Fréttablaðið - 22.10.2009, Page 16
16 22. október 2009 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Icesave
Nú sér fyrir endann á
Icesave-málinu, samþykki
Alþingi nýtt frumvarp
um ríkisábyrgð. Ljóst er
að enginn er himinlifandi
með þá niðurstöðu sem
liggur fyrir þingi; sumir
telja okkur einfaldlega ekki
komast lengra með samn-
inginn. Það er kannski að
æra óstöðugan að ætla að
rifja feril málsins upp, slíkt
hefur greinafarganið um
það verið, en sagan skiptir
máli.
Fáir frasar munu sennilega lifa
lengur í þjóðarsálinni en tæra
snilldin hans Sigurjóns Þ. Árna-
sonar, bankastjóra Landsbankans.
Í samtali við Markaðinn, fylgirit
Fréttablaðsins, í febrúar 2007,
lýsti hann Icesave-reikningn-
um sem bankinn hafði stofnað í
Bretlandi haustið áður sem tærri
snilld. Því var lýst hvernig hann
hlæjandi hringdi til að athuga
stöðuna: „Það bættust við fimm-
tíu milljónir punda bara á föstu-
daginn.“ Fáum er hlátur í hug
nú, 1.244 milljörðum króna síðar,
þegar ljóst er að landsmenn þurfa
að borga snilldina, sem þótti svo
mikil að í maí 2009 var Icesave
opnað í Hollandi.
En Adam hinn hollenski var
ekki lengi í paradís því innan við
fimm mánuði eftir að hollenskir
sparifjáreigendur flykktust að
Icesave var Landsbankinn allur,
Nýi Landsbankinn búinn að taka
yfir innlendar eignir og óljóst hvað
yrði um þær erlendu. Þar með
hófst Icesave-hildurin sem loks sér
fyrir endann á. Eða hvað?
Það var þá
Bretar voru uggandi um eigur
sínar á Icesave-reikningunum og
8. október frystu þeir allar eignir
Landsbankans í Bretlandi. Ísland
og íslenskar fjármálastofnanir
voru flokkaðar með hryðjuverka-
mönnum. Óhætt er að segja að
íslenskir stjórnmálamenn hafi
tekið það óstinnt upp; hver á fætur
öðrum lýstu þeir vantrú sinni og
óbeit á aðgerðum Breta. Að vina-
þjóð skyldi koma svona fram við
okkur. Stjórnarandstaðan, með
Steingrím J. Sigfússon í broddi
fylkingar, sagði aldrei verða samið
við slíkar aðstæður. Sá tónn átti
eftir að breytast þegar hann komst
til valda.
Ríkisstjórnin hins vegar lýsti
sig við ýmis tækifæri reiðubúna
til samninga. Björgvin G. Sigurðs-
son viðskiptaráðherra sendi bréf
þess efnis og ráðuneytisstjórar
skrifuðu fyrir hönd Íslands undir
yfirlýsingu við Hollendinga um að
skuldin yrði greidd. Á tíu árum
með 6,7 prósenta vöxtum. Íslensk
stjórnvöld sögðu samninginn þó
ekki bindandi, enda aðeins yfir-
lýsing um sameiginlegan skilning.
Stjórnin sagðist einnig óbundin af
samþykki Árna M. Mathiesen fjár-
málaráðherra um að leggja málið
fyrir gerðardóm. Stjórnin studdi
ráðherrann ekki í því, þótt hann
hefði jánkað slíkri lausn á fundi
fjármálaráðherra í Brussel.
Ríkisstjórnin taldi ráðlegast að
semja, þrátt fyrir hryðjuverkalög-
in sem enn voru í gildi. Stjórnar-
þingmenn sögðu ekki hægt að
standa fast á dómstólaleiðinni, þó
að margir þeirra telji hana núna
einu leiðina. 5. desember sam-
þykkti Alþingi að fara í viðræður.
Miðsumarþing
Ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna tók upp þráð-
inn frá þeirri fyrri og hélt samn-
ingaviðræðum áfram. Nýju fólki
fylgdi ný nefnd og sá gamli refur
úr pólitík inni, Svavar Gestsson,
var leiddur til forystu í henni.
Valið hefur verið gagnrýnt: Var
Svavar of tengdur stjórnmálunum
til að teljast embættismaður þrátt
fyrir að vera sendiherra? Og ef
hann telst stjórnmálamaður, af
hverju fékk stjórnarandstaðan þá
ekki sína fulltrúa? Þá hefur löng-
um verið gagnrýnt að málið skyldi
ekki tekið upp á æðsta stig stjórn-
málanna; að forsætisráðherra hitti
kollega sína til ráðslags.
Eftir langar og strangar samn-
ingaviðræður skrifaði Svavar
undir samning fyrir Íslands hönd
5. júní, með fyrirvara um sam-
þykki Alþingis um ríkisábyrgð. Og
hafi einhver haldið að málinu væri
þá lokið skjöplaðist honum.
Við tóku langar og strangar
umræður á sumarþinginu. Yfir-
lýsingar gengu á báða bóga, stjórn-
in virtist vera fallin, vangaveltur
um stuðning ráðherra við málið.
Var um landráð eða slynga samn-
ingatækni að ræða? Hiti og þungi
vinnunnar lenti á fjárlaganefnd
og segja má að brotið hafi verið
blað í störfum þingsins. Stjórn og
stjórnarandstaða störfuðu saman.
Á endanum voru það þó aðeins
stjórnarþingmenn sem greiddu
málinu atkvæði sitt.
Fyrirvararnir
Frumvarp um ríkisábyrgð vegna
Icesave var samþykkt á Alþingi
28. ágúst. Í lögunum voru fjöl-
margir fyrirvarar við ábyrgðina,
svo margir að sumir töldu um nýja
samninga að ræða. Í þeim hópi
voru Bretar og Hollendingar sem
settust aftur að samningaborðinu,
nú um fyrirvarana.
Þó að öllum hafi verið í mun að
ljúka samningum þarf engum blöð-
um um það að fletta að viðsemj-
endum Íslendinga þótti þeir fulloft
skipta um skoðun. Fréttablaðið
hefur heimildir fyrir því að aftur-
hvarf frá stuðningi við gerðardóm-
inn sem Árni Mathiesen vildi, frá
samkomulagi við Hollendinga um
greiðslu á 6,7 prósenta vöxtum og
ítarlegir fyrirvarar við gerðan
samning; allt þetta hafi setið tölu-
vert í Bretum og Hollendingum.
Engu að síður töldu stjórnvöld
samningana ganga vel. Fréttir bár-
ust af því að hver af öðrum væru
fyrirvararnir samþykktir. Mikil
fundarhöld stóðu yfir, embættis-
menn hittust og fjármálaráðherra
sat ófáa fundi um málið.
Þegar upp stóð segir ríkis-
stjórnin aðeins tvo fyrirvara
standa út af. Gallinn er sá að
það eru fyrir varar sem stjórnar-
andstaðan segir þá allra mikilvæg-
ustu; að ekki þurfi að greiða leng-
ur af láninu en til 2024 og skýlaust
ákvæði um að Íslendingar dragi
lögmæti kröfunnar í efa.
Ekkert gefið eftir
Ríkisstjórnin skrifaði undir sam-
komulagið 18. október og dag-
inn eftir var frumvarpi um málið
útbýtt á þingi. Af viðbrögðum
stjórnarandstöðu við umleitan um
afbrigði til að hægt væri að taka
málið fyrr á dagskrá að dæma,
er ljóst að ekkert verður gefið
eftir.Yfirlýsingar forystumanna
stjórnar andstöðuflokkanna hafa
enda gefið það til kynna.
Fá mál hafa snert jafnmikið
við þjóðarsálinni og Icesave.
Skyldi engan undra; fólkinu svíð-
ur að þurfa að greiða skuldir sem
hún átti engan þátt í að stofna til.
Brigsl um landráð og svik eru
algeng og allir hafa selt æru sína
að mati andstæðinganna.
Reynt hefur á samstöðu ann-
arra þjóða með Íslendingum og
þykir Frónbúum þeir illa sviknir
í þeim viðskiptum. Vinaþjóðirnar
yfirgáfu okkur hver af annarri,
utan Færeyinga sem gleyma aldrei
vinum í neyð.
Ljóst þykir að meirihluti er fyrir
málinu á Alþingi. Jafn ljóst er að
stjórnarandstaðan mun ekki gefa
neitt eftir. Því sér fyrir endann á
formlegri afgreiðslu málsins. Sárið
á þjóðarsálinni mun þó trauðla
gróa í bráð.
Langri sögu samninga er að ljúka
ICESAVE-KYNSLÓÐIN? Er þetta kynslóðin sem mun Icesave erfa eða standast
spádómar stjórnvalda um að málinu ljúki fyrir 2024? Fá mál hafa lagst jafn þungt á
þjóðarsálina og tæra snilldin hans Sigurjóns. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTASKÝRING
KOLBEINN
ÓTTARSSON PROPPÉ
kolbeinn@frettabladid.is
Tímalína
2006
10. nóvember – Icesave stofnað í Bretlandi
2009
24. febrúar – Ný samninganefnd skipuð undir forystu Svavars Gestssonar
5. júní – Skrifað undir samningana
31. júlí – Icesave gögn (flest) opinberuð
28. ágúst – Alþingi samþykkir ríkisábyrgð með fyrirvörum
17. október – Skrifað undir samninga á ný
19. október – Frumvarpi útbýtt á Alþingi
2008
29. maí – Icesave stofnað í Hollandi
8. október – Bretar frysta eignir Landsbankans í Bretlandi
9. október – Nýi Landsbankinn tekur yfir innlendar eignir
11. október – Samkomulag við Hollendinga um greiðslu Icesave á 6,7% vöxtum
4. nóvember – ECOFIN, fundur fjármálaráðherra ESB og EFTA
5. desember – Alþingi samþykkir að ljúka Icesave með samningum
Útgáfuhóf vegna bókarinnar
verður haldið á Súfistanum,
Laugavegi 18, í dag kl. 17.
Allir velkomnir.
Vönduð og spennandi
ævisaga eftir
tónlistarfræðinginn
Á R N A H E I M I
I N G Ó L F S S O N
Icesave-upphæðir
Bretland Holland
Innistæður á Icesave Lán til Íslendinga
2000
1500
1000
500
0
5000
4000
3000
2000
1000
0
Greiðslubyrði
Íslands
M
ill
jó
n
ir
p
u
n
d
a
M
ill
jó
n
ir
ev
ra
M
ill
jó
n
ir
kr
ó
n
a
* Miðað við 90 prósenta
endurheimtuhlutfall eigna
Landsbankans. Um núvirta
upphæð er að ræða og vaxta-
kostnaður reiknaður með.
200
150
100
50
0
4.
52
7
2.
35
0
1.
67
4
1.
32
9
Greiðslubyrði Íslendinga*
Árleg greiðsla 2016-2024
£ €