Fálkinn


Fálkinn - 17.05.1965, Qupperneq 9

Fálkinn - 17.05.1965, Qupperneq 9
 / •. "Of: y — ::: „Fannst þér svertingjarnir nokkuð misnota það, að þið umgenguzt þá sem vini og jafningja?*1 „Nei, þvert á móti, þeir kunnu því vel og voru alltaf jafngóðir og indælir, en undrandi voru þeir í fyrstu. Það kom aðeins einu sinni fyrir, að ég gæti engu tauti komið við mann í þjónustu okkar, en hann var virkur félagi í þjóð- ernishreyfingunni Abako og ómögulegt að hemja hann.“ „Bar mikið á óvild í garð hvítra manna?“ „Ekki fann ég fyrir því. Ég átti góða vini bæði meðal hvítra og svartra, og mér fannst fólkið yndislegt, jafnt það ‘svarta sem hvíta.“ „Hvað voru margir íbúar í Leopold- ville?“ „315 þúsund, þar af 25 þúsund hvít- |r.“ Auðvelt líf að vera húsmóðir I Afríku „Hvernig fannst þér að vera hús- móðir í Afríku? Hafðirðu ekki þjóna til alls?“ „Það var auðvelt líf að vera húsmóð- ir þarna, kannski of auðvelt, ef nokkuð var. Venjan var að hafa tvo þjóna á heimilum á stærð við okkar og svo barnfóstru. Annar þjónninn sá um þvottinn og eitthvað af húsverkunum, en hinri um matreiðsluna og afganginn af húsverkunum. Það er nauðsynlegt að skipta á öllu daglega, rúmfötum og fatnaði yzt sem innst, því að annars slær i það í rakanum.“ „Hvað er hitinn mikill?“ „Hann fer upp í 40—50 gráður á Celsíus. Ég man þegar við komum fyrst til Kongó, stelpurhar í kjólum og peys- um og ég í dragt — það var eins og að ganga inn í gufubaðsklefa að stíga út úr loftkældri flugvélinni. Við vorum ekki seinar á okkur að skipta um föt við fyrsta tækifæri.“ „Hvernig fannst þér bezt að klæða þig?“ ► ^ Anna og Margrét með út- skoma fílstönn. Skimiið sem þær sitja á, er af grænlenzkum ísbimi. „Við bjuggum í indælu einbýlishúsi í Leopold- ville og höfðum stóran garð þar sem allur gróð- ur óx og dafnaði ævin- V týralega.“

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.