Fálkinn - 01.06.1964, Qupperneq 42
— Starfsfræðsludagar utan
Reykjavíkur hafa verið: Á
Akranesi 2, Akureyri 4, Húsa-
vík 1, ísafirði 1, Sauðárkróki 1,
Siglufirði 1, Vestmannaeyjum
1 og svo stendur til að halda
einn á Eiðum fyrir Austurland
í haust. Má þá segja að starfs-
fræðslan sé komin um allt land.
Einangrunargler
Framleitt einungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega
KORKIÐJAIM H.F.
Skúlagötu 57. — Sími 23200.
Sorya
Framhald af bls. 9.
ár að fá sér fyrsta flokks einka-
flugvél, en honum fannst hann
ekki geta réttlætt þau útgjöld,
sem það hefði í för með sér.
Nú var aðstaða okkar verri
en nokkru sinni fyrr. Moham-
med Reza hafði skipt upp mörg-
um jarða sinna milli fátækra
bænda. Og hann taldi sennilegt
að aðrar eignir, sem hann átti
enn í landinu yrðu gerðar upp-
tækar af hinum nýju valdhöf-
um.
„Ég hef einkum áhyggjur af
móður minni og systrum," sagði
hann. „Hingað til hafa þær
fengið reglulega tekjur af eign-
um sínum. Ef þær greiðslur
verða nú stöðvaðar eru þær ger-
samlega peningalausar."
Hin sömu örlög vofðu yfir
bræðrum keisarans. Jafnvel
þótt þeim tækist að flýja frá ír-
an með fjölskyldur sínar var
okkur ljóst, að þeir máttu
þakka fyrir að sleppa með það.
Nú var allt undir því komið
hversu mikla peninga keisarinn
átti erlendis. Fjandmenn hans
sögðu það vera milli 50 til 80
milljónir dollara á leynireikn-
ingi í Sviss. Því miður verð ég
að segja að þetta er fjarri öll-
um staðreyndum.
Um þessar mundir var eng-
inn manneskja nákomnari Mo-
hammed Reza. Ef hanri hefði
átt slík auðæfi hefði hann að
sjálfsögðu sagt mér númerið á
reikningnum. Sannleikurinn
um efnahag keisarans var í
stuttu máli sem hér segir.
Faðir keisarans hafði aldrei
átt innstæður erlendis. í fyrsta
lagi vegna þess, að hann var allt
of þjóðrækinn til þess, og í öðru
lagi taldi hann það aldrei nauð-
synlegt. Honum datt aldrei í
hug að neitt kæmi fyrir hann.
Þegar hann var rekinn í útlegð
1941 varð hann að greiða dýru
verði fyrir skammsýni sína. Þó
að hann væri meðal auðugustu
manna heimsins var hann al-
gerlega háður því að sonur hans
sendi honum mánaðarlegar
greiðslur frá Teheran.
Mohammed Reza lærði af
reynslu föður síns. Hann átti
engan son, er gæti annast hann
i svipuðum kringumstæðum.
Þegar ástandið í íran versnaði
hóf hann því að gera nauðsyn-
legar ráðstafanir. T. d. kom
hann einhverju sinni til mín og
sagði:
„Niðri í kjallaranum eru þó
nokkrar brúðargjafir, sem við
kærum okkur ekki um. Sumar
eru úr skíru gulli. Væri yður
á móti skapi, að ég seldi þær?“
„Þetta eru minjagripir,“ sagði
ég.
„Að sjálfsögðu," anzaði keis-
arinn. „En ástandið getur
Framh. á næstu síðu.
JÁ
ftlEI
HVEMÆR?
Þúsundir kvenna um heim allan
nota nú C. D. Indicator, sviss-
neskt reikningstæki, sem reiknar
nákvæmlega út þá fáu daga í
hverjum mánuði, sem fi’jógun
getur átt sér stað. Læknavísindi
56 landa ráðleggja C. D. Indica-
tor fyrir heilbrigt og farsælt
hjónaband. Skrifið eftir bækling-
um vorum, sem veita allar upp-
lýsingar. — Sendið svarfi’ímerki.
C. D. INDICATOR, deild 3.
Pósthólf 1238 Reykjavík.
„SKELDÝRAFÁNA ÍSLANDS I
- SAMLOKUR í SJ0“
eftir Ingimar Óskarsson er
komin út í nýrri útgáfu. Segir
frá öllum skeljategundum, er
fundizt hafa við ísland. 108
myndir. Fróðleg, skemmtileg,
gagnleg. — Verð kr. 147.70.
Bókaútgáfan ASÓR
Pósthólf 84.
Reykjavík.