Fálkinn


Fálkinn - 17.02.1964, Blaðsíða 34

Fálkinn - 17.02.1964, Blaðsíða 34
KVENÞJÓÐIN Ritstjóri Kristjana Steíngrimsdóttir húsmæðrakennari. Hér er stílhreinn púði saumaður í ólitaðan ullarjava með krossaum með þremur litum. Gert er ráð fyrir að þráðaþéttleikinn sé um 7 þræðir á hvern cm. Sníðið 2 stk. 40X40 cm. Saumið yfir 2 þræði með dökkgrænum, ljós- grænum og ronslit. Stærð púðans fullsaumaðs er um 35X35 cm, þar með talinn kanturinn utan með. Finnið fyrst miðjuna á báðum hliðum inn að miðju, og þar sem línurnar skerast er miðjan og jafnframt miðsporið á miðmynstrinu. Teljið út frá miðjunni. Athugið að öll krosssaumssporin snúi eins. Þegar búið er að sauma hinn þétta bronslitaða kant, er hlekkjakanturinn saum- aðaður. Ath að 2 litlir hlekkir eru saman við miðju hliðanna. Pressað vel á röngunni. Leggið því næst bak- og framstykki saman, látið réttuna mætast. Saumið púðann saman á 3 hliðum 2 cm frá útsaumnum. Snyrtið hornin, svo að þau fylli ekki of mikið. Snúið púðaverinu við, pressið saumana — brjótið líka saumfar inn af hliðinni, sem opin er og pressið. Saumið því næst með perlugarni með sama lit og efnið og með aftur- sting meðfram íokuðu hliðunum. Saumið bæði gegnum bak- og framstykki og alveg þétt upp við yztu krosssaumsröndina. Setjið púðann inn í púðaverið og varpið þétt og ósýnilega fyrir fjórðu hliðina. Saumið að lokum aftursting með fram hliðinni. X = dökkgrænt • = ljósgrænt Svartur ferningur = bronslitur. Saumað yfir 2 þræði. Örin að neðan verðu og í hægrl hlið benda inn að miðju þess mynsturs, sem haft er á miðju púðans. Lóðrétta örin til vinstri sýnir miðju kantsins. Fallegur púði er alltaf til prýði

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.