Fálkinn - 17.05.1965, Blaðsíða 40
© Stúlkan í gulu
kápunni
Framh. af bls. 33.
„Halló?"
,,Það var karlmannsrödd að
þessu sinni.
„Þetta er Peter Sayers!" sagði
hann.
Stutt þögn. „Nú já?“ rumdi í
manninum við hinn endann.
„Gæti ég fengið að tala við
hr. Perkins?"
„Hvern segið þér?"
„Herra Perkins eða hr. Snyd-
er."
„Hér eru engir með þeim
nöfnum," svaraði hinn. „Þetta er
í Bamettsapóteki!"
Peter starði á miðann. Hann
athugaði, hvort hann hefði ekki
hringt í rétta númerið, svo sagði
hann: „Fyrir um það bil klukku-
tíma hringdi ég í þetta númer.
Þá anzaði stúlka. Hún sagðist
vera að hringja fyrir hr. Perk
ins."
„Hér er engin stúlka," svaraði
hinn. „Þér ættuð bara að vita,
hvað ég er feginn, að hér skuli
ekki vera neinn andskotans kven-
maður! Þér hafið fengið skakkt
núrner!"
Það heyrðist smellur á linunni.
Peter lagði tólið hægt á.
Það var þungt ioft í klefan-
um.
Sá einkennisbúni stóð ennþá
í miðri forstofunni og starði
forvitinn yfir til Peters.
Peter stóð hugsandi um stund,
svo hringdi hann til Stamford.
„Eruð þér alveg viss um, að
þér hafið skrifað símanúmerið
rétt niður áðan?“ spurði hann
Charles, þegar hann anzaði loks-
ins hálfmóður.
„Aiveg viss, hr. Sayers! Ég
lét stúlkuna endurtaka það fyrir
mig tvisvar. Er eitthvað að?“
Peter opnaði hurðina svolítið
með fætinum.
Hitinn og þrengslin voru næst-
um óbærileg.
„Það er bezt, að ég tali við
ungfrú Hartley," sagði hann.
„Þvi miður er hún farin."
„Farin? Hvert þá?
Allt i einu fannst Peter þetta
allt eitthvað dularfullt. „Sagði
hún, hvert hún væri að fara?"
„Já ... Það var hringt til henn-
ar...“
„Hringt til hennar?"
„Fyrir svona klukkutíma, Þá
fór hún strax af stað. Hún bað
mig að skila til yðar, hvort þér
vilduð hringja heim til sín."
Peter þakkaði fyrir og lagði á.
1 þriðja sinn byrjaði hann að
snúa númeraskifunni á síman
um.
„Yður virðist ekki ganga of
vel, herra minn," sagði einkennis-
búni maðurinn og tvísteig. „Ef
þér eruð einmana — þá veit ég
um ágætan stað...“
Síminn í íbúð Lorenar hringdi
og hringdi.
En enginn anzaði...
—v—
Þetta hafði verið slæmur dag-
ur fyrir Peroni, lögreglumann.
Hann hafði átt að fylgjast með
Loren Hartley frá því um morg
uninn.
Hann hafði lagt bilnum sínum,
þar sem iitið bar á honum, rétt
hjá landareigninni í Stamford.
Og svo hafði hann veitt henni
eftirför til New York í hæfilegri
fjarlægð .
En þar sem 19. stræti og West
Side Highway mætast, hafði
hann misst sjónar af bíl Loren-
ar.
Hann fór í næsta símaklefa
til að gera aðvart á lögreglu-
stöðinni.
„Þá skuluð þér aka að íbúð
ungfrú Hartley," var svarið.
„Allt í lagi."
Peroni vissi um heimilisfang-
ið. Þegar hann kom að húsinu
í 10. stræti, þar sem Loren bjó,
sá hann hvita sportbílinn henn-
ar við gangstéttina.
Jæja, hugsaði hann.
Peroni svipaðist um eftir
stæði. En alls staðar var fullt
af bílum.
Hann ók framhjá næsta húsi.
En þar var heldur ekkert stæði.
Hann varð að fara aftur til
baka niður í 9. stræti, áður en
hann fann smugu fyrir bílinn
sinn.
Og þar að auki fara fótgang-
andi, hugsaði hann og þramm-
aði gramur í áttina að 10. stræti
aftur.
Og ekki var ein báran stök!
Stæðið, þar sem Loren Hartley
hafði lagt bílnum sínum, var nú
autt...
Þetta var sannarlega slæmur
dagur fyrir Peroni, lógreglu-
mann!
Að minnsta kosti var ekki ýkja
langt að næsta símaklefa.
Peroni hringdi í morðrann-
sóknadeildina og bað um að fá
að tala við Stein, lögreglumann.
Peter Sayers ók meðfram íbúð-
arhúsunum í 10. stræti.
En hvergi sá hann hvita sport-
bílinn hennar Lorenar.
Sennilega hefur hún farið með
hann í bílskúrinn, hugsaði Peter,
og gengið svo heim þaðan.
Hann ók annan hring kringum
húsin, og nú hafði hann heppn-
ina með sér: 20 metra fyrir
framan hann keyrði svartur
Ford út úr stæði.
Peter mjakaði bílnum sinum
þangað.
Svo steig hann út.
1 anddyri hússins, þar sem
Loren átti heima hringdi hann
dyrabjöilunni hennar.
Hann beið eftir að heyra
smellinn i skránni, þegar hún
opnaðist.
En ekkert gerðist.
Ekki heldur í annað sinn.
Hann hristi hurðina. Lokan
hreyfðist, og hann hratt hurð-
inni upp á gátt.
Loren bjó á efstu hæð.
Peter tók lyftuna upp. Hann
gekk inn endilangan ganginn og
nam staðar fyrir framan dyrn-
ar á íbúð Lorenar.
Meðan hann hélt áfram að
hringja, fann hann, að skyrtan
var farin að limast við hann.
Hann var þurr í kverkunum.
Hann heyrði hringinguna berg-
mála inni fyrir. Hann heyrði það
greinilegar en venjulega...
Þá fyrst tók hann eftir þvi,
að dyrnar voru opnar í hálfa
gátt.
„Halló, Loren!"
Peter rak höfuðið inn, opnaði
svo hurðina með öxlinni og gekk
inn fyrir.
„Halló, Loren! Ertu þarna?“
Ekkert svar.
►
K.æri Astró,
Ég yrði þér innilega þakklát, ef þú vildir segja mér hvað
þú sérð um mig og mína framtíð í stjörnunum.
Eg er fædd 1944 og er í skóla og ætla að taka próf í vor.
Sérðu fleiri námsár framundan? Kemur piltur, sem ég hef
nýlega kynnzt, til með að hafa áhrif á framtíð mína? Að sjálf-
sögðu Iangar mig til að vita sem flest um þessi mál. Ég óska
þér og þætti þínum alls góðs.
Með fyrirfram þakklæti. Hildur G.
Svar til Hildar G.:
Daginn, sem þú hittir tiltek-
inn pilt, átti sér stað í stjörnu-
korti þínu óvænt og fremur
rómantísk afstaða. Það er plá-
netan Úranus, sem gengur þá
vfir Venus hjá þér. Þessi af-
staða veldur oft skyndihrifn-
ingu, eða ást við fyrstu sýn
sem kallað er, en stundum vill
nú þessi hrifning dvína jafn-
skjótt aftur. Þú hefur nokkuð
sterkar afstöður í Meyjarmerk-
inu og þetta ár er að mörgu
leyti fremur erfitt fyrir fólk,
sem fætt er í þessu merki eða
hefur sterkar afstöður þar, en
ég held að fæstum muni þykja
þetta tímabil viðburðasnautt
nema síður sé. Júpíter, sem er
talin mikil gæfupláneta, er nú
að ganga í gegnum fimmta hús,
sem ástamálin tilheyra meðal
annars. Þetta hefur því góð
áhrif á gang þessara mála, en
þú skalt umfram allt fara gæti-
lega í sakirnar, því að það get-
ur jafnvel farið svo, að þú
verðir fyrir nokkuð mikl-
um erfiðleikum í ástamálun-
um yfirleitt. Þetta á þó alveg
sérstaklega við um þetta ár,
1965. Þar sem þú veizt ekki
nógu vel um fæðingardag og
stund piltsins, get ég ekki sagt
um hvernig þið eigið saman,
en í öllu falli máttu búast við
ýmsu í ástamálunum í náinni
framtíð, en það verður kann-
ski ekki eins og þú hefur helzt
kosið. Þú munt að öllum lík-
indum giftast oftar en einu
sinni, eða eiga náið samband
við fleiri en einn, og það er
ávallt hætta á, að þú eigir barn
utan hjónabands. Þú ættir endi-
lega að halda áfram námi, ef
þú átt kost á því, og ég mundi
sérstaklega ráðleggja þér að
læra eitthvað, sem kæmi sér
vel að geta gripið til þó að þú
giftist, því þér mun koma betur
að eiga kost á að vinna þér
inn svolítið sjálf. Þú kannt vel
að meta að hafa fríar hendur
bæði í fjármálum og öðru.
Ég er sannfærður um það,
að þú munt fyrr eða síðar hafa
gaman og gagn af að kynna þér
dulspeki og ýmislegt fleira í
þá átt, það mundi einnig geta
hjálpað þér mjög mikið í líf-
inu. Þú munt einnig hafa
mikla ánægju af ferðalögum
og þá sérstaklega utanlands-
ferðum. Þú hefur Nautsmerkið
á geisla fjórða húss og almennt
séð er þetta gott merki fyrir
heimilið og bendir til að heim-
ilisaðstæður séu góðar og nokk-
uð stöðugar. Það má einnig
búast við að heimilislífið verði
mjög háð fjármálunum.
FALKINN