Fálkinn - 01.06.1964, Blaðsíða 35
þeim loknum heldur hann til Bandaríkjanna
og síðar til Mexíko og sest þar að.
Fyrsta myndin sem Bunuel tók í Mexíko
var Glötuð æska, og hún vakti ekki síður at-
hygli en fyrri myndir hans. Eftir nær því
tuttugu ára þögn hafði þessi meistari haldið
innreið sína í heim kvikmyndanna að nýju.
Eins og áður lét hann svipu sína hvína og
það sveið mörgum undan henni. Og nú rek-
ur hver kvikmyndin aðra. Hann 1953, Robin-
son Krúsó um svipað leyti og síðan Glæpalíf
Archibaldo de la Cruz. Að þessum myndum
loknum flyzt Bunnuel til Frakklands og vinn-
ur þar nokkrar myndir. Meðal þeirra eru
myndirnar, Leyndarmál lækíiisins og Ferða-
lok. Eftir nokkurra ára dvöl í Frakklandi
snýr Bunuel aftur til Mexíko og gerir mynd-
ina Nazarinn.
Þegar hér er komið sögu fær Bunuel til-
boð um að taka mynd á Spáni. Hann snýr
þá aftur heim til fósturjarðarinnar og gerir
hina stórkostl'egu mynd sína, Viridiönu. Sú
mynd var tekin í algjörri óþökk við spænsk
stjórnarvöld og þegar þau fréttu hverju fram
fór gerðu þau tilraun til að komast yfir frum-
kopiuna til að eyðileggja hana, en þá hafði
Bunuel tekizt að koma henni undan til Frakk-
lands.
Þessar mynda Bunuel hafa verið sýndar
hér: í bæjarbíói, Nazarinn og Ferðalok, í
Filmíu, Hundur frá Andalúsíu og Land á
brauðs, í Tripolibíói (Tónabíó), Glötuð æska
og Robinson Krúsó, í Hafnarbíói, Viridiana,
í Kópavogsbíói Leyndarmál læknisins, og í
Tjarnarbæ Uppreisn í E1 Pao.
Innan skamms mun Bæjarbíó taka til sýn-
ingar nýjustu mynd Bunuel, Engill dauðans.
Þessa mynd gerði hann 1962 í Mexíko.
Framh á næstu síðu.
FALKINN
35