Fálkinn - 04.09.1963, Qupperneq 37
ekki setið uppi með mjólkurglas og
horft á sjónvarpið?
— Arthur, ég ...
Hann greip fram í fyrir henni. —
Það er aðeins einn dagur, Lenore. Það
er ekki heil ævi.
— Nei, en . . .
— Við sjáumst brátt aftur. Ég hringi
til þín frá flugvellinum í kvöld.
— Allt í lagi, sagði hún dauflega og
vissi vel, að hún gæti ekki talið honum
hughvarf.
— Ó, Lenore, sagði hann. — Ég hef
grafið upp nafnið Jessica.
Hún stirðnaði og kreisti höndina um
tólið.
— Nafnið, sem ég nefndi í svefninum.
Það var vélin, sem ég flaug í stríðinu.
Þessi B-17 — við kölluðum hana Jess-
icu af einhverri ástæðu. Það var áreið-
anlega nafnið á konu einhvers eða vin-
konu — það man ég ekki. Ert þú þá
ánægð?
— Já, sagði hún næstum hvíslandi.
— Mig hefur áreiðanlega dreymt
sprengjuárásarleiðangur. Ég hef verið
þar uppi með strákunum aftur — í
gömlu, góðu Jessicu. Það varð smáþögn.
— Nú, en ég verð að hlaupa. Læstu nú
dyrunum. Þú getur þvegið þér um hár-
ið, þá líður tíminn. Er þá allt í lagi?
Vertu sæl, vina mín.
Samtalinu var lokið. Hún gat séð
hann leggja tólið á með votti af brosi
á vörum. Hann var áreiðanlega í þann
veginn að hringja aftur — til Jessicu.
Frú Dunning settist á rúmið. Þetta
var hlægileg saga. B-17 í stríðinu! Það
var að verða alvarlegt, þegar hann hirti
ekki einu sinni um að finna upp á al-
mennilegri lygi.
KVIKMYNDIR
Judy Gringer
leikur Ijósmynda-
fyrirsætu í hinni
nýju dönsku
gamanmynd, en
aðalleikendurnir
eru Dirch Passer
og Ghita Nörby.
Danskar gaman-
mjndir njóta nú
mikilla vinsælda
hér á landi til
dæmis eru tvær
sýndar í einu
þegar þessar Iín-
ur eru ritaðar.
Ný mynd með Dirch Passer
Uppskerutími kvikmyndanna í Danmörku stendur fyrir dyrum og Nordisk
Film ríður á vaðið með „Hvis lille pige er du?“
Eldri kynslóðin man bæði eftir texta og lagi. Á sínum tíma fór þetta sem
eldur í sinu um Danmörku og það leikur ekki vafi á að lagið verður aftur
vinsælt. Lagið er samið af Edvard Brink árið 1923.
Kvikmyndin var nýlega frumsýnd og hér eru nokkrar myndir úr kvik-
myndinni. Aðalleikendur eru þau Ghita Nörby og Dirch Passer. Hans (Dirch)
er hinn ungi útgerðarmaður, sem hefur gifzt sínum indæla einkaritara Evu
(Ghita Nörby). Á hnattlíkani sýnir hann henni stöðu skipanna á heimshöf-
unum. Eva horfir dreymandi á. Ef til vill fara þau í indælis ferðalag til hinna
fjarlægustu heimshorna.
Hún fór niður og reyndi að lesa í viku-
blaði, en hún var of taugaóstyrk. Hún
sagði stúlkunni, að hún ætlaði ekki að
borða neinn morgunverð og fór inn í
bókaherbergið. Glugginn var opinn, og
sólin teiknaði mynstur úr breiðum, ljós-
um rákum á gólfteppið. Frú Dunning
nuddaði gagnaugun, lokaði glugganum
og dró þykk gluggatjöldin fyrir. Her-
bergið varð hálfmyrkvað. Hún settist í
leðurstól Arthurs, hallaði sér aftur á
bak og reyndi að hvílast.
Hann var í Englandi. Já, þarna kom
það. Hambledon herflugvöllurinn í Eng-
landi. Hún braut heilann um, hvort hann
væri þar enn, og hvort það væri til
skrá yfir gamlar sprengjuflugvélar.
Hún kveikti á borðlampanum og tók
upp símaskrána. Undir „Bandaríski flug-
herinn“ var löng númeraröð. Hún valdi
það fyrsta og hringdi í það.
— Já, sagði þægileg, ungleg rödd.
— Ég vildi gjarnan fá upplýsingar,
sagði hún. — Maðurinn minn var í flug-
hernum í síðari heimsstyrjöldinni, og
ég hef verið að brjóta heilann um það,
hvort ég á einhvern hátt gæti komizt á
snoðir um nafnið á vélinni, sem hann
flaug.
Framhald á bls. 38.
Carl Johan Hviid leikur hlutverk barþjónsins. Hér skenkir hann í glösin fyr-
ir hinn unga skipamiðlara (Dirch Passer) og einkaritara hans (Ghita Nörby).
FALKINN
37