Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Blaðsíða 36

Fálkinn - 17.02.1964, Blaðsíða 36
PANDA DG TDFRAMAÐURINN MIKLI Plútanus féil ekki við hina íburðamiklu íbúð Bergs greita og vildi fara strax brott, en Goggi bað hann að biða og tók að tína saman verðmæta hluti, sem hann fann. Það var ekki fyrr en Plútanus benti á vopn greifans, sem hengu á veggnum og spurði hvað þau væru, að Goggi taldi skyndilega rétt að fara strax í burtu. „Við skulum fara strax,“ sagði Goggi og horfði hvíðafullur á vopnin. „Hananú,“ tautaði Plútanns, sem hafði fengið áhuga á sjónvarpstæki. „Ég verð að líta á þetta.“ Og allt í einu varð hann að reykjarhnoðra ... Goggi, sem hafði í flýti safnað saman ránsfeng sínum, skundaði til dyra og reyndi að opna þær. „Lokaða.-,“ tautaði hann. „Allt í lagi. Piútanus verður ekki í vandræðum með að opna þær.“ Hann sneri sér við og sagði: „Plútanus! Viljið þér vera svo góður og,..“ Hann þagnaði og skimaði skelfdur í allar áttir. „Hvar er hann,“ æpti Goggi, Já, — hvar skyldi hann vera? Goggi svitnaði af hræðslu. „Ef Bergur greifi sér mig hér, gerir hann mig líka að engu með þessum byss- um.“ Hann gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að opna dyrnar, en án árangurs. „Hvar eruð þér, Plútanus,“ æpti hann dauðhræddur. Dauf hljóð frá sjónvarpinu komu honum til að líta þangað. Augu hans glenntust út. „Þarna er hann!“ hrópaði hann. „Á skerminum!“ Hann þaut að tækinu og sneri öll- um tökkum í von um að frelsa töframanninn. En. það bar þann eina árangur að höfuð Plútanusar stækkaði óhemju mikið. „Komið út Plútanus," æpti Goggi. „Heyrið þér til mín?“ Töframanninum viirtist líða ágætlega inni í sjónvarp- inu. „Loksins staður, þar sem maður finnur eitthvað skylt Ijósvakanum," kallaði hann er hann sveif um inni í tækinu. „Ég hélt að ég myndi aldrei finna slíkan stað í Ytra-Heimi.“ „Komið Plútanus!“ bað Goggi. „Við verðum að fara.“ Meða-i Goggi var að naiiða í töframanninum opnuðust dymar og þrekvax- ir.n rnaður birtist. Andartak glápti hann stéinhissa, síðan læddist hánn 'að hlið Gogga og beið þar, reiðu- búinn að grípa hann. „Góði Plútanus,“ hélt Goggi áfram, án þess að hafa hugmynd um hijin nýkomna. ,,V;6‘ verðum að fara eða Bergur greifi gæti komið og faiið að spyrja óþægilegra spurninga." „Hveimig væ i að byrja á þessari,“ var sagt djúpri röddu bak við hann. „Hvað eruð þér að gera í mínu herbergi?“

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.