Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Blaðsíða 6

Fálkinn - 17.02.1964, Blaðsíða 6
HARÐPLASTPLÖTUR cr vesturþýzk framleiðsía, — við- urkennd gæðavaro, er sfenzf alla samkeppni. DUROpa! faest í fjölbreyttu lita- úrvali, í þrem úferðum, — gljó- pólerað, Hólfmatt og matt. Kynnið yður yerð og gaeði. Við af- greiðum pantanir yðar beint fró framleiðanda sé þess óskað. Auk þess munum við á þessu óri geta afgreitt af lager í ReykjaYÍk þó liti, sem vinsælastir eru. EINKAUMBOÐ MARINO PÉTURSSON HEILDVERZLUN HAFNARSTR. 8 • SÍMI 17121 Á rauðu Ijósi. Háttvirta Pósthólf. Það er einkennilegt kæru- leysi sem fólk sýnir í sambandi við umferðarljósin. Það er engu líkara en fólk gangist upp í því að brjóta allar þær reglur sem gilda í sambandi við þessi ljós. Það segir sig auðvitað sjálft að þetta er ákaflega heimskulegt og stór hættulegt. Það er nánast merkilegt að ekki skuli verða fleiri slys af þess- ari ástæðu en raun ber vitni um og það er ekki þeim gang- andi að þakka heldur miklu frekar ökumönnunum. Ég held að fólk ætti að hugsa sig vel um áður en það gengur yfir götuna á rauðu ljósi. Vegfarandi. Cliff Richard. Kæri Fálki. Ég þakka þér fyrir fram- haldssögurnar. Hún er fín, sú sem er að byrja. En getur þú frætt mig um hvar hann Cliff Richard á heima. Helzt heimilis- fangið. Hvernig er skriftin? Með beztu kveðjum. Aðdáandi C. R. Svar: Aö vísu liöfum viö ekkert heimilisfang Richard en þessi árit- un, sem fylgir liér á eftir mun áreiöanlega duga. C. R. Brittannia Film Distribut- ors Ltd, 10 Green Street London Wl. Saltburður á götur. Háttvirta blað. Nokkrir tugir skópara hljóta að eyðileggjast árlega af þess- um saltburði á götur borgarinn- ar. Þetta er mjög frumstæð aðferð og mér vitanlega er hún hvergi notuð nema hér. Að vísu hlýtur þetta að vera eink- ar hagkvæmt fyrir skókaup- menn en ég veit ekki hvort rétt er að hugsa meira um þá en hinn almenna vegfaranda. Erlendis er mokað jafnóðum af götunum og við höfum nú apað svo margt og mikið eftir þeim útlendu svo það væri ekki galið að við öpuðum þetta eftir þeim líka. Það mundi að minnsta kosti spara okkur talsvert í skófatnaði. Með beztu kveðjum. O. P. Blöðin eru „asnaleg“. Fálkinn, vikublað. Mikið er það asnalegt, sem kemur stundum í blöðunum. Og það er stundum svo vitlaust að maður getur farið að gráta af vonsku yfir allri þessari vit- leysu. Og mér finnst blöðin vera að versna. Þau voru ekki svona bjánaleg fyrir nokkrum árum. Að hugsa sér að svona mikil vitleysa skuli vera til. Ég er að verða vitlaus yfir þessu öllu saman. Blaðalesandi. Svar: Já, þaö er margt asnalegt sem kemur i blööunum eins og t. d, þetta bréf þitt. En úr því aö þér f innast blööin svona asnaleg livers vegna aö vera þá aö lesa þauf Enn eitt bréf um bjórinn. Kæri Fálki. Bjórinn eigum við að fram- leiða fyrir þá sem hans vilja neyta, og væri þá ekki úr vegi að selja hann í áfengisverzlun- inni og láta gilda sömu reglur um sölu hans, sem annars áfengis. Takmarka svo inn- flutning á víni, eða hækka vín- ið um nokkrar krónur svo að drykkjumenn belgi sig aðeins á bjór. Er þetta ekki ósköp ein- falt- Og svo allur gjaldeyris- sparnaðurinn, og þá fyrst gætu smyglarar þrifist. Jú, svo sann- arlega hlakka ég til að fá bjór- inn sterka. XX. Svar: Sjálfsagt hefur einhver vió þetta aö athuga og vceri gaman aö lieyra eittlivaö um þaö. Er hrifin af strák. Kæri Fálki. Það getur verið að þú getir hjálpað mér og þess vegna ætla ég að biðja þig um það. Ég er voðalega skotin í strák sem á heima rétt hjá mér en ég hef aldrei talað við hann. En ég held að hann sé líka svolítið skotinn í mér. Ég þekki einn strák sem þekkir hann dálítíð vel en ég hef aldrei hitt þá saman. Hvað finnst þér að ég ætti að gera í þessu? Hvernig á ég að kynnast stráknum. Svo þakka ég þér fyrir margt skemmtilegt efni og vertu sæll. Ella. Svar: Þú œttir aö tala viö strálcinn sem þekkir þennan sem þw ert skotin í og biöja hann aö kynna ykkur. Þetta skaltu gera strax og góöa ferö.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.