Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1964, Síða 18

Fálkinn - 01.06.1964, Síða 18
Það er laugardagur fyrir hvitasunnu. Einhver heiðnasta þjóð á vesturlöndum hefur lagt frá sér öll verk í Jesú nafni og í hönd fara tveir helgir dagar. Og svo mikil er helgin, að í kvöld má fólk ekki horfa á kvikmyndasýningar, það má ekki fara i leikhús, það má ekki dansa á veitinga- húsunum. Það má að vísu fara þangað inn og drekka áfengi og hlusta á tónlist — en heldur ekki meira. Sem sagt — það eina, sem er leyfilegt á þessari kristnu hátíð til afþreyingar er að drekka, drekka, drekka ... Vissulega vel til fundið, enda árangurinn eftir þvi. Þetta er allt í anda þeirrar gagnmerku æskulýðsumbótastefnu, sem nýlegá lýsti sér í þeirri snilldarráðstöfun nokkurra öfundsjúkra gróðamanna, þegar algerlega var bönnuð sala á öllum nauðsynjavörum eftir ákveðinn tíma á deginum, NEMA náttúrlega tóbak og sælgæti! — og virðuleg dagblöð í Reykjavík lýstu því yfir að vandamál æskulýðsins hefðu stórminnkað! Unga fólkið á víst býsna erfitt með að skilja þessa miklu helgi fullorðnafólksins — en úr því ekkert má gera nema drekka, því þá ekki það? Að minnsta kosti hafa hvítasunnu- hátiðir undanfarin ár orðið sannkallaðar Bakkusarhátíðir, og i fyrra gekk ölæði unglinganna svo langt, að yfirvöldin skipuð nefnd sérfræðinga til að athuga málið. Já — meira segja gekk þetta svo langt, að nefndin komst ekki hjá því að sjá, að eitthvað var að. Vonandi hafa verið gerðar ein- hverjar úrbætur. þegar börnin, sem komu undir í Þjórs- árdal í fyrra fara að hugsa til hvítasúnnuhelgarinnar ferm- ingarárið sitt. Kannski þau geti jafnvel farið í bíó? Nei, annars, þetta er nú kannski til of mikils ætlast. Þessar hugsanir, og aðrar syndugri, flugu í gegnum huga minn, þegar Weapon bíllinn R-1051 ók með okkur blaða- menn fyrir Hvalfjörðinn. Við höfðum slegið okkur saman af Fálkanum og Alþýðublaðinu og ákváðum r.ð fylgjast eitt- hvað með ferðum unglinganna þetta kvöld. Við höfðum reynt að halda uppi spurnum um daginn um það, hvort eitthvað sérstakt væri í bígerð, og ef svo væri, hvar þá. Upplýsingar voru ekki miklar, en eftir því sem næst var komizt, virtust unglingarnir ætla að stefna að Hreðavatni, en fleiri staðir voru raunar nefndir. Flestir töldu þó, að Borgarfjörður yrði fórnar„dýrið“. Upp úr hádeginu var endanlega ákveðið að „freista gæf- unnar“ en þá var þyngsta þrautin eftir, — að fá bíl til fararinnar. Þó tókst eftir sérstaka lipurð forráðamanna bílaleigunnar Bílsins að fá áðurgreindan bíl til fararinnar. í kaupunum fylgdi hinn þekkti bílstjóri Halldór Ólafsson frá Rauðalæk. Sá var einn stærstur kostur bifreiðarinnar, að hún var búin talstöð. svo við gátum fylgzt með samtölum talstöðvarbíla og þannig ekið rakleitt þangað, sem ungl- ingarnir héldu sig, og sparaði það okkur tvimælalaust mikinn tíma. Þá var ekki ónýtt, þegar á staðinn kom, hversu stórir gluggarnir voru og útsýni gott. Við komumst ekki af stað fyrr en um hálfníuleytið, og var það óneitanlega fullseint vegna birtunnar, sem kom niður á gæðum myndanna. Tveir blaðemenn frá Alþýðu- blaðinu voru með, Grétar Oddsson og Jóhann Vilberg ljós- myndari. Er við vorum í Hvalfirðinum hrökk ég upp úr hugleiðingum mínum um viturlega stjórn landsfeðra okkar á æskulýðsmálunum við það, að bílar Borgarneslögreglunn- ar fóru að kallast á. M-200 kallarM-300... M-200 kallar M-300 ... og svo kom erindið Það hafði orðið slys. Bíll hafði ekið út af vegi og lent ofan í á. „Sennilega ekki það eina,“ sagði Grétar. Við heyrðum, að fólkið væri talsvert slasað, lægi við veginn, og M-300 var beðinn um að fara á vettvang og flytja fólkið á siúkrahús. Hann var sem sagt sjúkrabíll. Svo var farið að ræða um, hvar nást myndi í íækninn. Skömmu síðar kom í ljós, að hann hafði verið á ferðalagi og komið á slysstaðinn. Öllum létti, þeim á M-200 og M-300 og okkur líka. Við stönzuðum aðeins í sjoppunni við oliustöðina í Hval- firði. Nokkrir unglingar sátu inni og drukku gos og átu pylsur. Bíll renndi í hlaðið og nokkrir „töffar“ stigu út. Þeir vissu vel af sér og höfðu bersýnilega einhvers staðar komizt í áfengi. Andartak varð mér hugsað til Þjórsárdals- nefndarinnar og ónefnds lagabókstafs, en svo renndi annar bíll að og aðrir ,,töffar“ stigu þar út. Sama ásigkomulag. IV8AGMLS BJARMFREÐSSOIM Ásgeir Pétursson sýslumaður fékk að nota talstöðina okkar. Hann og hans menn eiga mikinn heiður skilinn fyrir fram- göngu sína þetta kvöld að Hreðavatni. „VORMENN ÍSLANDS"

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.