Fálkinn - 17.05.1965, Side 35
Loftdælan sem Jens MiiIIer lét smíða. Rörin eru gerð
úr mjólkurdósum. Loftdælan gerði föngunum kleift
að athafna sig í göngunum er lágu út fyrir girðing-
una umhverfis fangabúðirnar.
sinni haft fyrir því að setja
yfir þeim rétt. Gífurlegur fjöldi
fólks, óbreyttra borgara og
hermanna tók þátt í leitinni að
þeim og vart höfðu þeir verið
fundnir, er þeir bitu í gras að
fullu og öllu. Talið er að um
fimm milljónir manna hafi tek-
ið þátt í leitinni um lengri eða
skemmri tíma.
Yfirmaður fangabúðanna var,
er þetta gerðist, Von Lindeier
offursti. Gestapo setti hann frá
sínu ógeðslega embætti tafar-
laust, er kunnugt varð um flótt-
ann, en hann mun, áður en af
því varð hafa látið í Ijósi nokk-
urt stolt yfir því, að í hans
fangabúðum höfðu verið slíkar
hetjur.
Og þá er bara að bíða eftir
myndinni, sem sýnd verður í
Tónabíói.
H. E.
,,Sjö dagar í maí“ er heiti á næstu framhalds-
sögu. Kvikmynd hefur verið gerð eftir sögunni
(Seven days in May) og verður hún sýnd í Há-
skólabíó í haust.
ENK UM
„ÞÖGNINA"
Þögnin, kvikmynd Ingmars
Bergman, hefur víða verið
mikið vandamál fyrir kvilc-
myndaeftirlitið. Kvikmyndin
var sýnd óstytt í Svíþjóð, en
Bergman gerði útflutningsein-
tak af kvikmyndinni, sem var
nokkuð frábrugðið upprunalega
eintakinu. Þetta reyndist óhjá-
kvæmilegt, þar sem kvik-
myndaeftirlit margra landa
neituðu að sýna kvikmyndina
eins og hún kom upphaflega
frá hendi Bergmans. En jafn-
vel útflutningseintakið verður
stundum að þola úrfellingar. í
Bandaríkjunum neitaði sá að-
ilinn, sem sá um dreifinguna
þár, að sýna kvikmyndina fyrr
en hún hefði verið stytt enn
frekar. Sænska kvikmyndaíé-
lagið, sem sér um dreifinguna
fyrir Bergmann, hefur látið í
Ijós óánægju sína vegna með-
íerðarinnar, sem myndin fékk
í Bandaríkjunum. í Bretlandi
var myndin stytt lítilsháttar.
Menn hafa velt því fyrir sér
hvernig islenzka kvikmynda-
eftirlitið muni bregðast við,
þegar Hafnarfjarðarbíó, tekur
kvikmyndina til sýningar.
OMEGA - Constellation
OMEGA úrin Constellation og Seamaster
eru með dagatali, sjálftrekkt, vatnsþétt, seg-
ulvarin og höggþétt. Hvert einstakt úr er ná-
kvæmlega rannsakað og fer ekki á markað,
nema fyllilega megi treysta því. Þetta er
gjöf, sem sérhver karlmaður er stoltur af.
n
OMEGA