Fálkinn - 10.08.1964, Page 22
4
Sigurður Klemenz-
son kennari og Run-
ólfur ljósmyndari
flugu austur að
Þingvöllum. Þessi
mynd var tekin á
þeirri leið og er af
Gljúfrasteini, húsi
Halldórs Laxnes.
Yfir höfninni.
leiðinni vestur á Snæfellsnes með erlenda skemmti-
menn.
Við hittum þarna að máli Sigurð Klemenzson, kenn-
ara, og ræddum við hann um flugkennslu og flug al-
mennt. Sigurður hefur s.l. þrjú ár starfað sem flug-
maður erlendis, fyrst í vöruflugi víðsvegar um Evrópu
og um nokkurra mánaða skeið vann hann á vegum S. Þ.
í Afríku. Á síðasta ári lærði hann
sérstaklega flugkennslu í Bretlandi
og kom heim um síðustu áramót og
hóf að kenna hjá Þyt.
— Eru það aðallega ungir menn,
sem eru í skólanum, er það fyrsta,
sem við spyrjum Sigurð.
— Já, þeir eru auðvitað í yfir-
gnæfandi meirihluta, en nú í vor
hef ég kennt fjórum eða fimm sem
komnir voru hátt á fimmtugsaldur-
inn. .
— Og hvernig gekk þeim námið?
— Þeim gekk vel. Aldurinn þarf
ekki að hafa svo mikið að segja, ef
heilsan er góð.
— Hafa þessir ungu menn, sem
hér eru að flugnámi, allir í huga
að gera flugið að starfi sínu?
— Nei, það held ég ekki. Margir
þeirra eru aðeins að þessu sér til
ánægju. Það eru t. d. ekki nema um
30% sem ljúka atvinnuflugprófi, en
flestir ljúka einkaflugprófi.
— Hvað eru prófin mörg?
— Við getum sagt að þau séu
þrjú. Einflugspróf, eða svokallað
Sólópróf, sem tekið er eftir tíu flugtíma. Það veitir rétt til að
fljúga hér í næsta nágrenni vallarins undir eftirliti kennara. Þá
er A-próf eða einkaflugmannspróf sem tekið er eftir 30 flugtíma
frá Sólóprófi. Því stigi fylgir einnig bóklegt nám í siglingafræði,
vélfræði, veðurfræði, flugreglum og flugeðlisfræði. Næst þessu er
svo Atvinnupróf eða B-próf. Það er tekið eftir 140 flugtíma. Þessu
prófi fylgir einnig bóklegt nám. Svo eru blindflugsréttindin ótalin,
en það eru 40 tímar, 20 teknir í Link Trainer, sem er sérstakt tæki
til blindflugskennslu, og svo 20 blindflugstímar á tveggja hreyfla vél.
— Hvernig er aðstaða til sportflugs hér?
— Áður en ég svara þessari spurningu langar mig til að víkja
málinu að kennslunni. Flugnám hér er mjög ódýrt, miðað við það
sem gerist erlendis. Eftir því sem ég bezt veit, er það hvergi ódýrara.
Rekstur á litlum flugvélum er einnig mjög ódýr hér, sem stafar
af því að það sem þarf til reksturs þess er tollfrjálst. En aðstaða
hér til sportflugs er ekki góð. Menn eiga ekki greiðan aðgang að