Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 26
22. október 2009 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Prestar skrifa um deilur í
Selfosssöfnuði
Í bréfi til Biskups Íslands, dag-settu 12. september 2009, frá
sex starfandi prestum og fjórum
prestum sem hættir eru störf-
um er gagnrýnd sú ákvörðun að
færa sóknarprestinn á Selfossi til í
starfi. Þar er einkum byggt á þeim
rökum að með því sé ekki farið
eftir þeim lögum sem í landinu
ríkja og þar af leiðandi verði til
fordæmi á þá leið að auðvelt gæti
reynst að koma presti úr embætti
með jafnvel tilefnislausum ákær-
um. Við lýsum okkur ósammála
þessu bréfi og þeirri röksemda-
færslu sem þar birtist.
Málefni Selfosssafnaðar hafa
verið í brennidepli um þó nokk-
urn tíma. Ákvörðun Biskups um
að færa sóknarprestinn í starfi
byggir hann m.a. á að upp hafi
komið trúnaðarbrestur og komi
sóknarprestur aftur til starfa
verði erfitt að halda uppi eðli-
legu safnaðar starfi. Undir þessa
ákvörðun tökum við heilshugar.
Sú ákvörðun mun ekki byggð
á geðþótta heldur er þvert á móti
í anda þeirra starfsreglna sem
Þjóðkirkjan hefur sett sér um
meðferð kynferðisafbrota innan
hennar, sem og niðurstaða þeirra
nefnda sem um málið hafa fjall-
að innan kirkjunnar, þ.e. Úrskurð-
arnefndar Þjóðkirkjunnar sem
og Siða nefndar Prestafélags
Íslands. Segir Úrskurðarnefnd
m.a.: „Úrskurðarnefnd telur að
ekki verði hjá því komist að telja
þá háttsemi sem gagnaðili sýndi
unglingsstúlkunum tveimur og
sem hann sjálfur hefur staðfest,
fela í sér ótvírætt siðferðisbrot
í skilningi tilvitnaðra laga og
reglna.“ Í umfjöllunum sínum ber
þessum nefndum saman því Siða-
nefnd segir m.a: „Það er samdóma
álit siðanefndar að hegðun …[NN]
í ofangreindum tilvikum brjóti
í bága við siðareglur PÍ einkum
greinar 2.3 og 2.4.“ (http://kirkj-
an.is/pi/sidareglur)
Það er ávallt erfitt fyrir kær-
endur kynferðisbrota að koma
fram í dagsljósið. Sönnunarkröf-
ur í slíkum málum eru afar mikl-
ar og er það langt í frá þannig að
öll kærð mál endi fyrir dómstól-
um. Rétt er að halda því til haga
hér að fimm kærur hlutu lög-
reglurannsókn, þrjár voru felld-
ar niður vegna fyrningar og tvær
kærur hlutu dómsmeðferð. Rétti-
lega er með farið að ákærði hafið
hlotið sýknun samkvæmt skiln-
ingi laga.
Hins vegar er ógerningur að
líta framhjá þeim starfsreglum
sem kirkjan hefur sjálf sett sér.
Það væri ekki síður fordæmisgef-
andi ef Þjóðkirkjan hefði að engu
starfsreglur sem Kirkjuþing hefur
samþykkt, sem æðsta vald í mál-
efnum Þjóðkirkjunnar innan lög-
mæltra marka. Hinir tíu prestar
sem ritað hafa biskupi bréf telja
að Þjóðkirkjan sé með ákvörðun
biskups að leitast við að skapa sér
nýjar réttarreglur sem geti vakið
guðfræðilegar spurningar. Und-
irrituð eru sammála bréfritur-
um um að tilfærslu séra Gunnars
Björnssonar í starfi beri að skoða
í ljósi guðfræðinnar, en ólíkt þeim
teljum við að hin guðfræðilegu
sjónarmið snúist um kirkju- og
mannskilning sem tekur mið af
siðferðilegum álitamálum nútím-
ans.
Við teljum að Þjóðkirkjan vitni
um grundvöllinn sem hún þjónar
þegar hún stendur vörð um öryggi
barna og ungmenna sem henni er
treyst fyrir. Kirkja sem er trú
slíkri guðfræði hefur börnin í for-
grunni sem Kristur kallaði til sín,
og varnar þeim eigi.
Sú ákvörðun að færa sóknar-
prestinn til í embætti er að okkar
mati óumflýjanleg. Hún er einnig
í samræmi við þá ályktun sem
samþykkt var samhljóða á Presta-
stefnu sem haldin var í Kópavogi í
apríl 2009 þar sem Biskup Íslands
var hvattur til að nýta þær leiðir
sem hann hefur til lausnar í mál-
efnum Selfosssafnaðar.
Við vonum og biðjum að með
skýrri ákvörðun Biskups fáist
langþráður friður svo að sóknar-
nefnd sem er einhuga um málið
geti staðið vörð um uppbyggjandi
safnaðarstarf í kirkju sem ber að
vera öruggt skjól fyrir sóknarbörn
sín og hver þau sem þangað leita.
Höfundar eru prestar: Guðbjörg
Arnardóttir, Hildur Eir Bolla-
dóttir, Arnfríður Guðmunds-
dóttir, Sigrún Óskarsdóttir,
Guðný Hallgrímsdóttir, Sigríður
Guðmarsdóttir, Gunnar Rúnar
Matthíasson, Þórhallur Heim-
isson, Halldóra Þorvarðardótt-
ir, Magnús Erlingsson, Guð-
björg Jóhannesdóttir, Guðrún
Karlsdóttir, Ingileif Malmberg,
Jóna Lovísa Jónsdóttir, Vig-
fús Bjarni Albertsson, Petrína
Mjöll Jóhannesdóttir, Íris Kristj-
ánsdóttir, Arna Grétarsdótt-
ir, Elínborg Sturludóttir, Sigríð-
ur Munda Jónsdóttir, Toshiki
Toma, Sigurður Grétar Sigurðs-
son, Gunnar Jóhannesson og
Sigfús Kristjánsson.
Kirkjunni ber að
vera öruggt skjól
Við teljum að Þjóðkirkjan vitni
um grundvöllinn sem hún
þjónar þegar hún stendur vörð
um öryggi barna og ungmenna
sem henni er treyst fyrir.
Kirkja sem er trú slíkri guð-
fræði hefur börnin í forgrunni
sem Kristur kallaði til sín, og
varnar þeim eigi.
UMRÆÐAN
Tryggvi Agnarsson
skrifar um afskriftir
skulda
Sú alvarlega meinloka virðist nú ríkjandi
meðal ýmissa ráðamanna
þjóðarinnar og hjá ríkis-
bönkunum að alls ekki
megi koma skuldugum fyrirtækj-
um til hjálpar með niðurfærslum
eða afskriftum skulda nema nýir
eigendur taki fyrst við rekstri
þeirra.
Þetta hlýtur að byggja á því að
núverandi eigendur hafi staðið
sig illa við rekstur félaga sinna
og því þurfi að flæma þá frá. En
þetta er alls ekki alltaf raunin.
Mörg fyrirtæki, sem hafa verið
vel og skynsamlega rekin og
skila ágætri framlegð eru
nú orðin allt of skuldug
vegna þess að áður hóf-
leg skuldsetning þeirra
hefur vaxið gríðarlega
vegna hrunsins og er nú
orðin óbærileg.
Með þessari ábendingu
er ég alls ekki að gera
lítið úr nauðsyn þess að
þeim eigendum og stjórn-
endum fyrirtækja, sem
rekið hafa fyrirtæki sín illa verði
komið frá og nýju fólki komið að
stjórnveli.
Það er að mínu viti brýn nauð-
syn að greina hafrana frá sauðun-
um í þessum efnum og koma strax
þeim fyrirtækjum til hjálpar þar
sem skuldavanda vegna hruns-
ins verður um kennt en ekki van-
hæfni stjórnenda og eigenda.
Höfundur er lögmaður.
Hættuleg meinloka
TRYGGVI
AGNARSSON
Hollráð gegn innbrotum
oryggi.is
Hringdu í 570 2400 og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim!
Verðmæti innandyra
Ekki láta þá sem standa fyrir utan húsið sjá verðmæti
eins og fartölvur, myndavélar og annað sem auðvelt
er að koma í verð.
Fleiri hollráð gegn innbrotum er að finna á oryggi.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
13
40
!!" #$!!" %%% &
' (
))* (
)+,-
).
/
' (
))0 ) )1)2+,).
/!
34,56
)
' (
))* (
#7
78
9!:; 9
8 ,
!:; 9
8
)
7 <
) ;
,9,'=
;9 /!:
;
#
9
; 9 9;9) 7
7
,9,'=
"
! "
"
#$ "
$
"
% " $# &%" ' ')"
& '*
'* +"""
',- '. ') "
'/ "
0&
+1
"
"-
.
* $# &%"
2
324*/5 +
11 7
+
# 8
3; 9 9/ ? 2
)
9
;
;
@