Fálkinn - 18.09.1963, Qupperneq 18
Hann er tilbeðinn af þúsundum kvenna en samt segir hann, að eng-
inn í heiminum sé jafn einmana og hann. Hann hefur orðið fyrir
miklu mótlæti í einkalífi sínu, misst tvær eiginkonur og einkason
sinn . . . Perry Mason er aSalsöguhetjan í nýju framhaldssögunni,
sem hefst í þessu blaSi og hér segir frá lífi hans.
Perry Mason í sjónvarpsþætti ósamt Lynn Huntingdon sem kjörin var
ungfrú Amerika fyrir nokkrum árum.
Raymond Burr er án efa einn dáðasti
og þekktasti leikari heims í dag. Alls
staðar þar sem sjónvarp er, er hann
,,á skerminum“ nokkrum sinnum í mán-
uði. Raymond Burr sem hinn óviðjafnan-
legi lögfræðingur Perry Mason, sem
leysir öll vandamál. En að baki hinnar
ævintýralegu velgengni hans liggur
mannleg sorg, sem hefur gert hann að
einum mest einmana og óhamingju-
samasta manni heimsins. Þetta er sú
bakhlið velgengninnar, sem fæstir vita
um.
Raymond Burr fær daglega fleiri
þúsund bréf hvaðanæva að úr heimin-
um frá ungum og gömlum, körlum og
konum. Nokkur hundruð þessara bréfa
geyma hjúskapartilboð til hins hávaxna
og karlmanniega leikara og þar á meðal
hafa verið tilboð frá vellauðugum kon-
um, jafnvel frá ungum konum af aðals-
ættum. Það hefur verið úr nógu að
velja, en Raymond Burr hefur hingað
til kosið einveruna. Stundum hefur
verið talað um rómantískt samband
milli hans og kvenstjarna í Hollywood
en það hefur hinga til ekki orðið neitt
úr því. Raymond Burr getur ekki
gleymt þeirri sorg sem í hvert sinn
hefur steypzt yfir hann, þegar hann
virtist hvað hamingjusamastur.
— Ég skil ekki, sagði hann nýlega i
viðtali — að einn maður geti borið jafn
mikið af andlegu mótlæti eins og ég
hef orðið að þola. Það þýðir ekki fyrir
yður að spyrja, hvaðan mér hafi komið
styrkur, því að ég veit það ekki sjálfur.
En ég skammast mín ekki fyrir að
viðurkenna, að stundum hef ég verið að
því kominn að gefast upp . . .
Fyrsti sorgarleikurinn hófst með
fyrsta hjónabandi Burr. Hann kvænt-
ist hinni fögru Anette Sutherland, sem
bæði var aðlaðandi og skynsöm stúlka
og hjónabandið var álitið mjög ham-
ingjusamt.
Þau tvö lifðu hvort fyrir annað og
hamingjan óx enn, þegar þau eignuðust
son. Reyndar hafði Raymond Burr ekki
svo mikið að gera á þeim tíma, því að
langur tími leið, þangað til hann hafði
heppnina með sér, en hann var ungur,
ástfanginn og glaður.
Svo skeði fyrsta slysið. Fjölskyldan
ætlaði í orlof og ætlunin var sú, að
þau fylgdust að. En sonurinn hafði verið
lagður inn á sjúkrahús og það var ákveð-
ið, að frúin færi fyrst, svo kæmi Burr
á eftir.
Nokkrum mínútum eftir að vélin
lagði af stað frá flugvellinum .fyrir
utan Hollywood með frú Burr um borð,
hrapaði hún til jarðar. í marga mánuði
talaði Burr ekki við fólk og vinir hans
óttuðust, að hann væri að missa vitið.
Að hann skyldi komast yfir það var
í fyrsta lagi því að þakka, að hann átti
18
FALKINN