Fálkinn - 21.10.1963, Síða 41
- H
PANDA DG TDFRAMAÐURINN MIKLI
„Við skulum fara,“ sagði Goggi og leit á veggina.
„Halló“ tautaði Plútanus, sem hafði fengið áhuga á
sjónvarpi, sem hann rakst á. „Þetta verð ég að rann-
saka.“ Á augabragði leystist hann upp í reyk ...
Goggi, sem var að safna saman herfangi sínu, flýtti
sér að dyrunum til að opna þær. „Læst,“ tautaði
hann. „gerir ekkert til. Plútanus þarf ekki annað en
muldra nokkur orð og þær opnast af sjálfu sér.“ Hann
sneri sér við og spurði: „Herra Plútanus, vildir þú
vera svo góður að...“ Hann þagnaði og horfði í
kringum sig. „Hvar er hann?“ hrópaði hann. Já, hvar
er hann?
Goggi byrjaði að svitna mikið. „Ef greifinn finnur
mig hérna,“ stundi hann. „Gerir hann út af við mig
með einni af þessum byssum.“ Hann reyndi aftur að
opna en varð ekkert ágengt. „Hvar ertu herra Plút-
anus,“ hrópaði hann örvæntingarfullur. Það kom ein-
kennilegt hljóð frá sjónvarpstækinu. Augu hans urðu
kringlótt af undrun. „Þarna er hann,“ hrópaði hann.
„Á tjaldinu.“ Hann fór að hreyfa takkana í þeirri von
að frelsa töframanninn. Allt, sem hann hafði upp úr
því, var að stækka höfuð Plútanusar mikið. „Komdu
út, herra Plútanus,“ hrópaði Goggi. „Geturðu heyrt
til mín.“
Töframaðurinn virtist skemmta sér konunglega inni
í sjónvarpstækinu. „Mér datt aldrei í hug, að ég fyndi
svona kyrrlátan stað í ytra heimi,“ sagði hann.
„Komdu út, herra Plútanus,“ bað Goggi. „Við verðum
að fara.“ Meðan Goggi var að tala við töframanninn
opnuðust dyrnar og kraftalega vaxinn maður birtist.
„Gerið það, herra Plútanus,“ hélt Goggi áfram og tók
ekki eftir manninum. „Við verðum að fara áður en
Greifinn kemur og fer að spyrja spurninga.“ „Hvernig
væri þessi spurning," þrumaði dimm rödd bak við
hann. „Hvað ert þú að gera í mínu herbergi?“
r'ÁLKINN 41