Fálkinn - 14.06.1965, Blaðsíða 14
7 sumt.
Hér er verið að ganga frá andlitinu á Paul
Newman. Það virðist ekki vera svo lítið sem
sminkararnir fremja á andliti eins leikara, áður
en hann getur gengið fram fyrir kvikmynda-
vélarnar. Það er mikil kúnst að sminka og and-
litið á Paul Newman var að lokum orðið sann-
kallað listaverk.
Vinirnir Richard Burton og Peter O’Toole leika saman í
kvikmyndinni „Becket“ sem kemur á næstunni í Há-
skólabíó. Burton leikur Becket en O’Toole leikur Hinrik
konung. Eins og leikararnir voru Becket og Hinrik kon-
ungur miklir mátar. Becket var aðalráðgjafi konungsins,
trúnaðarvinur og svallfélagi þar til konungurinn skipaði
hann æðsta yfirmann ensku kirkjunnar og Becket varð
erkibiskup af Kantaraborg. Þá laust saman hagsmunum
kirkjunnar og konungsins og Becket féll fyrir morðingja
hendi.
Þetta er hið fræga konungsskip Vasa, eða öllu heldur
eftirlíking af því. Skipið er einn metri á lengd, handa-
verk konu, notað í kvikmynd, sem sænska sjónvarpið lét
gera. Á efri myndinni virðist skipið í fullri stærð. En
á neðri myndinni sjáum við kvikmyndatökumanninn að
verki. Þá skilst okkur ýmislegt úr kvikmyndunum betur
nú en áður.
Hnefaleikakappanum
Floyd Patterson datt í hug
að fara á skíði. Hann
ákvað að renna sér niður
brekku sem lá við skíðahótel-
ið sem hann dvaldist á.
En þó að Patterson hafi
yfirleitt tekizt að standa á
fótunum í hringnum
var honum ómögulegt að
fara eins að á skíðunum.
Svo kappinn datt á rassinn.
SLÁTRARI nokkur úti í löndum lokaði sinni búð og
festi upp eftirfarandi tilkynningu í gluggann: „Verð að
loka af því að fólk borgar ekki skuldir sínar. Nöfn
þeirra sem skulda verzluninni verða birt hér í glugg-
anum eftir nokkra daga.“ Þetta hreif. Hann fékk hvern
eyri sem hann átti útistandandi.