Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 6
6 22. október 2009 FIMMTUDAGUR 668 kr.á mánuði Vefhysing_ Pantaðu núna á www.1984.is ISLENSK VEFHYSING = MEIRI HRADI >> MEIRA ÖRYGGI >> MUN ODYRARI Sími 546 1984 ::: info@1984.is bílaperur Quarts allt að 80% meira ljós NÝJAR bílaperur frá Skeifan 11B • 108 Reykjavík Sími 511-3080 • isoft@isoft.is www.isoft.is Vinsælt og hagnýtt nám fyrir skapandi fólk. Hentar einnig vel þeim sem vilja hanna sínar eigin auglýsingar og bæklinga. Kennt er á mest notuðu hönnunarforritin. • Photoshop CS4 • Illustrator CS4 • InDesign CS4 Einnig læra þátttakendur að ganga frá verkefnum sínum í Acrobat Distiller (PDF) Kvöldnám hefst 29. október. Lengd 105 std. Verð kr. 129.000,- Grafísk hönnun ALÞINGI Tíu þingmenn úr fjórum flokkum, auk Þráins Bertelssonar, vilja að forseti Alþingis hefji undir búning þess að útvarpa þingfundum beint um allt land á sérstakri útvarpsrás. Stefna eigi að því að útvarp þingfunda hefj- ist eigi síðar en þegar þing kemur saman á vorþingi 2010, það er, fyrir 18. janúar á næsta ári. Í greinargerð segir að það sé mat flutningsmanna að beinar útvarpssendingar frá Alþingi ættu að vera sjálfsögð þjónusta í nútímalegu lýðræðisþjóðfélagi, á öld upplýsinga og fjölmiðlunar. Tillaga þessa efnis hefur marg- oft verið lögð fram á þingi. - bþs Þingfundum verði útvarpað: Útvarp hefjist fyrir 18. janúar SVEITARFÉLÖG „Það er grátlegast að það var varað við þessu þegar meirihlutinn í Reykjavík fór í gang með plön um þreföldun á lóða- úthlutunum,“ segir Dagur B. Egg- ertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, um offjárfestingu á fasteignamarkaði. Dagur segir að nú séu um þrjú þúsund óseldar eða langt komnar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Verðmæti þessa sé um 73,5 millj- arðar króna. Þess utan standi yfir 4.300 lóðir tómar. Sveitarfélögin hafi lagt í miklar fjárfestingar sem nú séu ónýttar. Þennan kostn- að megi meta á um 35 milljarða. Samtals liggi þannig vel yfir 100 milljarðar í ónýttum eignum. Að sögn Dags vöruðu skipu- lagssvið borgarinnar, greiningar- deildir bankanna, Seðlabankinn og Samtök atvinnulífsins við þenslu á fasteignamarkaðinum þegar í upp- hafi kjörtímabilsins. „Ég og margir fleiri sögðum að hættan væri sú að stórir hópar, sem hefðu keypt dýrt, myndu sitja eftir sem nokkurs konar fangar í íbúðum sínum og að sveitarfélögin sætu eftir með hálfbyggð hverfi og ónóga þjónustu árum saman,“ segir Dagur og kveður mikilvægt að gera þetta mál upp – ekki síður en bankahrunið. „Það voru stjórnmálamenn í aðdraganda síðustu sveitarstjórnar- kosninga, sjálfstæðismenn í öllum sveitarfélögum, sem löðuðu til sín atkvæði með loforðum um ódýrar lóðir fyrir alla. Því var haldið fram að hækkun fasteignaverðs væri vegna þess að Reykjavíkur- listinn hefði ekki tekið þátt í þessu ofsakapphlaupi sumra nágranna- sveitarfélaganna í lóðaúthlutunum. Þessi málflutningur hefur ekki aðeins reynst rangar heldur er reikningurinn á við heila Kára- hnjúkavirkjun,“ segir Dagur. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir ódýrt að vera spekingur eftir á. Málið sé mjög alvarlegt og varði í mörgum tilfellum fjárhag ein- staklinga, fjölskyldna og fyrir- tækja. „Þetta er miklu viðkvæm- ara og að sumu leyti sorglegra en svo að menn geti rokið fram með í umræðuna með einhverjum ódýrum pólitískum frösum,“ segir Júlíus. Að sögn Júlíusar er orsaka meðal annars að leita hjá lána- stofnunum. „Ég hef líka bent á það að upphaf þessarar verðlags- þróunar má að nokkru leyti rekja til lóðaskorts og uppboðsstefnu R- listans á sínum tíma. En við eigum ekki að festa okkur í slíku heldur hugsa fram á veginn og leita lausna,“ segir Júlíus, sem kveður lausnina meðal annars felast í samræmingu á skipulagi höfuð- borgarsvæðisins. „Við höfum bara ekki þau tól sem til þarf til þess að halda í taumana og því þarf að breyta,“ segir Júlíus. Hann bendir jafnframt á að áðurnefndar fjár- festingar sveitarfélaganna vegna samþykktra deiliskipulagsáætlana verði nýttar þegar betur árar. gar@frettabladis.is Andvirði Kárahnjúka í ónotuðum eignum Oddviti Samfylkingar í borgarstjórn segir yfir 100 milljarða bundna í ónotuð- um íbúðum og innviðum hverfa á höfuðborgarsvæðinu þótt varað hafi verið við þenslu. Sjálfstæðismaður í borgarstjórn segir ódýrt að vera spekingur eftir á. Í URRIÐAHOLTI Byggðin í Urriðaholti í Garðabæ er eitt dæmi um hverfi sem dagaði uppi þegar góðærið hvarf og kreppan lagði Ísland undir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓLK „Þeir frá Hótel Loftleiðum höfðu samband á þriðjudag og voru í miklu veseni, því þeir áttu engan stól fyrir karlinn að sitja á. Við fengum þess vegna 48 klukkutíma til að smíða stólinn, og erum dálítið að giska okkur áfram með þetta. Það verður spennandi að sjá hver útkoman verður,“ segir Erlendur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá GÁ Húsgögnum. Fyrirtækið fékk það verkefni að smíða sérhannaðan stól fyrir Tyrkjann Sultan Kosen, hæsta mann heims, sem væntan- legur er til landsins í dag í tilefni af útkomu nýjustu Heimsmeta- bókar Guinness. Kosen er tæplega tveir og hálfur metri á hæð. Starfsmenn GÁ Húsgagna voru í miðjum klíðum við að setja saman grind fyrir stólinn þegar Frétta- blaðið hafði samband í gær. „Mér skilst að Kosen muni nota stólinn á hótelinu og einnig þegar hann gefur eiginhandaráritanir og slíkt,“ segir Erlendur. Grétar Árnason eigandi, sem stofnaði GÁ Húsgögn árið 1975, segir þetta verkefni vissulega for- vitnilegt, en fyrirtækið hafi áður fengist við undarleg verkefni. „Laxaroðsveggurinn sem við gerð- um fyrir Hótel Þingholt er mjög sérstakur, en þá bjuggum við til flísar úr 580 roðum. Við gerðum líka sófa fyrir heimssýninguna árið 2000 og fleira. Við höfum lent í ýmsu,“ segir Grétar. Aðspurður segir hann að hæsta manni heims sé velkomið að taka stólinn með sér heim eftir heimsóknina, kjósi hann svo. - kg Starfsmenn GÁ Húsgagna fengu undarlega beiðni frá Hótel Loftleiðum: Smíða stól fyrir hæsta mann heims STÓRI STÓLLINN Sigurjón og Erlendur hjá GÁ húsgögnun komust báðir fyrir í stólnum sem þeir smíðuðu fyrir hæsta mann heims. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SAMFÉLAGSMÁL Svo virðist sem breytt viðhorf gagnvart kannabis- neyslu geri nú vart við sig meðal ungs fólks á Íslandi. Það líti jafn- vel ekki lengur á kannabisefni sem ólögmætt og varasamt fíkni- efni. Þetta kom fram í máli Arn- gríms Gunnarssonar, forvarnar- fulltrúa í Fjölbrautaskólanum í Ármúla, á morgunverðarfundi samtakanna Náum áttum, um kannabisneyslu á Íslandi í fyrra- dag. Sagði Arngrímur að unglingar á framhaldsskólaaldri hefðu sumir hverjir þær hugmyndir nú til dags að kannabis væri jafn- vel hollt, væri lyf og að það ætti sjálft að ráða því hvort það skað- aði sig eða ekki. Skaðsemin af kannabisneyslu væri ekki meiri en til dæmis af sykurneyslu eða ofþjálfun í líkamsrækt. Karl Steinar Valsson, yfir maður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hélt einn- ig erindi á fundinum. Sagði hann að á liðnum árum hefði lögregla lagt hald á 100 til 200 kannabis- plöntur á ári hverju, en þær hefðu hins vegar verið 100 til 200 á viku það sem af væri ári. Raunar væri kannabisrækt á Íslandi svo mikil að lögregla kæmist ekki í að leggja hald á allt það sem vitað væri um. Ætla megi að eitthvað af þessari innlendu framleiðslu væri ætluð til útflutnings. - sh Ungt fólk hætt að líta á kannabisefni sem ólöglegt og varasamt fíkniefni: Breytt viðhorf til kannabiss KANNABISSKÓGUR Fleiri þúsund kannabisplöntur hafa fundist í ræktun á Íslandi á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Á að setja lög gegn starfsemi Vítisengla? Já 90% Nei 10% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú búin(n) að fá svínaflensu? Segðu skoðun þína á visir.is. KJÖRKASSINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.