Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 4
4 22. október 2009 FIMMTUDAGUR
ESB á mannamáli!
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Bræðraborgarstíg 9
„Einsog leiftrandi
spennusaga.“
Össur Skarphéðinsson,
utanríkisráðherra
Pétur Gunnarsson,
Fréttablaðinu
„Mikilvægt,
áhugavert innlegg.“
Bjarni Harðarson
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
LOKSINS!
HEILBRIGÐISMÁL Enn fjölgaði sjúk-
lingum á Landspítala í gær vegna
svínaflensu. Þeir voru 33 talsins,
þar af sex á gjörgæslu. Sjö nýir
voru innlagðir og fjórir útskrif-
aðir. Þá höfðu fimm einstakling-
ar verið lagðir inn á sjúkrahúsið á
Akureyri af sömu ástæðu og einn
á Blönduósi.
Samkvæmt nýjum upplýsingum
frá sóttvarnalækni kemur fram
að fjöldi inflúensutilfella þrefald-
aðist í síðustu viku miðað við vik-
una þar á undan. Fólk á öllum aldri
greinist með sjúkdóminn, flestir á
aldrinum 15 til 19 ára. Frá lokum
júní til 18. október bárust samtals
4246 tilkynningar um inflúensu lík
einkenni eða staðfesta svínaflensu
samkvæmt skráningum lækna
í rafrænar sjúkraskrár. Frá 23.
september hafa 80 manns verið
lagðir inn á Landspítala vegna
flensunnar.
„Spítalinn er undir miklu álagi
þótt ekki sé komið að þolmörkum,“
segir Már Kristjánsson, yfirmaður
smitsjúkdómadeildar Landspítal-
ans. „En það þarf að huga að því
sem gerist á næstu dögum og
vikum. Sjúklingum með flensu
hefur fjölgað dag frá degi að með-
altali. Ákvarðanataka ræðst af
þróuninni á næstu dögum og jafn-
vel vikum.“
Hann segir að sú hugmynd að
hafa alla flensusjúklinga á einum
gangi hafi verið rædd en engin
ákvörðun þar að lútandi tekin
enn.
„Við erum með ákveðna við-
bragðsáætlun,“ segir hann. „Það
segir sig sjálft að þegar herðir á
þessum þætti í starfseminni þá
getum við ekki sinnt öllu öðru sem
við gerum venjulega. Mörgu af því
er hægt að stjórna, til að mynda
valkvæðri starfsemi. Okkur finnst
ekki ástæða til þess í dag að breyta
starfseminni með því að sinna ein-
ungis bráðum, aðkallandi verkefn-
um, en það gæti komið til þess á
næstu dögum. Það ræðst af því
hvernig málin þróast.“
Már segir að farsóttanefnd
Landspítalans hvetji fólk til að
fara ekki í heimsóknir á spítalann.
Þar sé fólk með inflúensu en einn-
ig aðrir sem séu veikir af öðrum
orsökum. Lasnir ættingjar eigi
ekkert erindi inn á spítalann.
„Í rauninni er umferð fólks ekki
af hinu góða á þessari stundu,“
segir hann, en segir ekki í umræð-
unni að banna allar heimsóknir á
spítalann. jss@frettabladid.is
Fjörutíu lagðir inn
vegna svínaflensu
Nær fjörutíu manns lágu á Landspítala vegna svínaflensu í gærkvöld. Þá er
farið að leggja fólk inn á Sjúkrahúsið á Akureyri af sömu sökum og einn liggur
á sjúkrahúsi á Blönduósi. Landspítali starfar samkvæmt viðbragðsáætlun.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
14°
8°
10°
12°
13°
14°
10°
10°
24°
14°
23°
23°
30°
5°
16°
19°
9°
Á MORGUN
5-13 m/s.
Hvassast norðvestantil.
LAUGARDAGUR
NA 5-8 m/s en
hvassari á Vestfjörðum.
7
4
2
4
4
6
7
8
8
10
4
10
12
6
2
5
5
5
3
8
34
6
0 1
4
6 4
0 1
2
5
KÓLNAR Næstu
daga verða norð-
austlægar áttir
en það þýðir að
úrkoman fellur
einkum norðantil
en á sunnanverðu
landinu verður létt-
ara yfi r. Það kólnar
lítillega næstu
daga, einkum
norðanlands, og
búast má við svölu
veðri inn til lands-
ins norðantil.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
SJANGHAÍ, AP Kínverskir rithöf-
undar hafa kvartað yfir stafrænu
bókasafni netleitarvélarfyrirtæk-
isins Google. Höfundarnir segja
höfundarrétt brotinn á þeim.
Mótmælin koma frá opinberum
samtökum höfunda í Kína. Að
sögn fréttastofu AP eru þau við-
bót í deilur sem Google á þegar
í við höfundarrétthafa í Banda-
ríkjunum, Evrópu og víðar, vegna
viðleitni fyrirtækisins til að gera
fleiri prentverk aðgengileg á net-
inu. Mótmælin eru hins vegar þau
fyrstu frá Kína vegna málsins.
Rétthafar geta kosið að taka
ekki þátt í verkefninu, segir tals-
maður Google. - óká
Kínverjar ósáttir við Google:
Segja höfund-
arrétt brotinn
ALÞINGI Breyta þarf lögum frá í
sumar um fjárfestingarsamn-
ing vegna álvers í Helguvík, að
undirlagi ESA, Eftirlitsstofnun-
ar EFTA.
Í lögunum segir að samningur-
inn skuli eigi gilda skemur en í
20 ár en ESA segir að hann megi
ekki gilda lengur en í 20 ár.
Þá eru ákvæði um ívilnandi
reglur um stimpilgjöld þrengdar
á þann hátt að ívilnanir gilda ein-
vörðungu um skjöl sem eru gefin
út í beinum tengslum við bygg-
ingu álversins en ekki rekstur
þess. - bþs
Samningi um Helguvík breytt:
Farið að athuga-
semdum ESA
Icesave á dagskrá í dag
Rætt verður um nýtt og breytt frum-
varp fjármálaráðherra um Icesave-
ábyrgðirnar á þingfundi í dag sem
hefst klukkan ellefu.
ALÞINGI
LANDSPÍTALI Farsóttanefnd Landspítalans hvet-
ur fólk til að fara ekki í heimsóknir á spítalann.
Þar sé fólk með inflúensu en einnig aðrir sem
séu veikir af öðrum orsökum. Lasnir ættingjar
eigi ekkert erindi inn á spítalann, segir yfirmað-
ur smitsjúkdómadeildar.
LAUGARDALSLAUGIN Maðurinn lenti
með höfuðið á botni laugarinnar, hlaut
af mænuskaða og lamaðist fyrir lífstíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt Vátrygginga-
félag Íslands til að greiða ungum
pólskum manni rúmar 33 milljón-
ir króna í bætur vegna slyss sem
hann varð fyrir í Laugardalslaug
árið 2007.
Ungi maðurinn stakk sér þá
til sunds í grynnri enda Laugar-
dalslaugar, lenti með hvirfilinn
í botni laugarinnar og lamaðist
fyrir neðan mitti og að hluta á
höndum. Taldi hann að varúðar-
merkingar á staðnum hefðu
verið ófullnægjandi. Á það féllst
dómur inn, en taldi þó að maður-
inn þyrfti að bera þriðjung
tjónsins sjálfur vegna þess hve
gáleysis lega hann stakk sér. - sh
Stakk sér í grunnu laugina:
Fær 33 milljónir
í skaðabætur
FÉLAGSMÁL Ákvörðun stjórnvalda
um að skrifa ekki undir vilja-
yfirlýsingu með heimamönnum
og Alcoa varðandi uppbyggingu
álvers á Bakka er reiðarslag fyrir
Þingeyinga.
Svo segir í ályktun Framsýnar
– stéttarfélags Þingeyinga.
Er þess krafist að stjórnvöld
endurskoði afstöðu sína.
Segir að stjórnvöld hafi brugð-
ist öllu trausti, það sé óþolandi
og komi Norðurþingi, Orkuveitu
Húsavíkur og íbúum svæðisins í
mjög slæma stöðu. - bþs
Framsýn í Norðurþingi:
Ákvörðunin um
Bakka reiðarslag
ALÞINGI Lögbundin þýðing skjala
vegna aðildar Íslands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu kostar
tæpar 186 milljónir króna á ári.
Áætlar utanríkisráðuneytið að
verja þurfi þeirri fjárhæð til
verksins til loka árs 2012 þegar
þýðingum á að vera lokið.
Þetta kemur fram í svari utan-
ríkisráðherra við fyrirspurn
Ragnheiðar Elínar Árnadóttur
Sjálfstæðisflokki.
Í svarinu kemur fram að nauð-
synlegt sé að ljúka þýðingunum
áður en til mögulegrar aðildar
að Evrópusambandinu kemur. Þá
er þess getið að kostnaður vegna
þýðingar færist til Evrópusam-
bandsins ef til aðildar Íslands
kemur. - bþs
Þýðingu EES-efnis lýkur 2012:
Kostar 186
milljónir á ári
ÍRAN Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unin hefur sent Írönum, Banda-
ríkjamönnum, Frökkum og Rúss-
um tillögu að lausn á máli Írana og
kjarnorkuáætlunar þeirra. Stofn-
unin vill svör við tillögunni í síð-
asta lagi á morgun.
Efni tillögunnar er ekki opin-
bert, en heimildir BBC herma að
tillagan feli í sér að Íranar muni
senda úran sitt úr landi til Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar, sem
aftur myndi senda það til Rúss-
lands þar sem það yrði auðgað.
Þaðan færi það svo til Frakklands
þar sem nauðsynleg tækni er til
staðar til að undirbúa úranið endan-
lega fyrir kjarnakljúfa Írana.
Tillögunum er ætlað að slá á
áhyggjur vesturveldanna af því
að Íranar séu hugsanlega að auðga
úran í hernaðarskyni. Úranið sem
sent yrði frá Frakklandi hverju
sinni yrði aldrei nægt til að hægt
væri að búa til úr því vopn.
Tillögurnar voru afrakstur
viðræðna sem fram fóru í Vín í
Austurríki. Mohamed El Bara-
dei, yfirmaður Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar, sagði að
fundinum loknum að hann væri
bjartsýnn á að tillagan myndi
leiða til farsællar niðurstöðu. Við-
ræðurnar hefðu verið mjög upp-
byggilegar.
- sh
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin leggur til sátt í deilu Írana og vesturvelda:
Úranið verði meðhöndlað erlendis
BARADEI AÐ VIÐRÆÐUM LOKNUM
Yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar sagði viðræðurnar hafa verið
uppbyggilegar. NORDICPHOTOS/AFP
GENGIÐ 21.10.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,0912
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,31 122,89
202,74 203,72
182,68 183,70
24,539 24,683
21,961 22,091
17,696 17,800
1,3465 1,3543
195,21 196,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR