Fálkinn - 14.06.1965, Blaðsíða 21
FJÓRlR SÝXA
í ÁSMIJNDARSAL
Þeir sem standa að sýningunni eru:
JÓN GUNNAR ÁRNASON. Hann
er 34 ára fæddur í Reykjavík. Var
í Myndlistarskólanum í þrjá vetur
og var Ásmundur Sveinsson kennari
hans. Jón hélt sýningu á Mokka-
kaffi 19G2.
HAUKUR DÓR STURLUSON.
Hann er 27 ára fæddur í Reykjavík.
Var í Myndlistarskólanum og síðan
tvo vetur í Edinborg við framhalds-
nám. Hann hefur jöfnum höndum
fengizt við myndlist og keramik.
Hann hélt sýningu í Ásmundarsal á
s.l. hausti og sýndi þar keramik og
teikningar.
SIGURJÓN JÓHANNSSON. Hann
er 26 ára fæddur á Siglufirði. Hann
tók stúdcntspróf við M. R. 1959, og
veturinn næsta á eftir var hann við
nám á Ítalíu. Síðan hér heima við
nám í tvo vetur og í London vetur-
inn 1963—1964. Hélt sýningu á
Mokkakaffi sumarið 1964.
HREINN FRIÐFINNSSON. Hann
er 22 ára fæddur að Bæ, Miðdölum
Dalasýslu. Var í Handíða- og mynd-
listarskólanum tvo vetur og í London
veturinn 1963—’64.
Því hefur verið haldið á lofti, að
annar hver fslendingur fáist við
myndl'"t. Sjálfsagt er þetta nokkuð
orðum aukið, en rétt er, að margir
eru kallaðir en fáir útvaldir. Hver
sýningin rekur aðra og við getum
sagt að það sé mikil gróska í mynd-
list, en hafa allir erindi sem erfiði?
Það er ekki okkar að svara því.
Nú hafa fjórir ungir menn opnað
sýningu í Ásmundarsal og þeir eiga
það allir sammerkt, að þeir fylgja
nýjum stefnum og leita að nýjum
meðulum til þess að forðast logn-
mollu og deyfð. Sjálfsagt verða ein-
hverjir til að lýsa vanþóknun sinni
á verkum þessara ungu manna, aðr-
ir munu segja að þau séu nýstár-
leg og forvitnileg og enn aðrir munu
segja að þessum mönnum sé ekki
viðbjargandi — verk þeirra séu
hrein della. Þeir sem hafa engar
fyrirfram skoðanir munu að sjálf-
sögðu vera í vafa um hvort hér sé
á ferðinni kúnst eða bara grín.
Við litum inn til listamannanna,
eins og það er orðað í blaðaviðtölum,
rétt í þann mund, sem þeir voru að
ljúka við undirbúning sýningarinnar.
Þeir voru þrír mættir — einn var
vant við látinn, því að hann var að
steypa gangstéttarhellur suður í
Hafnarfirði.
Fyrstá spurningin:
— Hvað vakir fyrir ykkur með
sýningunni?
— Fyrst og fremst að sýna hvað
við erum að fást við.
— Mér sýnist, að þið notið undar-
lega hluti til að vinna með?
— Það má vel vera, að menn
kalli þetta undarlega hluti — járn,
tré, plast, ljósmyndir, gínur, leik-
föng, plaköt, skrúfur, naglar —
þetta eru allt hlutir, sem fólk hefur
daglega fyrir augunum, en við not-
um þá með nokkuð öðrum hætti en
• ••••••••• Framh. á bls. 41.
HREIIMIM y SIGURJÓIM ^ JÓIM y