Fálkinn


Fálkinn - 25.11.1963, Page 27

Fálkinn - 25.11.1963, Page 27
var svo glöð hans vegna, að það skipti ekki svo miklu máli, að hann var enn ekki minn. Þegar pabbi kom til að fara með okkur heim, sat ég við hlið hans með Davíð í fanginu. Pabbi var alltaf að líta af veg- inum. Þegar við stigum út úr bílnum, sagði ég: — Haltu á honum augnablik, meðan ég tók dótið, og ég setti hann um- svifalaust í fang pabba. Davíð greip öruggur og fullur trúnaðartrausts um einn fing- ur hans. Þegar ég vildi taka hann aftur,. sagði pabbi: — Heldurðu að ég missi hann á gólfið eða hvað? Næsta kvöld Nú, jæja, það var tilgangs- laust. Ég fengi aldrei að vita það. Það var líka kannski bezt þannig. Ókunnug stúlka gekk upp tröppurnar. Án þess að hugsa mig um hrópaði ég hátt og hún stanzaði. Ég hljóp hratt með barnavagninn að tröppun- um. Það var ekkert sérstakt við hana — hún var hreint og beint alveg venjuleg stúlka tuttugu og fimm ára aldrinum, með brúnt hár. Hún var með vörur í neti. Ég sá, að það var laukur. Það myndi Doris ekki líka. Hún horfði kurteislega á mig. bað hann um leyfi til að fá að baða Davíð. Ég hafði flutt eigur mínar úr hinu L-lagaða herbergi heim í hús pabba. En ég saknaði hins L-lagaða herbergis. Á hverjum morgni vaknaði ég og hélt að ég væri þar. Mér fannst ég vera eins og snigill með brotinn kuðung, af því að ég hafði verið slitin svo skyndilega frá því. Ég var miskunnarlaust dregin þangað til að horfa á það í síðasta sinn. Og hér var ég nú og gat bara staðið á gangstéttinni og horft upp. Ég gat ekki fengið mig til að banka og biðja Doris um leyfi til að líta á herbergið. Ég vissi, að það hafði verið leigt út aftur, ungri stúlku, hafði John sagt. Ég var mjög forvitin að sjá hana. Hafði Mavis látið sér annt um hana? Hafði hún orðið hrædd við að sjá hið svarta andlit John í gluggan- um? Hafði henni tekizt að eiga við heitavatnskranann á bað- inu? Og það, sem var mikilvæg- ast af öllu — hvað hafði hún gert við herbergið? — Afsakið — en búið þér á efstu hæð — að götunni? — Já? — Ég bjó þar á undan yður. Gæti ég fengið að sjá herberg- ið? Hún hrukkaði ennið rugluð. — Hafið þér gleymt ein- hverju? — Nei. Ég bara......Annað hvort skildi maður þess konar tilfinningar eða maður skildi þær ekki. Hún hélt sjálfsagt, að ég væri smáskrítin. — Fellur yður við herbergið? — Ó, já, það getur gengið, sagði hún og yppti öxlum. — Ég bjó þar í sjö mánuði. — Var það? Rödd hennar var blæbrigðalaus. Hún leit á Davíð. Með sömu blæbrigða- lausu röddinni sagði hún: — Eigið þér þetta barn? — Já. Hún leit á hann. — Hvað er að eyrunum? — Ekkert. Þau eru bara dá- lítið útstandandi. Ég festi þau með plástri. — Það þýðir ekki, sagði hún. — Það verður að gera aðgerð, svo eru þau góð á eftir. — Eigið þér barn? — Ég átti lítinn strák. Það var ekið yfir hann. Ég var þrumu lostin og neit- aði að ímynda mér að nokkuð slíkt gæti komið fyrir Davíð. Hún rétti barninu fingur og þegar hann varð var við snert- inguna, greip hann strax um hann. Stúlkan brosti. — En hvað hann er sætur, sagði hún. Hún brosti enn og lét barnið halda um fingurinn. — Bjugguð þér einar í þessu litla herbergi, áður en hann fæddist? — Ég kinkaði kolli. — Og maður yðar? — Ég er ekki gift. Hún leit á Davíð og sagði: — En þér eruð hamingjusam- ar, þér, sem hafið að minnsta kosti barnið. Hvers vegna vilj- ið þér sjá herbergið? — Mér féll vel við það. Hún leit á mig vantrúuð. — Féll yður vel við það? þessa litlu kompu? Með svert- ingjann í herberginu við hlið- ina, og húseigandann og allt? Og þetta dimma, lyktandi hús — og þessar tvær kvinnsur í kjallaranum. En þér megið koma upp, ef yður langar. — Ég skildi vagninn eftir í ganginum og barDavíð upp hina löngu stiga, þar sem fýlan var óþolandi. Ég fann lyktina aftur, þar sem ég hafði ekki komið þarna nokkurn tíma. — Finnið þér hana? hvíslaði stúlkan. — Já. — Hún er hræðileg. Slær fyrir í hvert skipti, sem ég kem inn. Og svo stigarnir. Ég varð óskiljanlega pirruð eins og ég væri hluti af húsinu. — Maður venst því, ságði ég svo stuttaralega. Það var notalegt, að einhver skyldi opna fyrir mér með lykli sínum. Ég varð skelfd, þegar ég sá herbergið. Ég hefði átt að vera viðbúin, en ég hafði vænzt þess að sjá herbergið, sem ég fór frá og svo var það gjör- breytt. Á margan hátt var það svipað og ég sá það fyrst. Gips- hundarnir stóðu á sínum stað. Vesalings slitna gólfið var aft- ur bert. Brúnu glugagtjöldin voru þungbúin. Aðeins hvítir veggirnir voru kunnuglegir. — Það þyrfti að flikka svo- lítið upp á það, sagði stúlkan fremur af þrjózku en til afsök- unar. — En ég hef ekki hugsað mér að gera það. Hvers vegna ætti ég að gera það? Það skiptir engu máli, það sér það enginn hvort sem er. Ég hef búið hér í mánuð og þér eruð sú fyrsta, sem hefur komið hingað. — Ekki Mavis einu sinni? — Hver þá? Nú kerlingin þarna niðri. Hún hefur bankað hér upp á nokkrum sinnum. Ég hef aldrei hleypt henni inn fyrir. Hún er góðleg, það er bara það, að ég kæri mig ekki um að kynnast neinum í hús- inu. Ég vil ekki hafa neitt með aðra að gera yfirleitt, aldrei framar. Láttu barnið á rúmið og tylltu þér. Eg gerði eins og hún sagði. Davíð lék sér á ullarteppinu. Honum fellur vel við þessa gömlu ullardruslu sagði hún og horfði á hann. — Mér fellur hún einnig vel. Hún er hérum bil það eina sem ég get fellt mig við í þessu draugalega, litla herbergi. Ég sat í hægindastólnum. áklæðið, sem ég hafði saumað á hann, hafði fylgt með öðrum eigum mínum. Hann var ber aftur, svartur af skít. — Það þyrfti að setja nýtt áklæði á stólinn ,sagði stúlk- an. — Ekki þannig að það skipti neinu máli. — Ég á eitt, sem þér getið fengið, heyrði ég sjálfa mig segja. Augnablik hugsaði hún sig um. Svo sagði hún ákveðin: — Nei, þakka yður fyrir. Ef maður fer að laga herbergi, hættir maður aldrei. Ég hafði ekki hugsað mér að skipta mér af því. Hún sá, hvert ég horfði. Já, gluggatjöldin. Þau eru hræði- leg. Skítug líka. En ég kæri mig kollótta. Við sátum nokkra stund án þess að segja nokkuð. Svo var eins og hún væri þvinguð til að segjá frá því, hvers vegna hún býggi hérna: — Ég hefð'i ekki tekið svona hefði haft efni á einhverju betra. Maðurinn minn yfirgaf mig, þegar barnið dó. Mér finnst tvö pund of mikið. Hún vildi fá tvö og tíu, en það neit- aði ég að borga. — Þér hafið sem sagt ekki kynnzt neinum af hinum leigj- endunum? — O, ég hef séð þá, sagði hún. — Maður kemst ekki hjá því. John til dæmis. Hann gætir mín eins og hann væri mamma mín eða eitthvað slíkt. Ég var hrædd við hann í byrjun, en hann er svo góður, að ég vil ekki særa hann. Og svo eru gömul hjón Framh. á bls. 41. 27 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.