Fálkinn - 10.08.1964, Page 16
BARA JOHN VISSI
HVE HUGRÖKK HÚN VAR
iiijjnnw |iii j
jj (Mjmtt!!!
JÍÍHÍfHÍHÍ!
llltliiiinii!!!
Þegar Jacqueline Kennedy
flutti inn í Hvíta húsið, varð
hún mest umtalaða kona Ame-
ríku. Hún, sem vildi komast
hjá öllum utanaðkomandi áhrif-
um á einkalíf sitt, vissi nú, að
hún var undir miskunnarlausri
smásjá almennings.
Það er fyrst nú, þegar „öllu
er lokið“, að óskir hennar um
það, að mega lifa einkalífi sínu
1 friði, eru virtar.
Ferðin til Texas, 22. nóvem-
ber í fyrra, var eiginlega annað
og meira fyrir hana og John
en opinber heimsókn. Hún átti -
lika að verða ný brúðkaupsferð.
Nokkrum vikum áður höfðu '
þau haldið tíunda brúðkaups- '
daginn sinn hátíðlegan.
John var í skínandi skapi. -
Hann hafði óttast mótmæla-
göngur, þegar hann kæmi til
hinnar íhaldssömu Dallas-borg- 1
ar. En manngrúinn, sem stóð
meðfram akbrautinni, veifaði
fánum sínum og hyllti þau með
fagnaðarhrópum, alveg eins og
annars staðar, þar sem þau
höfðu verið í opinberum heim-
sóknum, í París, í Suður-Ame-
ríku og Wien ...
Eiginkona landstjórans í
Texas, sem sat í framsæti flagg-
bifreiðarinnar, sneri sér róleg
að gestum sínum og sagði: —
Maður getur sannarlega ekki
sagt annað en Dallas sé vin-
gjarnleg við yður í dag.
í næstu andrá kváðu við skot.
John hneig út af í aftursætinu.
Þrjátíu og fimm mínútum síðar
var hann dáinn.
Nýja brúðkaupsferðin stóð
ekki í margar klukkustundir.
Og það var síðasta ferðin, sem
Jacqueline fór með manninum,
sem hún giftist tíu árum áður ..
VIÐBURÐUR ARSINS.
Þá talaði öll Ameríka um
viðburð ársins.. Brúðkaup hinn-
ar ungu hefðarkonu, Jacqueline...
Bouvier og glæsilega, unga öld- f
ungadeildarþingmannsins John
Kennedy, vakti gífurlega at-
hygli. Tvöþúsund forvitnir
áhorfendur og blaðamenn alls.
staðar að úr Bandaríkjunum |
þyrptust kringum Sainte-Mary
kirkjuna í New York. Kirkjan
rúmaði ekki nema hluta hinna
1200 boðnu brúðkaupsgesta.
Þeir voru stjórnmálamenn og
fjármálamenn og vinir Jackie
úr hópi listamanna og leikara,
og þeir komu frá Ameríku,
Evrópu og Austurlöndum.
Hvar sem þau fóru fagnaði mann-
fjöldinn þeim og þau áttu hug og
hjarta allra, sem sáu þau og
kynntust þeim.