Fálkinn - 04.09.1963, Blaðsíða 34
PANDA DG TDFRAMAÐURINN MIKLI
„Herra,“ sagði Panda, „gætuð þér sagt okkur, hvers
vegna farið hefur verið með okkur hingað?“ „Þetta
er Innriheimur,“ svaraði gamli maðurinn. „Ég sendi
skip mitt til að sækja ykkur.“ Um leið og hann talaði
byrjaði hann að stökkva stein af steini og sýndi við
það leikni sem var undraverð af manni á hans aldri.
„Og hvað um talandi kaffikönnuna og...“ stundi
Panda. „Þögn, ungi maður, „skipaði hinn.“ Þetta er
staður til innri hugleiðinga — ekki til að þvaðra.
Setjist niður og ég mun reyna að skerpa sjón ykkar
Panda og Jollypop settust varlega á steingólfið og
horfðu á hinn athyglisverða gamla mann gera ein-
hverjar dularfullar hreyfingar fyrir ofan kristals-
kúluna. Skyndilega byrjaði kúlan að glóa. „Þetta er
innra augað,“ sagði hinn. Með þessu sé ég inn í ykk-
ur.“ „Geturðu horft í gegnum okkur?“ stamaði Panda
„Ég horfi ekki, ég sé,“ svaraði hinn. „Þannig fæ ég
innsýn.“
Eftir að sá skeggjaði hafði horft lengi í kristalskúluna
síra, byrjaði hann að stika aftur og fram með miklum
hraða. „Ég bið yður afsökunar, herra,“ hrópaði Panda
ákveðinn í að fá útskýringu á öllum hinum dular-
fullu atburðum, sem höfðu komið fyrir í seinni tíð.
„Mér þætti gaman að vita, hver þér eruð og hvers
vegna þér hafið látið okkur koma hingað." „Spurðu
ekki heimskulegra spurninga, ungur minn,“ urraði
maðurinn. „Þið verðið að sjá og það þarf að fræða
ykkur, þvi að ég er Plútanus, vörður Innriheims.
„Þetta eru ekki miklar upplýsingar,“ tautaði Jollypop.
„En við vitum þó að minnsta kosti, hvað hann heitir.“
„Sjáið og fræðist," hélt Plútanus áfram og stóð á
höfði. „H-hvað er hann að gera núna?“ spurði Panda
undrandi. „Hann stendur á höfði eins og þú sérð,“
svaraði Jollypop, Það er stórkostlegt af manni á hans
aldri.
„Hvers vegna standið þér á höfði, herra Plútanus?"
spurði Panda. „Til að halda mínum innri hugsunum
saman,“ svaraði sá gamli. „Ágæt staða til að hugsa
í.“ „Ég bið yður afsökunar, herra Panda,“ hvíslaði
Jollypop,“ það er ekki kurteislegt að láta í ljósi undr-
un á hegðun gestgjafa síns.“ „Lofið mér að hugsa
augnablik," hélt Plútanus áfram. „Fáið ykkur eitt-
hvað að borða á meðan.“ „Kærar þakkir," sagði Jolly-
pop. „Ú,,“ hvíslaði Panda, „herra Plútanus hefur svo
sannarlega undarlegan smekk.“ „Það hefur hann,“
sagði Jollypop og gretti sig,“ en maður verður alltaf
að sætta sig við smekk gestgjafa síns..
34
^ÁLKINN