Fálkinn


Fálkinn - 01.06.1964, Qupperneq 36

Fálkinn - 01.06.1964, Qupperneq 36
Bankastrætl 7 SÍMAR 18300. AUGLÝSINGAR 19523 AFGREIÐSLA 12323 Kvikmyndir Framhald af bls. 35. Eins og í Viridiönu leiðir Bunuel okkur að kveldverðar- borðinu. En nú er það ekki tötr- um klæddur flækingslýður, sem sezt að borðum, heldur prúðbúið hefðarfólk að lokinni velheppnaðri för í leikhúsið. Og þegar þetta prúðbúna hefð- arfólk kemur til kveldverðar- ins yfirgefur þjónustufólkið húsið eins og rottur sökkvandi skip. Og þegar til kemur verð- ur þetta fólk að gang'a sjálft um beina. En svo taka að ger- ast undur og stórmerki. Þegar sá tími kemur að gestirnir ættu að fara heim, fara þeir ekki heldur, en taka að hreiðra urn sig á gólfinu og stólum og taka að búa sig undir nóttina. Og þarna heldur það tilnæstu dag- ana, vikurnar, kannski mánuði, enginn veit hvað lengi. Það get- ur ekki yfirgefið húsið, því það er eins og ósýnilegur veggur hindri það, En svo allt í einu standa dyrnar opnar og það getur haldið út. Og þá er það ekki lengur sama prúðbúna fólkið, sem settist að borðum, heldur tötraklætt fólk, sem Bunuel hefur lofað okkur að kynnazt nánar. En myndinni er ekki lokið. Þetta fólk hittist seinna, prúð- búið að nýju, í kirkju til þakk- argerðar fyrir að hafa losnað úr prísundinni og þakkir sínar ber það fram í bænahaldi og sálmasöng. Og enn gerast undr- in. Þegar þetta fólk ætlar að fara úr kirkjunni kemst enginn út. Hinn ósýnilegi veggur lok- ar leiðina enn einu sinni og myndin endar á því, að við sjá- um fjárhóp rekinn inn í kirkj- una. Þeir verða líklega margir, sem leggja leið sína til þess að sjá þetta meistarastykki í Bæj- arbíói, og það verður enginn svikinn af þeirri för. Hafi Bæj- arbíó þökk fyrir þessa mynd. Falin fortíð Framhald af bls. 11. inn ekki af stað. Þetta var á þeim tíma dags, er verið er að loka búðum, þegar janúarsólin er hlý, þegar staðarfólkið fær sér miðdegisverðinn. Ein eða tvær manneskjur komu inn í bílinn, drengur með fangið fullt af dagblöðum, móðir með barn, tvær fölleitar og símasandi nunnur. Og að lokum hringdi bílstjórinn bjöllu, um leið og hann sveiflaði sér inn í bílinn, JÆJA,i»IÐ VTLJIÐ^S EKKI SI0PIA, KARIi-^J AHUIRf ÍG HKFI ABVARAÐ TKKnR; harið ÞJt mita;; <J

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.