Fálkinn - 14.06.1965, Síða 44
Vinsælar utanlandsferðir með ísl. fararstjórum
Margra ára reynsla og ótviræðar vinsældir tryggir farþegum okkar skemmtilegt
og snurðulaust ferðalag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð
liafa farið sömu ferðirnar viðurkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt
hafa.
Við auglýsum sjaldan því hinir fjölmörgu ánægðu viðskiptavinir komnir heim
úr SUNNUFERÐUM eru okkar bezta auglýsing.
Nú þegar hafa margir pantað far í þessar helztu hópferðir sumarsins.
London — Amsterdam — Kaupmannahöfn
4. júlí og 17. sept. — 12 dagar, kr. 11.800,00.
Stutt og ódýr ferð, sem gefur tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborgum
Evrópu, sem þó eru allar mjög ólikar. Milljónaborgin London tilkomumikil og sögu-
fræg höfuðborg lieimsveldis með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam,
heillandi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og „Borg-
in við Sundið“, Kaupmannahöfn, þar sein Islendingar una sér betur en víðast á er-
lendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og fleiri skemmtistaði. Hægt að fram-
lengja dvölina i Kaupmannahöfn. — Fararstjóri: Jón Helgason.
Edinborgarhátíðin — 23. ágúst — 7 dagar, kr. 7.210,00.
Flogið til Glasgow og dvalið í viku í hinni undurfögru höfuðborg Skotlands, Edinborg, á frægustu listahátíð álfunnar,
sem þar er árlega haldin um þetta leyti. Farið verður í skemmtiferðir um skozku hálöndin, þar sem landslagsfegurð
er viðfræg. Hægt að framlengja dvölina og fara til London. — Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikari.
París — Rínarlönd — Sviss — 27. ágúst — 21 dagur, kr. 18.640,00.
Þessi vinsæla ferð hefur eins og flestar hinar verið fullskipuð ár eftir ár. Fólki gefst kostur á að kynnast nokkrum
fegurstu stöðum Evrópu í rólegri ferð. Flogið til Parísar. Dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga.
Flogið til Rínarlanda og ekið um hinar fögru og sögufrægu Rínarbyggðir. Verið á vínhátiðinni, þar sem drottningin
er krýnd. Að lokum er dvalið í hinu undurfagra Alpafjallalandi Sviss i Luzern, þar sem tindar Alpafjalla speglast i
vötnum. Farið í ökuferðir og siglt. Skroppið i skemmtiferð yfir til Ítalíu. Hægt að verða eftir á heimteið í London
eða Kaupmannahöfn. — Fararstjóri: Jón Helgason.
Italía í septembersól — 3. september — 21 dagur, kr. 21.300,00.
Flogið til Mílanó, og ekið þaðan um fegurstu byggðir Italiu, með 3—4 daga viðdvöl i Feneyjum, hinni „fljótandi æv-
týraborg“ og listborginni Florenz- Fimm dagar í Róm og gengið á fund Páfans. Fjórir dagar í Sorrento við hinn und-
urfagra Napolíflóa. Farið til Capri og annarra frægra og fagurra staða. Siglt með Michelngelo, splunkunýju, stærsta
og glæsilegasta hafskipi Itala (43.000 smál.) frá Napoli til Cannes á Frakklandsströnd. Þar er dvalið i 3 daga í bað-
strandarbænum Nizza, áður en flogið er heim með viðkomu að vild, i Kaupmannahöfn eða London. — Fararstjóri:
Thor Vilhjálmsson.
Italía og Spánn — 28. september — 21 dagur, kr. 24. 860,00.
Þessi óvenjulega ferð gefur fólki kost á því að kynnast fegurstu stöðum Italíu og Spánar og hefur slík ferð ekki áður
verið á boðstólum hérlendis. Flogið til Feneyja og dvalið þar i hinni undurfögru „fljótandi" ævintýraborg, sem
stundum er kölluð „drottning Adriahafsins". Flogið þaðan til Rómar og dvalið i nokkra daga i „borginni eilífu“, þar
sem margt er að skoða. Ekið suður til Napoli og dvalið á Capri, áður en siglt er með hinu nýja og glæsilega hafskipi
Itala, Michelangelo (43 þús. smál.) lúxusskip, búið öllum lifsins þægindum. Komið til Gíbraltar á þriðja degi og ekið
um hina undurfögru Sólströnd Andalúsiu til baðstrandarbæjarins Torremolino, þar sem dvalið er i fjóra daga. Ekið
síðan eina fegurstu leið Spánar til Madrid með viðkomu í Granada, hinni fögru liöfuðborg Máranna á Spáni, þar sem
hallir þeirra og skrauthýsi standa enn. Að lokinni dvöl i Madrid er flogið til London, þar sem hægt er að framlengja
ferðina. — Fararstjóri: Jón Helgason.
Ævintýraferðin til Austurlanda — 8. október — 20 dagar, kr. 19.850,00.
Þessi ótrúlega ódýra Austurlandaferð var farin fullskipuð með 35 farþegum i fyrra og komust miklu færri en vildu.
Verðið er svona lágt vegna samvinnu við enska ferðaskrifstofu, sem hefur á leigu lúxúshótel í Egyptalandi, sem starf-
rækt eru í fyrrverandi höllum Faruks konungs. Flogið til Amsterdam. Dvalið þar í sólarhring, áður en flogið er til
Cairo. Þar er dvalið í viku og farið i skoðunarferðir um Nílardal- Siðan getur fólk valið um vikudvöl á baðströndinni
í Alexandríu, eða ferðalags til „Landsins helga“, Jerúsalem, Betlehem o. fl. sögustaða Biblíunnar auk Damaskus og
Líbanon. Dvalið í tvo daga í London á heimleið og hægt að framlengja dvölina þar. — Fararstjóri: Guðni Þórðarson.
í SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Engar langar, þreytandi bilferðir, flogið og siglt lengstu leiðirnar
og ekið aðeins þar sem landslagsfegurð er mest. 1 öllum tilfellum er hægt að framlengja dvölina erlendis. Kjörorð okk-
ar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu,
sem reynt hafa SUNNUFERÐIR. Margir velja þær aftur ár eftir ár. — Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og
vandið valið. — Biðjið um nákvæma ferðaáætlun og pantið snemma.
Auk hópferðanna hefur SUNNA fullkomna ferðaþjónustu fyrir einstaklinga og selur farseðla með flugvélum og skip-
um um allan heim, járnbrautar- og bílafargjöld í mörgum löndum. — Pantar hótelin og annast alla fyrirgreiðslu og
undirbúning. Farseðlarnir eru á sama verði og hjá flutningafyrirtækjum og ferðaþjónustan því ókeypis í kaupbæti fyr-
ir viðskiptavininn.
Ferðaskrifstofan
SUIMINIA
Bankastræti 7
Sími 16-400
Vika á baðströnd og vika £ Kaup-
mannahöfn. Brottför alla föstu-
daga, verð kr. 10.200,00.