Fálkinn


Fálkinn - 17.05.1965, Page 25

Fálkinn - 17.05.1965, Page 25
VERÐLAUIMAGETRAUNIN TILHÖGUN VERÐLAUNA- GETRAUNARINNAR ★ Verðlaunagetraun Fálkans, sem hófst í síðasta blaði og lýkur mánudaginn 28. júní er í senn stórglæsileg og spennandi. ★ f hverju blaði verður birt mynd af íslenzkum leikara í hlutverki og eiga lesendur að ráða af mynd- inni hvaða leikrit er um að ræða. Til að gera getraunina auðveld- ari, eru talin upp þrjú leikrit og er eitt af þeim hið rétta svar. ★ Dregnir verða út þrír glæsilegir vinningar. 1. vinningur: 15 daga ferð til Costa Brava á Spáni fyrir tvo á vegum Ferðaskrifstofunnar Sögu.. Flogið til Kaupmannahafnar og heim aftur með Flugfélagi íslands. Ferð- in stendur frá 6.—20. september. Fæði og hótelherbergi er að sjálf- sögðu innifalið. 2. vinningur: Ferð fyrir einn með GuIIfossi til Kaupmannahafnar og heim aftur með viðkomu í Leith. Farið héðan 18. september og komið til Reykjavíkur 30 septem- ber. Fæði og þjónusta innifalið. 3. vinningur: Flugferð fyrir einn til London og heim aftur með Flug- félagi íslands á tímabilinu októ- ber—nóvember í haust. f Þetta er söguleg mynd er sýnir áhöfn og farþega „Péturs gamla“ leggja að landi í Nauthólsvík eftir fyrsta farþegaflugið frá Kaupmannahöfn. FYRSTA MILLILANDAFLUG Fl í haust eru liðin tuttugu ár frá því að reglulegt milli- landaflug hófst hjá Flugfélagi íslands. í september 1945 flaug Catalínaflugbáturinn TF — ISP (kallaður „Pétur gamli“) frá Kaupmannahöfn og lenti í Nauthólsvík eftir Áhöfnin í fyrstu ferðinni; tal- ið frá vinstri: Jóhann Gísla- son (núverandi yfirmaður flugrekstursdeildar), Magnús Guðmundsson, aðstoðarflug- maður (sitjandi), Sigurjón Ingólfsson vélamaður og Jó- hannes Snorrason. velheppnaða ferð (sjá mynd). Þetta ár var farin ein ferð til viðbótar. Næsta sumar voru teknar á leigu Liberator flugvélar hjá Scottish Airlines og flugu þær á milli fram til ársins 1948 að Gullfoss gamli hóf reglu- bundið áætlunarflug milli Reykjavíkur og Norðurlanda. Árið 1956 keypti Flugfélag íslands Skymasterflugvélarn- ar Sólfaxa og Gullfaxa og árið eftir Viscount. Árið 1945 var tala farþega í millilandaflugi aðeins 56. En mjór er mikils vísir — við sjáum bezt hina öru þróun með því að stikla á nokkrum ártölum: Ár. Fjöldi farþega. 1946: 2477 1949: 5023 1956: 15.170 1958: 24.355 1962: 35.000 MYND 2 Myndin er af Ingu Þórðardóttur leikkonu, þar sem hún fer með hlutverk í leikritinu: 1. Fjalla Eyvindi? 2. Járnhausnum? 3. Skálholti? Rétt svar: Þegar verðlaunagetrauninni lýkur 28. júní eiga þátttak- endur að klippa út allar myndirnar og senda þær ásamt svörum til ritstjórnar Fálkans, pósthólf 1411. Annað Enn sem fyrr fara flestir farþegar héðan til Kaup- Framh. á bls. 42.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.