Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1964, Side 30

Fálkinn - 01.06.1964, Side 30
LITLA SAGAftl ELTIK WILIV BKLHViHOLST HJARTAIMLEGA VELKOMIN Við fengum bréf frá Olgu frænku í gær. Olga frænka býr í allt öðrum landshluta og við höfum ekki séð Olgu frænku árum saman, en nú skrifaði hún sem sagt, að hún ætlaði að koma og búa hjá okkur í viku, hana langaði að sjá nýju íbúð- ina okkar, og svo ýtti það und- ir að hún þurfi að koma og Iáta taka afsteypu af gómunum til að fá falskar tennur, og það myndi taka viku, áður en þær yrðu tilbúnar. Síðast, þegar Olga frænka heimsótti okkur, bjuggum við illa. Til dæmis höfðum við ekkert gestaher- bergi. Það væri annars gaman að vita, hvaða apaköttur hefði sagt henni, að við hefðum það núna. Ef ég næði í hann skyldi ég snúa hausnum á honum sjö hringi á hálsinum. — Þú neyðist til að skrifa frænku, að hún sé velkomin. En vertu nú ekki óforskamm- aður, skrifaðu kurteislegt og vingjarnlegt bréf. Ég les það yfir, þegar þú ert búinn, svo þú skalt ekki reyna að . . . Það var engin undankoma. Maríanna þolir ekki að maður skrifi fjölskyldunni það sem maður segir, þegar hún er far- in. Maður á að vera vingjarn- legur og kurteis og gestrisinn og brosandi . . . og þá fyrst, þegar þau eru farin getur mað- ur leyft sér að hlamma sér nið- ur í stól og segja: „Guði sé lof <C Sem sagt, ég naði í örk og byrjaði. „Kæra frænka. En hvað það er sætt af þér að ætla að koma og heimsækja okkur. Við höfum nú stórt gestaherbergi, sem stendur autt. Ja, það er að segja, Benni er með hvítu mýsnar sínar þar inni,en þær eru in- dælar og gera ekki ketti mein, og þó þær hlaupi uppí til þín, þá er ég viss um, að ykkur kem- ur fljótlega vel saman. Þú get- ur reitt þig á, að Benni varð glaður, þegar hann heyrði, að þú værir væntanleg. Þá get ég spilað allar rokk og tvistplöt- urnar mínar fyrir hana á fullu, sagði hann og farið með hana á fótboltaleik, ef þið viljið hafa næði heima. (Hann er nýbúinn að fá trompett, og það þarf sterkar taugar til að hlusta á þennan blástur dag og nótt. Þú hefur ekkert á móti því, að hann æfi sig inni hjá þér, er það? Það er beztur hljómburð- ur þar, fullyrðir hann). Marí- anna ljómaði eins og sól, þeg- ar hún las bréfið þitt. Hún þarf að stoppa í svo marga sokka, og það er svo margt annað svo- leiðis, sem hún hefur ekki haft tíma til að gera, því eins og þú veizt, iást ekki vinnukonur frekar en glóandi gull, en nú þegar þið getið hjálpast tvær að þessu er ég viss um, að það skotgengur. Kannski gefur hún sér nú loksins tíma til að fara í búðir, smáheimsóknir, á hár- greiðslustofu og þess háttar, þegar hún veit að þú ert heima til að sjá um erfiðistu verkim Já, elsku bezta frænka, við er- um öll reglulega kát yfir því, að þú skulir koma, því máttu trúa. En ein vika er bara allt of stutt. Vertu hjá okkur í nokkra mán- uði. Við höfum þá stærstu lóð, sem þú getur hugsað þér og hún er öll grasi gróin. Og þeg- ar veðrið er gott, getur þú drep- ið tímann við að slá hana. Gamla sláttuvélin okkar er raunar þung eins og valtari, en færðu ekki líka allt of litla hreyfingu svona venjulega? Og ef þú getur ekki dregið hana geturðu þó alltaf bitið grasið með tönnunum þínum. Ha, ha, þetta var nú náttúrlega grín hjá mér! En sem sagt . .. þú mátt reiða þig á, að þú ert hjartan- lega velkomin. En ef eitthvað skyldi nú koma fyrir, sem hindrar þig í aðkoma, sem ég vona nú að ekki komi til, ætla ég að biðja þig um að skrifa okkur. Hjartanlega velkomin. og beztu kveðjur . . .“ Ég kaus að sýna Maríönnu bréfið, þegar hún var önnum kafiní eldhúsinu um kvöldmat- inn. — Viltu lesa það? — Ég hef lítinn tíma núna. Hvað skrifaðirðu? — Að hún sé hjartanlega vel- komin, að Benni sé glaður, að þú sért glöð, að við öll séum glöð yfir að eiga að fá að sjá hana. Ekki eitt einasta slæmt orð. Þú getur bara sjálf séð . . — Ég treysti því, sem þú seg- ir. Sendu það bara. Ég fór undir eins á pósthúsið, Ég var tilneyddur að senda bréfið í bögglapósti, því ég hafði náð í eina hvítumúsiná hans Benna og sett hana í tóm- an skókassa. Og hann sendi ég með bréfinu tilfrænku. í flýti hripaði ég nokkur vin- gjarnleg orð neðanundir um að hún ætti að reyna að hæna litla ■ sæta skinnið að sér eins fljótt og hún gæti. Willy Breinholst. 30 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.