Fálkinn - 10.08.1964, Side 17
Og oft sigldu þau á seglskútu
fjölskyldunnar, VICTURA
I”1""
. x
Tengdafaðir Jacqueline bauð
hana velkomna í fjölskylduna
með þessum orðum: — Þú ert
skarpgáfuð og þú hefur hjartað
á réttum stað. Það er óskiljan-
legt að þú skulir komin út af
repúblikanskri fjölskyldu.
Brúðkaupsdagurinn var dá-
samlega fagur, eins fagur og
haustdagur getur orðið á Rhoda
Island, þegar himininn er heið-
skír. Þann dag var Jacqueline
fullkomlega hamingjusöm ...
En strax þá gerði hún sér
fulla grein fyrir því, að hún ætti
ekki kyrrláta hamingju í vænd-
um. Hún vissi að John ætlaði
ekki að láta við það sitja, að
vera öldungadeildarþingmaður..
Hann bjó yfir öðrum áformum.
Stjórnmálin urðu keppinautur
hennar — og vinur. í upphafi
hafði hún raunar alls engan
áhuga á stjórnmálum, en þegar
hún hitti John, ákvað hún að
fá hann!
Hún innritaðist í háskólann
í Washington og þar sótti hún
fyrirlestra í stjórnmálunum og
sögu.
Hún komst brátt að raun um;
að hún hafði gifzt inn í .fjöl-
skyldu, sem ekki átti sinn líka
í öllu landinu. Kennedy-fjöl-
skyldan var meira en voldug.
— Þú ert gáfuð og hjartahlý, það er
óskiljanlegt, að þú skulir vera kom-
in út af repúblikanafjölskyldu. Með
þessum orðum var tekið á móti
Jackie í Kennedy-fjölskyldunni. En
margir gagnrýndu hana harðlega
og töldu hana heimska, hégómlega
og yfirborðskennda. En jafnvel
hinir gagnrýnustu urðu að gefa sig,
þegar Jackie kastaði sér út í kosn-
ingabaráttuna af ótrúlegum dugn-
aði og aflaði manni sínum óteljandi
fylgismanna með glœsileik sínum
og frjóu ímyndunarafli. Enginn vissi,
hve mikla sjálfsstjórn og kjark það
kostaði hana. Jú, einn — maðurinn,
sem hún unni, John.
Hann sagði henni frá fyrirætlunum sínum og draum-
um, og hún hlustaði á og ákvað að verða honum sá
lífsförunautur, sem hann þarfnaðist.
17
FALKINN