Fálkinn - 14.06.1965, Blaðsíða 26
fyrir framan stífluna
i__,a fimm feta háar skvettur
eða svo gætu skolazt fram í
gljúfrið. Það þyrfti því ekki
annað en lækka vatnsborðið
niður í þetta mark og flytja
allt lifandi úr umhverfi sjálfr-
ar uppistöðunnar, ef alvarleg
hætta yrði talin á skriðuhlaup-
um.
★ ★ ★
í APRÍL 1963 var talið að
tími væri kominn til nýrra
prófana. Flóðgáttunum var lok-
að og vatnsborðið tók að hækka.
og enn var útlitið slæmt. Það
tóku enn að myndast sprungur
uppi í fjallinu. Á tímabilinu
frá júlí til september fundust
minni háttar jarðhræringar,
undarlegar drunur virtust
koma neðan úr jörðinni og
vatnið í uppistöðunni „bullaði
upp“ með válegum hætti.
Merkjakerfi hafði verið sett
upp í fjallshlíðinni og hárhá-
kvæm mælitæki sýndu þegar i
stað ef einhver minnsta hreyf-
ing yrði er bent gæti til að sig
eða skriða væri að fara af stað.
Þessi tæki höfðu ekki sýnt
neina breytingu um tíma, en
svo breyttist það. Þau tóku
að sýna nokkurra millimetra
sig á sólarhring, og það jókst
og jókst unz mönnum fór ekki
að verða um sel. Þá var vatns-
borðið enn 41 fet uiidir hámarki
og það var hætt við að láta
það fara hærra. Sú von að jarð-
vegurinn í hlíðinni hætti að
síga brást þó með öllu. Og þar
við bættist að nú gerði ein-
stakan rigningatíma, og jarð-
vegurinn varð allur gegnsósað-
u r af vatni.
Nino A. Biadene, aðstoðar-
framkvæmdastjóri um tæknileg
mál í þeirri stofnun er stíflu-
gerðin heyrði undir, lýsti því
nú yfir að það væri ekki leng-
ur um það að tala að hækka
vatnsborðið meira. Hann mundi
láta lækka það, nema því aðeins
að mælitækin hættu að sýna
sig. En á því varð ekkert lát
og nú átti að lækka vatns-
borðið. Það mátti auðvitað ekki
lækka of hratt. Ef vatninu yrði
hleypt út með of miklum hraða
gæti svo farið að það gerðust
of örar breytingar á þunga-
hlutföllum í hlíðinni og allt
færi af stað. En þótt vatnsborð-
ið lækkaði hættu ekki sigmerk-
in að berast. Þau jukust. Allt
virtist því jafn ómögulegt.
Það mátti hvorki hækka vatns
borðið né lækka það.
Þriðjudaginn 8. október fór
ástandið hríðversnandi, sigið
var komi.ð upp í það sem svar-
aði 159 millimetrum á sólar-
hring. Biadene þurfti að láta
hendur standa fram úr ermum
þann dag. Öllum sem byggðu
næsta nágrenni uppistöðurinar
var fyrirskipað að flytja sig
á burt og stóðu þeim til boða
bifreiðir frá stíflufyrirtækinu.
íbúarnir voru ekki einasta flutt-
ir á brott heldur líka töluvert
af búpeningi. Borgarstjórinn
birti áskorun til manna um að
sæta þessu og lögreglan rak
fast á eftir að menn hlýddu.
Biadene fór um kvöldið til Fen-
eyja, þar sem var hans aðal-
bækistöð, uppgefinn og í þungu
skapi, en þó viss um að allir
menn væru úr hættu. Um 200
manns létu undir höfuð leggj-
ast að hlýða brottflutnings fyr-
irmælunum og guldu fyrir það
með engu öðru en lífinu.
En borgin sjálf? Um hana
taldi Biadene óþarft að hugsa.
Það hafði verið sýnt fram á
að ekki nema smáskvettur
af flóðbylgjutoppunum mundu
gusast út yfir stíflubrúnina.
Áin mundi vaxa en ekkert að
skaða.
★ ★ ★
i stjörnurnar
Kæri Astró,
Mig langar mikið til að vita eitthvað um framtíðina. Ég
er fædd 1945 og bý úti á landi hjá foreldrum mínum og vinn
í vcrzlun. Mér leiðist það starf, en það er ekki um svo margt
að ræða hér heima. Mig langar eitthvað í burtu og þá helzt
til útlanda. Heldurðu að það verði á næstunni? Sérðu ein-
hverja breytingu hjá mér bráðlega? Hvaða störf mundu henta
mér bezt? Foreldrar mínir vilja ekki að ég fari í burtu að
ég nú ekki tali um til útlanda, en mér fellur illa tilbreytingar-
leysið hér heima þótt ég hafi það gott að mörgu leyti. Hvað
heldur þú um ástamálin? Ég hef nú ekki orðið alvarlega ást-
fangin ennþá þó ég hafi verið með ýmsum strákum. Giftist ég
seint eða snemma eða kannski alls ekki?
Með fyrirfram þakklæti. Stella.
Svar til Stellu:
Þú ert nokkuð mikið háð
móður þinni og vilt ekki gera
það sem þú heldur að særi
hana, og þeim mun lengur sem
þú frestar því að fara að
heiman þeim mun erfiðara
verður það fyrir þig. Það er
mikill misskilningur hjá móður
þinni að halda fast í þig og
leyfa þér ekki að fá tækifæri
til að bjarga þér upp á eigin
spýtur. Ég er hrædd um að
þá þyki henni vænna um sjálfa
sig heldur en þig, og vorkenni
sér að missa þig í burtu en
hugsar ekki út í að það færði
þér meiri hamingju ef þú lifðir
fjölbreyttara og skemmtilegra
lífi. Hún þarf ekki að vera
hrædd um að þú hafir þig ekki
áfram þá einu sinni þú ert kom-
in af stað, en það mun taka
þig nokkurn tíma að taka
ákvörðun. Og Þó þér finnist það
erfitt og móðir þín standi á
móti því þá skaltu samt drífa
þig. Þú munt ekki sjá eftir því
og allar mæður ættu að vera
ánægðar með að sjá dætur sín-
ar hamingjusamar þó þær hafi
þær ekki alltaf hjá sér. Hvernig
væri fyrir þig að reyna að kom-
ast í eitt eftirsóttasta starf
nútímastúlkna, flugfreyjustarf.
Það ætti mjög vel við þig. Þú
munt vera mjög lipur og hjálp-
fús. Þú munt að minnsta kosti
verða í starfi sem krefst mikilla
ferðalaga, og átt eftir að fara
margár ánægjulegar ferðir.
Næsta ár er alveg sérstaklega
heppilegt til að hefja langferða-
lög. Það bendir einnig til rót-
tækra breytinga í starfi og um-
hverfi og má því búast við að
þú drífir þig í að skipta um.
Ég held að næstu árin verði
eitthvert bezta tímabil í lífi
þínu. Þú ættir ekki að láta
löngun þína til að gera öðrum
til geðs ráða of mikið gjörðum
þínum og ekki drífa þig í
hjónaband bara til að losna
að heiman eða til að fá eigið
heimili. Ég held að eftir árin
1966 og 1967 þurfir þú ekki að
kvarta yfir að hafa ekki orðið
26
FALKINN
OG SVO kom 9. október.
Þetta voru gleðidagar í Longa-
rone. Uppskeran var komin
undir þak. Afkoma fólks var
með ágætum. Nýjar verksmiðj-
ur, aldrei meiri ferðamanna-
straumur, allir höfðu vinnu og
kaupið var gott. Einmitt nú
voru rjómaíssalarnir frægu frá
Longarone að koma heim eftir
margra mánaða ferðir um
Evrópu með sitt fræga lostæti
og ætluðu að dveljast með fjöl-
skyldum sínum þar til í marz
að ári. Þetta var tími gleði og
góðra vina funda.
Raunar varpaði stíflumálið
allt nokkrum skugga á gleði
þessai-a haustdaga. Það hafði
spurzt að sigið í fjallshlíðinni
væri komið fram úr öllum á-
gizkunum. Vörubílstjóri nokkur
skýrði svo frá að steyptur veg-
ur uppi í fjallshlíðinni væri
farinn að gefa sig á köflum, og
hann hefði neitað að aka hann
aftur. Annars kippti sér enginn
upp við slíkar fréttir.
Þetta kvöld varð mörgum
stanzað lengur venju á kaffi-
húsum. klukkan 9,55 hófst sjón-
varpssending frá kappleik milli
Real frá Madrid og Glasgow
►
alvarlega ástfangin og það mun
ekki valda þér vonbrigðum.
Þegar góðu afstöðurnar eru fyr-
ir hendi er um að gera að sitja
ekki auðum höndum og láta
þær líða í logni framhjá sér,
heldur notfæra sér hina góðu
strauma sér til framdráttar.