Fálkinn - 17.05.1965, Page 16
þið eigið góða sinfóníuhljóm-
sveit og getið haldið uppi fjöl-
breyttu menningarlífi svona fá-
menn þjóð — þið standið miklu
framar í þeim efnum en Bóli-
vía.“
„Hvað haldið þér, að þér
verðið lengi hér?“
„Tvö—þrjú ár, býst ég við.
Ég er þó hræddur um, að ég
læri ekki íslenzku á þeim tíma.
Bæði virðist mér málið mjög
erfitt og svo tala íslendingar
yfirleitt þessa fyrirtaks ensku.“
„Hvaða mál talið þér ann-
ars?“
„ítölsku og spönsku og hrafl
í frönsku. Ég var sex ár á
Ítalíu og rúm tvö í Bólivíu
þar sem spænska er aðaltung-
an.“
Don R. Torrey j skrifstofu
sinni. Hjá honum er einkarit-
ari hans, Mildred Archie.
LITIÐ INN
I UPP-
LÝSINGA-
ÞJÓNUSTU
BANDA-
SÍZT af öllu hefði ég nú
búizt við að verða send-
ur til íslands," segir Don R.
Torrey, hinn nýi yfirmaður
Upplýsingaþjónustu Bandaríkj-
anna, sem tók við af Raymond
Stover skömmu fyrir síðustu
áramót. „Það er töluvert stökk
frá Bólivíu hingað norður eftir.
En ég kann ágætlega við mig í
Reykjavík. Og landið ætla ég
að skoða í sumar þegar hlýna
tekur í veðri.“
Útlit hans minnir á brezkan
ofursta, a. m. k. eins og þeim
er gjarnan lýst í skáldsögum, en
þegar hann byrjar að tala getur
enginn verið í vafa um þjóð-
ernið. Don R. Torrey hefur
starfað lengi í þjónustu Banda-
ríkjastjórnar og dvalizt í mörg-
um löndum, þó aldrei jafn-
norðarlega á hnettinum og
núna. Hann stundaði söngnám
á Ítalíu og lauk M. A. prófi frá
Columbia háskólanum í New
York sem tónlistarkennari en
samt varð músíkin ekki ævi-
starf hans, þótt áhugi hans á
henni hafi ekki dvínað með ár-
unum.
ÉG söng í karlakór dóm-
kirkjunnar í Washing-
ton,“ segir hann með hálfgerð-
um söknuði við tilhugsunina,
„og ég sæki alltaf tónleika hvar
sem ég er staddur. Hér fer ég
á sinfóníutónleikana í Háskóla-
bíói, og ég er alveg hissa hvað
TTVERNIG lízt yður á að
starfa hér — hafið þér
einhverjar breytingar á prjón-
unum?“
„Mér lízt prýðilega á það, og
ég geri ráð fyrir ýmsum minni
háttar breytingum, einkum í þá
átt að nýta betur salarkynni
bókasafnsins. Með því að færa
bókaskápana þéttar saman má
fá rými í öðrum endanum sem
TEXTI: STEINUNN S. BRIEM
MYNDIR: RUNÓLFUR
í ameríska bókasafninu. Kristín
Pétursdóttir svarar spurningum
viðskiptavinar, Don R. Torrey
fylgist með.
RIKJANNA
OG RÆTT
VIÐ YFIR-
MANN
HENNAR
FALKINN