Fálkinn - 01.06.1964, Page 4
/*3%
Félagsprentsmiðjan h.f.
SPÍTAJLASTÍG 10 (við Óðinstorg)
SÍMI 11640.
Prrniun
Á BÓKUM — BLÖÐUM
TÍMARITUM
ALLS KONÁR
EYÐUBLAÐAPRENTUN.
Strikun á verzlunarbókum og
lausblöðum.
Vandað efni ávallt fyrirliggjandi.
Gúmstimplar
afgreiddir með litlum fyrirvara.
Leitið fyrst til okkar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Spítalastig 10. — Sími 11640.
osta-og smjörsalan s.f.
Húsnæðismál Alþingis.
Háttvirta blað.
Það getur vel verið að þið
viljið ekki birta þetta bréf mitt
i Pósthólfinu, en þá gerir þáð
ekki svo mikið til, þið hendið
því þá bara, vonandi eigið þið
eitthvað af nothæfum ruslaföt-
um.
Ég ætla ekki að biðja ykkur
um aðstoð hvernig ég eigi að
kynnast einhverri stelpu úti í
bæ eða hvernig ég eigi að losna
við fótraka né dagskrá útvarps-
ins heldur ætla ég að ræða við
ykkur miklu göfugra mál sem
sé húsnæðismál hins háa Al-
þigis.
Mér er sagt af fróðum mönn-
um og svo hefur maður bæði
séð það í blöðum og heyrt í
útvarpi að húsakostur þessarar
öldnu og virðulegu stofnunar sé
orðinn allt of lítill og hái það
störfum þess mjög. Vitaskuld
er leitt til þess að vita en mér
kom nú annað í hug þegar ég
frétti þetta: Mikið var. Nú
gefst okkur alveg stórkostlegt
tækifæri og við erum hinir
mestu aulabárðar ef við látum
þetta tækifæri úr greipum
ganga. Þess vegna skrifa ég
ykkur þetta bréf ef vera mætti
að það vekti einhverja til um-
hugsunar um þetta mál. Og ég
hef í huga alveg sérstaka lausn
á þessu máli. Mun ég nú gera
grein fyrir henni hér á eftir.
Svo sem allir vita þá var
Alþingi til forna haldið á Þing-
völlum við Oxará en er það var
endurreist var það ekki á hin-
um forna þingstað heldur hér
í víkinni. Þetta var hið mesta
glapræði svo sem komið hefur
á daginn. Nú, þegar í Ijós hefur
komið að húsnæði þess hér í
víkinni er orðið of lítið, þá vakn-
ar sú spurning hvort ekki væri
hentugra og betra fyrir okkur
að flytja þessa virðulegu stofn-
un í heilu lagi austur á Þing-
völl við Öxará.
Nú kann svo að fara að ein-
hverjum finnist lítið til þessar-
ar hugmyndar koma en þegar
farið er að athuga hana betur
kemur í Ijós að hún er ekki
aðeins vel nothæf heldur sú
eina lausn sem kemur til mála.
Þarna austur frá yrðu byggð
nægileg hús fyrir Alþingi. Mér
dettur í hug að um hringlaga
byggingu yrði að ræða með
sæmilegum húsagarði að húsa-
baki. Þarna yrðu skrifstofur
Alþingis og íbúðarhúsnæði
þingmanna og starfsliðs. Utan
um þetta yrði svo sett ramm-
efld gaddavírsgirðing og inn
fyrir hana fengi enginn að fara
nema sem ætti brýnt erindi og
ekki út fyrir heldur Þarna
gæti svo Alþingi haldið störf
sín, þráttað um það sem uppi
er á teningnum hvert sinni og
við sem fyrir utan þessa girð-
ingu erum fengjum að vera í
friði og lausir við allt þetta
málskraf og upphrópanir sem
þessu eru samfara.
Svo þakka ég kærlega fyrir
allt gamalt og gott svo sem
venja er að ljúka bréfum og
bið ykkur vel að lifa.
Ykkar einlægur,
Þ. Æ.
Svar:
Vissulega athyglisverö hugmynð,
en á sennilega langt til jram-
kvæmda.
Skenimtiþættir á sunirin.
Kæri Póstur!
Mig langar til að senda þér
nokkrar línur og koma fram
með athugasemd, uppástungu
eða hvað menn vilja kalla það.
Nú er komið sumar og þessir
tveir skemmtiþættir sem verið
hafa í útvarpinu í sumar eru
að hætta. Það verður mörgum
mikil eftirsjá í Svavari Gests.
Hann á mikla þökk og mikinn
heiður skilinn fyrir sitt starf í
þágu hlustenda. Og nú verður
víst lítið af léttu efni í sumar.
Kannski fáum við þó að heyra
stöku sinnum í Guðmundi Jóns-
syni og Jóni Múla. Getur út-
varpið ekki haft einhverja
skemmtiþætti fyrir ferðamenn
annað en lög leikin á gramma-
fóninn. Það er hægt að fá nóg
af mönnum til að sjá um góða
þætti. Góða menn. Það fylgir
auðvitað sá böggull skammrifi
að það þarf sennilega að borga
því ekki er hægt að ætlast til
þess að menn sjái um svona í
gustukaskyni. Og alltaf eru af-
notagjöldin að hækka svo það
er ekki nema eðlilegt að menn
vilji hafa eitthvað fyrir snúð
sinn. Og af hverju að vera með
þessi afnotagjöld. Því ekki að
hafa nefskatt og hafa hann þá
það háan að hægt sé að hafa
góða dagskrá. Erum við ekki
alltaf bæði drukknir og
ódrukknir að tala um hversu
mikil menningarþjóð við höf-
um verið að fornu og nýju? Og
því þá ekki að sanna okkar
menningu með góðri útvarps-
dagskrá þar sem ekki stöðugt
eru sinfóníutónleikar og lestur
úr svo og svo leiðinlegum bók-
um heldur góð og skemmtileg
dagskrá. Hún þarf ekki að vera
sprenghlægileg frá morgni til
kvölds. Það er enginn að biðja
um það heldur hitt að stundum
sé hægt að brosa nema kannski
bara annað hvort sunnudags-
kvöld Og svo er auðvitað eng-
inn -ð biðja urr að sinfoni”,-
tónleikar verði felldir niður og
4 FÁLKiNN