Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 32
22. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR
1.
2.
4.
3.
3. Open Country All Terrain
Frábær alhliða jeppadekk. Henta mjög vel í snjó og hálku.
Einstaklega hljóðlát. Neglanleg.
1. Open Country Ice Terrain
Frábær vetrardekk fyrir jeppa borað fyrir nagla. Dekk
sem hafa reynst frábærlega við íslenskar aðstæður.
Neglanleg.
2. Open Country Winter Terrain
Mjög góð jeppavetrardekk með háum hraðastuðli. Henta
mjög vel sem heilsársdekk. Óneglanleg.
4. Open Country Mud Terrain
Frábær alhliða jeppadekk. Henta mjög vel í snjó og hálku.
Einstaklega hljóðlát. Neglanleg.
Toyo-harðskeljadekkin hafa
verið að sækja í sig veðrið
undan farin ár en í þeim eru
meðal annars valhnetuskelja-
brot sem gefa gott hálkugrip.
Toyo-harðskeljadekkin eru áhuga-
verður kostur fyrir fólk sem vill
aka um á öruggum ónegldum
dekkjum. „Toyo Tires eru jap-
önsk dekk sem eru framleidd
samkvæmt nýjustu og þróuð-
ustu tækni,“ segir Jón Hauksson,
yfirmaður dekkjadeildar Bíla-
búðar Benna, sem er umboðsaðili
Toyo Tires á Íslandi.
„Í Toyo-harðskeljadekkjunum
eru valhnetuskeljabrot í gúmmí-
blöndunni, en valhnetuskel er eitt
sterkasta efni sem finnst í náttúr-
unni. Skeljabrotin klóra í svellið og
gefa aukið grip í hálku. Í dekkjun-
um er einnig hátt hlutfall af gúmmí-
íblöndunarefninu silica sem gerir
það að verkum að gúmmíið harðnar
ekki í miklum kulda. Það er mikill
kostur því mjúk gúmmíblanda
gefur mun meira grip í hálku. Þá
eru dekkin mikið míkróskorin, sem
tryggir enn betra grip.“ Spurður
nánar út í míkróskurðinn segir Jón
þá um mikið útskorin dekk að ræða
og er hver kubbur skorinn í marga
djúpa flipa.
Bílabúð Benna hóf að selja
Toyo-dekkin árið 2005 og hefur
sala harðskeljadekkjanna nánast
tvöfaldast á hverju ári. Aukningin
hefur verið sérstaklega mikil á
landsbyggðinni og virðast mun
fleiri vera farnir að átta sig á
kostum ónegldra dekkja. Jón segir
kostina fjölmarga og nefnir dæmi:
„Í fyrsta lagi eru ónegld dekk
mun umhverfisvænni en nagla-
dekk. Þau þyrla ekki upp heilsu-
spillandi svifryki og eyðileggja
ekki göturnar okkar. Þá eru þau
mun hljóðlátari en nagladekk, sem
eykur akstursánægju til muna.
Eins er hægt að setja dekkin
undir snemma hausts og taka þau
undan eins seint og hentar, enda
þarf ekki að fara eftir ákveðnum
dagsetningum eins og þegar um
nagladekk er að ræða.“
Jón segir auk þess marga við-
skiptavini Bílabúðar Benna aka á
harðskeljadekkjunum allt árið um
kring og þeir séu því ekki í stór-
hættu þegar fyrstu hálkan geri
vart við sig. „Ég tel næsta víst
að umferðarslysum fyrstu vetrar-
dagana ár hvert myndi fækka
til muna ef allir ökumenn væru
komnir á vetrardekk snemma
á haustin. Fólk sem ekur um á
nagladekkjum er oft að bíða af
sér fyrsta hretið, sem getur haft
alvarlegar afleiðingar í för með
sér. Þá veita nagladekk mörgum
falska öryggistilfinningu og finnst
sumum þeir geta keyrt hraðar en
aðstæður raunverulega leyfa.“
Loks segir Jón áhyggjur af nagla-
dekkjasekt úr sögunni á ónegldum
dekkjum.
Jón segist fá bestu með-
mælin frá leigubílstjórum og
ökukennurum, sem noti dekkin í
síauknum mæli. „Þetta eru fag-
menn með mikla reynslu af bæði
bílum og dekkjum. Þeir hafa sér-
staklega á orði hversu vel þessi
mjúku, hljóðlátu og gripmiklu
dekk endist, en ekki er óalgengt að
leigubílstjórar og ökukennarar nái
um 75-85 þúsund kílómetra end-
ingu á harðskeljadekkjunum.“
Bílabúð Benna selur ýmsar
gerðir Toyo-vetrardekkja og þar
á meðal nagladekk. „Við mælum
þó eindregið með ónegldum dekkj-
um,“ segir Jón. „Verkstæðin okkar
eru að Vagnhöfða og Tangarhöfða
og svo erum við með Nesdekk á
Granda og í Keflavík.“ Jón segir
eftirspurnina hafa verið mikla í
fyrra og þurft hafi að þrefalda af-
kastagetuna í ár. „Við höfum ráðið
sjö manns til viðbótar fyrir törn-
ina sem er fram undan.“ - ve
Búin skeljabrotum
sem gefa aukið grip
Bílabúð Benna hefur þrefaldað afkastagetuna í ár miðað við árið í fyrra til að geta tekið við öllum þeim sem þurfa að skipta um
dekk fyrir veturinn.
Jón segir bestu meðmælin
koma frá leigubílstjórum og
ökukennurum sem segja harð-
skeljadekkin mjúk, hljóðlát,
gripmikil og endingargóð.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R