Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1964, Blaðsíða 25

Fálkinn - 01.06.1964, Blaðsíða 25
að koma þeim að í sjónvarpi. — Er ekki erfitt að eiga við svonalagað hérlendis? — Það eru auðvitað samfara þessu miklir byrjunarörðugleikar, en satt að segja bjóst ég ekki við því, þegar ég sneri heim frá námi að ég gæti þó svona snemma farið að sinna kvikmyndagerð hér- lendis. Við höfum lítið leitað fyrir okkur um opinbera aðstoð, en við getum ekkert hvartað yfir undir- tektum, við höfum raunverulega rmætt meiri skilningi en hægt er við að búast í landi, þar sem ama- törar hafa ráðið ríkjum í þessum efnum í aldarfjórðung. Okkar draumur er að koma á fót reglulegum starfandi kvik- myndaiðnaði hérlendis, sem komi til með að standa undir sér þegar fram líða stundir. Við þurfum að þjálfa upp sérmenntað fólk í þess um efnum, svo ekki þurfi alltaf að leita út fyrir landssteinana, þegar gera á íslenzkar kvikmynd- ir. Og ég er sannfærður um það, að á næstu árum verður æ meiri þörf fyrir slíkan iðnað hérlendis. — Segðu okkur svo í stuttu máli frá fluginu um daginn. — Já, við fórum héðan fimmtu- daginn 16. apríl og flugum til Scoresbysunds, sem er nálægt miðri austurströnd Grænlands, en þaðan er um þriggja klukkustunda flug héðan á DC-3 vél. Þar varð ég svo eftir og tók myndir í þorp- inu og af íbúum þess, en Jóhannes og hans menn flugu til Meistara- víkur, til að sækja meiri vörur, sem þangað höfðu verið ferjaðar með stærri vél. Þeir komu svo um hádegi daginn eftir og þá fór ég með þeim norður til Meistaravík- ur. Þaðan var svo haldið enn norð- ur á bóginn daginn eftir, til Daneborg, sem er veðurathugun- arstöð, og svo þaðan alla leið til Danmarkshavn, sem er mikil veðurathugunar- og háloftaathug- unarstöð norður á 77. breiddar- gráðu. Þaðan flugum við svo sam- dægurs aftur til Meistaravíkur og á hádegi á sunnudag aftur þaðan og heim með viðkomu í Scoresby- sund. Það var auðséð, að koma flug- vélarinnar er mikill viðburður á þessum stöðum. í Scoresbysund voru allir íbúar þorpsins mættir niðri á ísnum, er við lentum, og Þessi Dani var fluttur frá Scoresby til Meistaravíkur. Hann fótbrotnaði nokkrum dögum áður en flugvélin kom. Þá átti hann eftir nokkra mán- uði af samningstímanum sínum og kollegar hans gáfu í skyn, svona undir rós, að þeim fyndist eitthvað bogið við fótbrotið. Að minnsta kosti vissu þeir ekki til að nokkur maður hefði fótbrotið sig á hundasleða fyrr. það var mikil hátíð í þorpinu. Og svo ég minnist nú ekki á Danmarkshavn. Það má með sanni segja, að þeir hraustu karlar, sem þar dveljast, séu einangraðir. Mig minnir að Það hafi verið sex skipakomur þangað síðustu tuttugu árin! Svo þú sérð að skíðaflugið er ákaflega vinsælt hjá Dönum þar. Enda var hvarvetna tekið ákaflega vel á móti okkur, og ég veit ekki, hvað það hefði verið, sem íbúarnir hefðu ekki viljað gera fyrir Jóhannes Snorrason og menn hans, og ég naut góðs af. — Var ekki afskaplega erfitt fyrir þig Framhald á bls. 28. Vélin affermd í Scoresbysundi. FÁLKINN 25

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.