Fréttablaðið - 22.10.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 22.10.2009, Síða 8
8 22. október 2009 FIMMTUDAGUR 1. Hvað nefnist nýtt stýrikerfi Microsoft sem kemur út í dag? 2. Hve marga Kínverja væntir Keilir að fá árlega til flugnáms? 3. Hver deilir hlutverki með Stefán Karli í söngleiknum Trölla? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50 Í hvernig borg viltu búa? HUGMYNDAÞING Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR SUNNUDAGINN 25. OKTÓBER KL. 13–16 www.reykjavik.is/hugmyndir 38.995 Mammut Mount trail xt gtx gönguskórnir, okkar vinsælustu skór. Sokkar fylgja með öllum gönguskóm Broddar verð frá kr. Hanwag Alaska gtx gönguskórnir 10% afsl. Sokkar fylgja með öllum gönguskóm 37.995 13.995 44.995 Útbúnaðinn í rjúpnaveiðina færðu í Ev erest alvöru snjóþrúgur frá Camp verð frá kr. 30% afsl. af öllum goretex jökkum 15-50% afsl. af Ulvang ullarfatnaði Legghlífar, höfuðljós AFSLÁTTUR Hellstu útsölustaðir: Fjarðarsport neskaupstað, Veiðiflugan Reyðarfirði, Skógar Egilstöðum. FÉLAGSMÁL Ögmundur Jónasson fór yfir víðan völl í setningarávarpi sínu á þingi BSRB í gær. Þetta var hans síðasta setningarávarp en nýr formaður verður kjörinn á þinginu á morgun. Ögmundur varði drjúgri stund í að ræða um lífeyri og tæpti meðal annars á hugmyndum um stofnun fjárfestingarsjóðs á vegum líf- eyrissjóðanna til að efla atvinnu. Lýsti hann um leið áhyggjum af velferðarkerfinu enda ríkissjóður og sveitarsjóðir reknir með halla. „Þetta eru sjóðirnir sem fjármagna velferðina, skólana, sjúkrahúsin, stofnanir fyrir fatl- aða, löggæsluna, slökkviliðin, sjúkraflutningana, vatnsveiturn- ar, stofnanir fyrir aldraða, sjálfa innviði samfélagsins. Ég vil láta minn lífeyrissparnað renna þang- að, til að verja innviðina, svo ekki verði grafið undan velferðinni. Aldrei er hennar meiri þörf en í kreppu,“ sagði Ögmundur. Hann spurði hvort menn meintu ekkert með því að varðveita eigi kvenna- störf. Niðurskurður í velferðinni þýði að konum verði vísað út í atvinnuleysi „á sama tíma og spek- ingar setjast yfir að búa til störf fyrir karla. Ég kalla eftir því að lífeyrissjóðirnir setjist yfir þetta með ríkinu og sveitarfélögunum með það í huga að forgangsraða fjármagni til þeirra, láni ríki og sveitarfélögum peningana okkar til að draga úr hinum bratta niður- skurði.“ Ögmundur ræddi líka um skipu- lag verkalýðshreyfingarinnar og sagði það draum sinn að öll helstu samtök launafólks sameinuðust í einum samtökum, Launamanna- sambandi Íslands. Kvaðst hann telja verkalýðshreyfinguna vera í verulegri hættu á að fjarlægjast rót sína, verða stofnun sem væri uppteknari af skipulagsformum en baráttumarkmiðum. Þá sagði hann það hafa vakið honum áhyggjur þegar samtök launafólks komu að gerð stöðugleikasáttmálans síðast- liðið vor og voru samstiga kröf- um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um niðurskurð í velferðarmálum sem öðrum málum. Ögmundur sendi Alþýðu- sambandinu sneið þegar hann rakti að lífeyriskerfi opinberra starfsmanna hefði í tvígang verið hætt komið, fyrst á síðari hluta níunda áratugarins og aftur 1996. „Aldrei áttum við bandamenn í samtökum launafólks á almennum vinnumarkaði í þessari baráttu og litu félagar okkar þar umframrétt- indi opinberra starfsmanna horn- auga. Við höfðum ríkan skilning á kröfum um jöfnuð, nema hvað við viljum jafna kjörin upp á við en ekki niður,“ sagði Ögmundur. bjorn@frettabladid.is Lífeyrissjóðirnir láni til að verja innviðina Ögmundur Jónasson vill að lífeyrissjóðirnir láni hinu opinbera svo draga megi úr niðurskurði til velferðarmála. Hætta sé á að innviðirnir bresti. Hann gagnrýnir að samtök launafólks hafi verið samstiga AGS um niðurskurð í velferðarmálum. LOKAÁVARPIÐ Ögmundur Jónasson setti þing BSRB í síðasta sinn í gær. Hann lætur á morgun af rúmlega tuttugu ára formennsku í bandalaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA REYKJAVÍK Ólafur F. Magnússon greiddi atkvæði gegn nýjum siða- reglur borgarfulltrúa á borgar- stjórnarfundi á þriðjudag. Hann lét bóka að tregða borgarfulltrúa við að upplýsa um prófkjörs- styrki, auk annars, gerði slíkar siðareglur marklausar. „Undirritun borgarfulltrúa á siðareglum fyrir kjörna fulltrúa er ekki pappírsins virði í ljósi þeirrar staðreyndar að fimm af sjö borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokks, sem undirrituðu málefna- samning árið 2008 um meirihluta- myndun með F-listanum, meintu ekki eitt einasta orð af því sem þeir undirrituðu,“ bókar Ólafur. „Miðað við það upplausnar- ástand, blandað mannorðsveiðum, sem ríkt hefur á þessu kjörtíma- bili og hefur ekki síst verið kynt undir af borgarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins, að undanskild- um Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni og Kjartani Magnússyni, verður það að teljast bíræfni af hálfu borgar- fulltrúa að ætla að setja fögur orð á blað og kalla það siðareglur.“ Í ljósi þessa, og áðurnefndrar tregðu borgarfulltrúa við að gefa upp prófkjörsstyrki, segist Ólaf- ur ekki hafa geð í sér til að greiða atkvæði með siðareglunum. - sh Ólafur F. Magnússon mótmælir nýjum siðareglum borgarfulltrúa: Telur siðareglurnar bíræfnar ÓSÁTTUR Ólafur sakar kollega sína í borgarstjórn um hræsni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fang- elsi, skilorðsbundið, og jafnframt sviptur ökurétti í tvö ár fyrir ölvunar akstur og að slasa lög- reglumann. Lögreglan sá manninn þar sem hann ók ölvaður í Kópavogi. Hann sinnti ekki stöðvunar- merkjum, heldur ók þar til hann stöðvaði bifreiðina á Mímisvegi í miðbæ Reykjavíkur. Þar stökk hann út úr henni og hljóp á brott. Lögregla elti hann uppi. Í lög- reglubílnum á leiðinni á lögreglu- stöð veittist hann að lögreglu- manni, sem rifbeinsbrotnaði og tognaði á fingri. - jss Svipting og refsing á skilorði: Rifbeinsbraut lögreglumann VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.