Fréttablaðið - 22.10.2009, Page 27
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 12.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
6 mán. vaxtalausar greiðslur
Fyrst og fremst í heilsudýnum
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
BRESKA TÍSKUVERÐLAUNAHÁTÍÐIN verður haldin 9. desem-
ber næstkomandi. Galakvöldið markar lok viðburðaríks afmælisárs tísku-
vikunnar í London sem haldin var í 25. sinn. Verðlaun verða veitt þeim
sem mest áhrif hafa í tískubransanum en eftirsóttastur er titillinn um
tískuhönnuð ársins. Í fyrra var það Luella Bartley sem hreppti hann.
Heba Pétursdóttir er 22 ára nemi
í Hönnunar- og handverksskól-
anum. Þar er hún líka formaður
nemendafélagsins og í hópi þeirra
nemenda sem fá hæstu einkunnir
skólans. Þetta gerir hún samhliða
því að vera einstæð móðir þriggja
ára tvíburasystkina. Einhver gæti
haldið að manneskja með jafn
mörg járn eldinum myndi vart
hafa tíma, nennu eða fjármuni til
að vera ávallt áberandi smekklega
klædd en það virðist ekki fyrir-
staða hjá henni Hebu.
Hún segist dugleg við að veiða
gleymdar gersemar úr skúffum
hjá ömmum sínum og frænkum.
Þar fyrir utan kunni hún tökin á
saumavélinni og geti auðveldlega
breytt og bætt föt fyrir sig og
börnin. „Amma mín og mamma
gáfu mér saumavél á sínum tíma
og það kom mér á sporið,“ segir
Heba og kímir. Hún segir föður-
ömmu sína, sem búsett er í Chi-
cago, duglega við að leita uppi
föt sem hún telji líkleg til að
heilla ömmubarnið á Íslandi. Sú
amma hafi helgað líf sitt því að
aðstoða HIV-smitaða sprautufíkla
vestanhafs og hafi því öðruvísi
sýn á lífið en hún eigi að venjast,
og hin amman sé engri lík þegar
komi að handavinnu.
Heba segir að sér þyki tíska
stríðsáranna heillandi. Hún bætir
svo við að sér þyki gróskan og
frumleikinn í klæðnaði Íslend-
inga áhugaverð og stuttur göngu-
túr í námunda við heimili sitt í
miðbænum sé oft nægilegur til að
kveikja ótal hugmyndir í huga sér.
„Ég hef alltaf viljað skara fram úr
og setja mér markmið og hlakkað
til næsta dags,“ segir hún og þver-
tekur fyrir að hafa nokkurn tím-
ann litið á móðurhlutverkið sem
einhvers konar hindrun þótt það
hafi ekki verið á óskalista hennar
á sínum tíma að verða nítján ára
gömul tveggja barna móðir. Hönn-
unin eigi vel við hana en undan-
farið hafi leiklistin heillað hana æ
meira. Henni kynntist hún þegar
hún lék í stuttmyndum hjá nemum
í Kvikmyndaskólanum. „Annars
heillar leikmyndahönnun mig
nú líka, það gæti sameinað þetta
tvennt.“
karen@frettabladid.is
Gleymdar gersemar,
ömmur og stríðsárin
Einhverjir gætu haldið að rúmlega tvítugri stúlku með þriggja ára tvíbura gæfist lítill tími til að sinna
útlitinu og námi. Hebu Pétursdóttur tekst þó að sameina þessa þætti með prýði.
Heba segist alltaf hlakka til framtíðarinnar þótt hugurinn reiki til fortíðarinnar þegar kemur að klæðnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Auglýsingasími
– Mest lesið