögu.
Þarna stóð hann gegnvotur og varð
að athlægi og innan skamms myndi
þetta verða komið út um allan bæ. En
eitthvað hafði farið aflaga í heila Mortys
oftar en einu sinni. Hann reikaði inn
í anddyri gistihússins og að blómasöl-
unni. Þar dró hann tvo blauta pund-
seðla upp úr vasanum og keypti tvæ.
tylftir af rauðum rósum. Harm hljóp
að lyftunni með þær í fanginu og fór
upp á herbergi 303 og skildi eftir sig
vota slóð. Hann barði að dyrum og
þegar Estella lauk upp, rétti hann henni
rósirnar og sagði:
— Mademoiselle, fegurð yðar og gáf-
ur hafa gjörbreytt lífi rnínu. Ég elska
yður nú og um alla eilífð og sama er,
hvert þér farið — til Parísar, Róm eða
New York — ég kem á eftir yður. Viljið
þér giftast mér?
Já, náunginn hafði gott útlit og hann
var bezta skinn, og alla vega var hann
ekki fær til þeirrar vinnu, sem hann
hafði valið sér. Og hún var kona og
það voru íil svo margar leiðir að hjarta
konunnar, að Morty hlaut að hafa
heppnina einhvern tíma með sér. Það
hafði hann líka í þetta sinn.
Hún sagði bara: — Komdu inn fyrir
og farðu úr blautum fötunum, meðan
ég blanda þér einn whiskey.
LITLA SAIiAAÍ
Framhald af bls. 18.
— Verði þér að góðu, sagði ég og stóð
upp.
Aftur í dag, stakk Marianna höfðinu
inn í vinnustofu mína og spurði:
— Hvað viltu borða í hádegismat?
— Tja, sagði ég, og var hugsi, hvað
skal snæða? Ég get annars ekki afráðið
það á hverjum degi. Þú verður að koma
með einhverja hugmynd. Það ert jú þú
sem ert húsmóðirin og átt bæði mat-
reiðslubók og eldhús.
Hún klóraði sér í hnakkanum.
— Hvað segirðu um vatnsgraut?
— Allt í lagi, sagði ég, við skulum
borða vatnsgraut.
Svo fengum við vatnsgraut.
Benni stóð upp frá borðum um leið
og Marianna gekk inn með grautarskál-
ina.
— Takk fyrir matinn, sagði hann.
— seztu, sagði ég, — og borðaðu. Á
þínum aldri á maður ekki að fúlsa við
matnum.
Síðan sneri ég . aér að Mariönnu.
Skammtaðu honurr. vel, skipaði ég,
hér borða allir vatnsgraut, þegar ég
borða vatnsgraut. Það sleppur enginn
við það. Ef vil viljum njóta þægindanna
og munaðarins, þá verðið þið eitthvað
að leggja á ykkur. Réttu mér kanelinn,
það er bezt að ljúka viS þetta.
— Hvaða dagur er í dag? kveinkaði
Benni.
— Fimmtudagur, sagði ég, nú verður
vatnsgrautur á morgun. Þá loksins höf-
um við efni á að fara í langa ökuferð á
nýja bílnum okkar.
Wiily Brtínholst.
Jálkihh tfiýgur út
30 FÁLKINN