Fálkinn - 17.05.1965, Side 37
Það er margs að minnast a löngum starfsferli. Hér ræðast þeir
við Svanur SteindórsEon, prentari og Hafliði Helgason, prent-
smið.iustjóri í Félagsprentsmiðjunni. Svanur hóf störf hjá prent-
smiðjunni 1945 og prentaði Iengi Vísi og Fálkann á meðan hann
var prentaður hjá Félagsprentsmiðjunni. Hafliði hefur unnið
hjá Félagsprentsmiðjunni um háifrar aldar skeið; byr.jaði sem
sendili, lærði síðan prentiðn og tók við framkvæmdastjórastarf-
inu árið 1934.
Haukur Einarsson frá Miðdal hefur unnið i Félagsprentsmiðjunni
í ein 20 ár. Hann er hér á tali við Sæunni Jóhannesdóttur, sem
er gift Þorsteini Asbjarnarsyni, verkstjóra.
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn. 21. marz—20. apríl:
Fyrrihluti vikunnar er hentugur til
ferðalaga eða til að skipuleggja væntan-
iegar ferðir, en þó mun aðallega verða
um stuttar ferðir að ræða, því að óvænt
atvik í vikulokin gætu haft þau áhrif, að
þú neyddist til að sitja heima af heilsu-
farsástæðum.
NautiS, 21. avríl—21. maí:
Þetta er mjög heppileg vika til að koma
lagi á persónuleg fjármál þín, kaup og
sölu. Þetta á aðallega við um fyrrihluta
vikunnar, því að það má búast við, að þú
verðir einum um of örlátur á peninga í
skemmtanir í vikulokin.
Tvíburamerkiö, 22. max—21. júní:
Áhugi þinn á daglegum störfum þinum
er nú mikill og þú ættir að geta afkastað
miklu þessa viku, en það má búast viö
að fjölskyldu þinni finnist hún vanrækt
að einhverju leyti, og gæti þao orðið til-
efni til árekstra.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Þú ættir að reyna að njóta sem mestrar
hvildar fyrri hluta þessarar viku, þvi að
ske kynni, að þú þyrftir á öllu þinu að
halda síðar i vikunni. Forðastu umfram
allt að lenda í deilum.
LjóniS. 2i. júlí—23. áffúst:
Vinir þínir og kunningjar munu reyn-
ast þér sérlega hliðhollir. Fyrir þeirra til-
stilli munu margar óskir þinar rætast. Þú
ættir að fara sérstaklega gætilega með
fjármuni þina seinnibluta vikunnar.
Meyjan. 2i. áaúst—23. sevt.:
Jafnvel þótt fyrrihluti vikunnar hjóði
upp á sérstaklega gott tækifæri til að
auka vinsældir þínar og afla þér viður-
kenningar, þá gæti komið fyrir það atvik
í persónulegum málefnum, sem kollvarp-
aði öllu fyrir þér.
Voain. 2i. sevt.—23. okt.:
Þó nú séu að mörgu leyti góðar afstöð-
ur til utanlandsferða og ferðalaga yfir-
leitt, munu þó óvænt atvik verða til
þess að margir munu verða að hætta við
férðalög og nota heldur timann til hvíldar.
Drekinn. 2i. okt.—22. nóv.:
Þú munt sinna fjármálunum, og þá
sérstaklega sameiginlegum fjármálum,
meira þessa viku en endranær, en þó að
þér virðist allt ætla að ganga þér í hag,
gæti það snúízt á annan veg, ef þú gætir
ekki fyllztu varkárni i sarnskiptum við
aðra.
BogmaSurinn, 23. nóv.—21. des.:
Samband þitt við maka eða félaga ætti
að geta orðið þér til sérstakrar ánægju
þessa Viku. Gerðu þitt til að það geti
haldizt. Það gæti orðið til þess að fólk
liti mildari augum á yfirsjónir þínar.
Steingeitin, 22. des.—20. janúar:
Þú hefur ástæðu til að gleðjast yfir
batnandi heilsufari, en of mikil ferðalög
og þeytingur um helgina gæti orðið til
þess að aftur sækti i sama farið. Skemmt-
anir eru beztar í hófi.
Vainsberinn. 21. janúar—19. febrúar:
Þú munt að öllum líkindum skemmta
þér óvenju mikið þessa viku. Einnig gæti
þessi vika boðið upp á skemmtileg ástar-
ævintýri sem þó gætu fengið nokkuð
skyndilegan og óvæntan endi. Eyddu ekki
um efni fram.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Heimilis- og fjölskyldulíf þitt virðist
vera mjög ákjósanlegt þessa stundina.
Þú ættir því ekiki að spilla því með ó-
þarfa aðfinnslum, því að það gæti haft
i för með sér óvænt málalok.
FALKINN
37