Fálkinn - 14.06.1965, Blaðsíða 29
hergréinanna hver í sínu lagi
úr skrifstofum sínum.
Fyrstur mætti Edward Dieífen-
bach hershöfðingi, forseti her-
ráðs landhersins, þrekvaxinn
fallhlífahermaður með svarta
leðurbót fyrir öðru auga. Hann
gekk eins og hann væri I stökk-
stígvélunum, sem hann notaði
oft til að benda á að hann væri
enn í fullum stökkréttindum.
Parker Hardesty hershöfðingi,
íorseti herráðs flughersins,
þurfti ekki á neinu slíku vöru-
merki að halda. Honum nægði
hrokkið, brúnt hárið og langur
yindillinn.
Næstur kom Billy Riley, yfir-
foringi landgöngusveitanna, með
sakleysislegustu, bláu augun og
ferlegustu hökuna I öllum Banda-
ríkjaher. Hann einn stanzaði og
kinkaði kolli. „1 Geyminn rétt
einu sinni fyrir Liðið, Jiggs,“
sagði hann. „Við margfaldan
liðsmun eins og vant er.“
Scott kom í gættina og læsti
síðan dyrunum. Biðið við, hers-
höfðingi, hugsaði Casey, yður
vantar flotann! En fundurinn
hélt áfram þótt ekki bólaði á
Lawrence Palmer aðmírál, yfir-
foringja sjóhersins.
Yfirherráðsmennirnir fjórir
sátu einir á fundi i tuttugu mín-
útur. Um leið og hinir gengu
út í halarófu, benti Scott Casey
að koma inn og vísaði honum á
stól. Casey settist í „Flughers-
stólinn" sem Hardesty hershöfð-
ingi var rétt staðinn upp úr.
Scott skálmaði að glugganum til
að draga tjaldið frá. Casey
renndi fingurgómunumeftirbrún
stórs öskubakka við sæti Har-
desty og rak þumalfingurinn í
samanvafða pappirskúlu. Hann
velti henni milli fingra sér meðan
Scott settist niður og kveikti i
vindli.
„Jiggs,“ sagði hershöfðinginn,
„Murdock ofursti sagði mér að
þér hefðuð frétt af félagsveð-
málinu um Preaknessið. Mér
þætti vænt um að þér gerðuð
mér þann persónulega greiða
að láta það ekki fara lengra."
Casey gat ekki með öllu leynt
undrun sinni. „Hafið engar á-
hyggjur af því, herra minn,“
sagði hann brosandi. „Ég hef
ekki áhuga á öðru en komast að
hver sé rétti hesturinn: I alvöru
talað, hershöfðingi, ég skipti mér
aldrei af einkaskeytum yðar.“
„Þér ætlið þá líka að fara með
svar Barnswells aðmíráls sem
trúnaðarmál?"
„Auðvitað, herra minn.“
Scott lyfti annarri augabrún-
inni. „Tigninni fylgja nokkur for-
-réttindi, eins og þér komizt að
raun um þegar þér fáið yðar
stjörnu." Hann brosti til Casey.
„Sem ég vona að ekki þurfi
lengi að bíða úr þessu.“
Casey varð ringlaður þegar
•talið barst svona að frama hans.
„Þér megið trúa mér hershöfð-
ingi, ég grennslast aldrei eftir
einkaskeytum herráðsforsetans,
en í fjarskiptastofu allra her-
greina er ungur undirforingi sem
er stundum að slúðra, og...“ -
„Svo er mér sagt.“
Þegar Casey var setztur við
skrifborð sitt, tók hann eftir að
hann hélt enn á bréfkúlunni af
fundarborðinu. Hann rakti hana
í sundur annars hugar og velti
fyrir sér því sem Scott hafði
látið á sér skilja um hækkun
hans í tign. Að réttu lagi átti
röðin ekki að koma að honum
fyrr en eftir þrjú ár. Bezt var
að hugsa ekki um það.
En því þetta uppistand út af
af Preakness-skeytunum? Scott
virtist siður en svo standa á
sama um þau. Casey minntist
þess ekki að hafa fyrr horft á
herráðsforsetann taka sér slíka
varnarstöðu.
Hann breiddi úr pappírsbleðl-
unum, sem reyndist vera blað
af einni rissblokkinni á borði her-
ráðsins. Á það var eitthvað skrif-
að með blýanti, höndin var
Hardesty hershöfðingja. Casey
pírði augun til að geta lesið
þetta. Þar stóð: „Loftflutt
ECOMCON 40 K-212 í Stöð Y
klukkan 0700 laug. Chi, NY, LA.
Utah?“
K-212 var nýjasta gerð her-
flutningaflugvéla, þota, sem tók
hundrað hermenn með alvæpni
og létt stórskotavopn. Og þarna
Skaut þessu kynlega ECOMCON
upp á ný. Hver fjandinn var
eiginlega að gerast? spurði
Casey sjálfan sig. Hver þurfti
að flytja herlið loftleiðis í stór-
um stil í sambandi við viðbúnað-
aræfinguna á laugardag? Casey
var orðið kynlega órótt, þegar
hann stakk blaðinu í buxnavasa
sinn. Hvers vegna var þessari
hernaðaraðgerð haldið leyndri
fyrir framkvæmdastjóra Sam-
eiginlega herráðsins, sem átti að
fá að vita allt sem fram færi?
Á leið í hádegismat tveim
klukkutímum síðar rakst Casey
á Dorsey Hough í ganginum.
Leiðindasvipurinn var horfinn af
fölu andlitinu. 1 staðinn var
komið sigurbros. „Halló, ofursti,
tilfærslan sem ég var að minnast
á, þú manst? Hún er komin í
kring, fékk tilkynninguna fyrir
nokkrum mínútum. Ég fer til
góðu, gömlu Pearl.“ Hann reyndi
lélega eftirlikingu af húladansi
og deplaði augunum til Casey.
„Og meðal annarra orða, Barns-
well gamli reyndist eini félags-
skiturinn á veðhlaupalista for-
setans. Hinir sendu allir sínar
skuldbindingar.“
Hann gekk burt hnakkakertur
blístrandi „Sweet Leilani." Drott-
inn minn dýri, hugsaði Casey,
hvernig má það ske að kjaft-
askur eins og þessi komist í
gegnum hreinsun til dulmáls-
starfa? Guði sé lof að Pearl Har-
bor stafar engin hætta af Japön-
um þetta misserið.
Um nónbil, eftir að Casey hafði
fært ritara Scotts skjalamöppu,
mætti hann öðrum ofursta — úr
landhernum — sem var að koma
út úr skrifstofu herráðsforset-
ans. Við lá að þeir rækjust á
: í dyrunum.
„híéí, e'í þeftá ekki uppáhalds
leirhausinn minn í eigin pers-
óhu,“ sagði fótgönguliðinn, dró
Casey með sér fram á ganginn
og virti hann fyrir sér frá hvirfli
til ilja.
■„Sæll, Broderick," svaraði Ca-
sey og reyndi að dylja ógeðið
á hvernig hinn notaði uppnefni
sém venjulega var til þess ætlað
að egna landgönguliða til slags-
mála. „Ég hélt þú værir á Oki-
nawa eða enn verri stað.“
Þungur hamar lagðist óþarf-
lega þungt á öxl Casey. „Ekki
ég, Jerome, ekki ég.“
Einhvern tíma hafði Broderick
komizt að því að hann gat ergt
Casey með því að nefna hann
séinna nafni hans. Á augabragði
gaus upp í honum gamla andúð-
in á þéssum hrokafulla iiðsfof-
ingja. John R. Broderick ofursti
var alljótasti maður sem Casey
þekkti. Augabrúnirnar komu
saman eins og svart strik yfir
nefrótinni, ör markaði hægri
kinnina. Leiðir hans og Casey
höfðu öðru hvoru legið saman,
síðast í Iran, og Casey mundi að
þar hafði Broderick, sem þá var
sveitarforingi í merkjadeildinni,
sagt hverjum sem heyra vildi að
Bandaríkin yrðu aldrei neins
megnuð þangað til þau fengju
forseta „sem hefur nóg bein í
nefinu til að loka þinginu í
nokkur ár.“
„Hvar ert þú á stöð um þessar
mundir, Broderic?" spurði Casey.
,Hm... ja, nei, ekki þú, ekki
►
Val unga fólksins - Heklubuxurnar —
amerískt efni nylon nankin - vandaöur
frágangur. Betri buxur í leik og starfi
FÁLKINN