Fálkinn - 01.06.1964, Side 6
Þessi stúlka heitir Diana Baker og þeir eru margir
sem spá henni glæsilegri framtið á sviði kvikmyndaleiks-
ins. Hún hefur nýlokið leik í kvikmynd sem heitir „The
Prize“ en hún er gerð eftir samnefndri skáldsögu Irvin
Wallace og segir frá Nóbelshátíð og Nóbelshöfum í
Stokkhólmi eitt árið. Þessi bók vakti talsvert umtal
þegar hún kom út og nú hefur MGM gert kvikmynd
eftir henni og Diana Baker fer með eitt hiutverkið sem
fyrr segir.
Verður að bíða
brúðkaupsnætur-
innar ■ 25 ár
Hin eina sanna ást er
ekki lengur til segja
menn. Þessi tæra hreina
ást tilheyrir aðeins fortíð-
inni. En hvað segja þessir
menn eftir að hafa heyrt
sögu hinnar 23 ára gömlu
ítölsku stúlku Anna
Maria Giordano?
Við getum sagt að þessi
saga hefjist einn dag á
hinni sólríku Suður-ítalíu
þegar Anna Maria er að
horfa á sjónvarpið. Á hinum hvíta skermi sjónvarpsins
sá hún mynd af ungum manni, handjárnuðum, sem færð-
ur var til fangelsis fyrir að hafa drepið póstmann.
Þessi -sjón hafði svo mikil áhrif á hina suðrænu konu
að hún skrifaði þessum 21 árs gamla manni bréf þegar
í stað og seridi til fangelsisins. Hann heitir Livio Giordano
og var dæmdur til lífstiðar fangelsis fyrir þetta morð en
á ítaliu þýðir þar 25 ár. Livio svaraði bréfinu þegar í
stað og þar með hófst bréfasamband þeirra og endaði
með því að þau gengu í það heilaga. En strax eftir
vígsiuna voru þau skilin, hann fór í fangelsið að nýju
en hún til sinna heimabyggða. Hún heimsækir mann
sinn í fangelsið alitaf öðru hverju og skrifar nær því
dagiega bréf til hans og hann svarar henni og segir
hvað á tiibreytingariausa dagana drífur í fangelsinu.
En Anna er dugieg stúlka að því að sagt er og hún vinn-
ur að þvi öllum kröftum að fá mann sinn náðaðan
og hún gerir sér vonir um að henni takist það eftir
eliefu ár. Og þá eru þau enn ung og lífið mun blasa
við þeim.
6
SHIRLEY
IVIcLAIIME
OG ROBERT
IUITCHlllll
Það eru raddir í Holly-
wood sem segja að til tíð-
inda muni bráðlega draga
milli Shirley McLaine og
Robert Mitchum. Það hefur
lengi verið vitað að hlýtt
væri á milli þeirra en um
tíma virtist sem ekki ætlaði neitt að verða úr því en nú
hefur þetta blossað upp á nýtt. Bæði hafa þau verið gift
áður og þurfa að ganga frá skilnaði við fyrri maka áður
en þau ná saman. Svo sem menn minnast léku þau saman
fyrir nokkrum árum í mynd sem gerð var eftir leikritinu
Tvö á saltinu, en það leikrit var á sínum tíma sýnt í Þjóð-
leikhúsinu.
Auðlegð er ekki alltaf
til gæfu
Kona nokkur suðui' á Ítalíu, Anna Sequino vann dag nokkurn
nokkrar milljónir króna í knattspyrnugetraununum ítölsku. Þetta átti
sér stað hinn 7. október 1962 og þá var eiginmaður hennar á heimleið
frá Bandaríkjunum en hann var sjómaður á kaupskipi. Og þegar hann
kom heim tilkynnti konan hans honum þessa auðlegð og Giovanni
hætti á sjónum og settist að í landi. Þau hjónin virtust vera mjög
hamingjusöm og hönd i hönd leiddust þau í hverja verzlunina á fætur
annarri og keyptu það sem hugurinn girntist. Þau fengu sér vinnukonu
og fóru að stunda skemmtanir og héldu dýrar veizlur. En svo fór að .
blása á móti. Konan gerðist þreytt á manni sínum og þegar hún jagaði C
í honum gleymdi hún ekki að geta þess að það var hún sem hafði
unnið þessa peninga sem gerði þeim lífið svona auðvelt. Og í maí 1963
flutti hún að heiman til systiu' sinnar oe Giovsnni ákærði konu sína
fyrir að hafa yíirgefið sig. Þeear hún frétti þettn hvarf hún frá systur
sinni, með aila peningana og hefur ekki séðst síðan.
FALKINN