Fálkinn - 01.06.1964, Side 43
breyzt á skömmum tíma. Við
ættum að hafa eins mikið reiðu-
fé og mögulegt er.“
Ég vissi auðvitað aldrei upp
á eyri hve stórar upphæð-
irnar voru, sem keisarinn fékk
fyrir, en það getur ekki verið
ýkja mikið. Þegar ég spurði
hann í Róm, hvort við gætum
lifað á tekjum okkar, greip
hann blýant og þegar hann
hafði reiknað nákvæmlega
sagði hann:
„Ef það væru aðeins við tvö.
En fjölskylda mín er yfir tut-
tugu mans. Þess vegna langar
mig að kaupa búgarð. Allir
bræður mínir gætu búið þar
og við gætum að minnsta kosti
verið nokkurn veginn viss um
að börnin fengju nóg að borða.“
Ég veit ekki, hvort þetta nýja
líf hefði gert keisarann ham-
ingjusaman. En hvað sem því
líður, þá átti þetta að fara á
annan veg. Daginn eftir kom
ungur blaðamaður frá Asso-
ciated press til okkar á hótel
Excelsior, meðan við vorum að
snæða hádegisverð. Hann rétti
okkur sigri hrósandi bréfmiða.
Við lásum:
„MOSSADEQ YFIRBUGAÐ-
UR — KEISARALEGAR HER-
SVEITIR GÆTA TEHERAN —
ZAHEDI FORSÆTTSRÁÐ-
HERRA.“
Fréttirnar höfðu komið á
fjarritarann nokkrum mínútum
áður og meðan við lukum mál-
tíðinni hraðaði hinn ungi vin-
ur okkar sér aftur til skrifstofu
sinnar síðan til okkar á ný að
gefa okkur vitneskju um síð-
ustu fréttir.
Eins og ætíð fyrr undir svip-
uðum kringumstæðum var ég
róleg á yfirborði, en keisarinn
varð svo fölur, að ég hélt hann
væri að fá aðsvif. Nokkru síð-
ar sagði hann við blaðamenn-
ina, sem hópuðust að borðinu
okkar:
„Ef þessar fréttir eru örugg-
ar, hefur íran nýja löglega
stjórn. Sé svo munu keisaraynj-
an og ég snúa heim eins fljótt
og mögulegt er.“
Meðan við gengum upp til
herbergja okkar tók hann um
hönd mér og tautaði:
„Hvernig vissuð þér, Soraya?
Hvernig gátuð þér séð þetta
fyrirfram?"
Auðvitað vissi hvorki hann
né ég hvað hafði verið að ger-
ast í Teheran. Þegar símasam-
band var aftur eðlilegt fengum
við hinar ýmsu útgáfur á gangi
málanna. Síðar tókst mér — í
samræðum við mennina, sem
hlut áttu að máli — að mynda
mér eftirfarandi mynd af því,
sem við hafði borið síðan við
hurfum úr landi.
Zahedi og nokkrir aðrir liðs-
foringjar höíðu fengið felu-
stað hjá góðum vini í Shimram.
Þar lét hann fjölrita skýrslu
keisarans, þar sem hann er út-
nefndur forsætisráðherra. Á
mánudag smygluðu fylgismenn
hans eintökum af skýrslunni í
Teheran og skildu eftir í leigu-
bifreiðum, vezlunum, skrifstof-
um og á leitingahúsum, svo að
fljótlega vissi öll borgin um
sviksemi Mossadeqs.
Meðan því fór fram hafði
Mossadeq afvopnað lífvörð keis-
arans og gert lögregluna á-
hrifalausa. Árangurinn varð sá,
að kommúnistar gættu stræta
og torga í Teheran.
En síðan hafði hjólið tekið
að snúast á annan veg. Ame-
ríski ambassaforinn, Loy Hen-
erson fór til Mossadeqs og
sagði:
„Ef þér sitjið aðgerðarlausir
og líðið ofstopamönnum Tudeha
að ræna verzlanir og brjóta nið-
ur listaverk, mun stjórn mín
kveðja hina þrjú þúsund
Bandaríkjamenn í landinu
heim.“
Þessi viðvörun hafði sín áhrif
á Mossadeq. Skyndilega gaf
hann lögreglunni fyrirmæli um
að halda aftur af múgnurn, og
skyldu beita ölium tiltækum
ráðum, jafnvel þótt fólkið væri
að hylla hann sjálfan.
Og þetta dró einnig niður í
kommúnistum og þeir drógu
sig í hlé. Um svipað leyti barst
það alþýðunni til eyrna, að þeir
hefðu gert tilraun til að
sprengja í loft upp grafhvelf-
ingu Reza keisara. Þar hafði
þeim orðið á alvarleg skyssa.
Fyrir einlæga Persa er mynd
keisarans „skuggi Allah“ og
litið var á hvelfinguna sem
heilagan stað.
Hina næstu nótt átti því
Mullah Bebahani auðvelt með
að vinna þúsundir á sitt band.
Jafnframt því hófst nú Banda-
ríkjamaðurinn Schwartkoph
handa. Rússar höfðu verið ör-
látir á rúblur. Schwartskoph
tilkynnti kaupmönnum enn
girnilegri boð. Það var sagt að
á þessum fáu dögum hefði hann
afhent meira en sex milljónir
dollara.
*
\
X M miðvikudagsmorgunn
var hver Teheran búi, sem
vettlingi gátu valdið á götum
úti og mótmæltu rauðu hætt-
unni. Fólkið hyllti keisarann og
bar geysistórar myndir af hon-
um og mér um göturnar. í ýms-
um borgum snerust hermenn-
irnir á sveif með alþýðunni.
Zahedi hershöfðingi sá, að nú
var hans stund runnin upp. Um
nónbil ók hann að lögreglustöð-
inni í Teheran, en þar stóð yfir
bardagi milli lögreglunnar og
alþýðumanna. Hann gekk ró-
legur út úr bílum og gekk í átt-
ina að gapandi byssu kjöftum,
sem vörnuðu honum vegar inn
í bygginguna.
Á þessu augnabliki hengu ör-
lög írans á bláþræði. Hver ein-
asti maður hætti að berjast og
starði agndofa á það sem var að
gerast við aðaldyrnar. Þeir
bjuggust við að hershöfðinginn
yrði skotinn niður. Skyndilega
kastaði liðsforingi einn frá sér
byssunni og hrópaði:
„Lengi lifi Zahedi! Guð blessi
keisarann!"
Framh. í næsta blaði.
★
Norðurlandaferð 15.-30. júlí
Bergen — Sognfjörður
Oslo — Örebro
Gautaskurðurinn — Stokkhólmur
Gautaborg — Kaupmannahöfn
Glasgow
Hópfcrð með íslenzkum fararstjóra um
fegurstu héruð Norðurlanda, viðkoma í
Glasgow á heimleið
FERÐASKRIFSTOFAN
Hverfisgötu 12
Símar:
17600 og 17560
Skipagötu 13
Akureyri
Sími 2950