Fréttablaðið - 22.10.2009, Page 34
22. OKTÓBER 2009 FIMMTUDAGUR
● VARADEKKIÐ UNDIR BÍLINN Þótt sú list að skipta um dekk
sé kennd í ökuskólum eru ekki allir sem viðhalda kunnáttunni og lenda
í stökustu vandræðum þegar springur á bílnum. Hér eru nokkur ráð um
hvernig eigi að bera sig að við dekkjaskipti:
- Í fyrsta lagi þarf að huga að örygginu. Ef bíllinn stendur við umferðar-
götu er ráðlegt að stilla upp viðvörunarþríhyrningi nokkrum metrum fyrir
framan bílinn til að vara aðra ökumenn við.
- Best er að byrja á því að losa rærnar gegnt gangi klukkunnar. Hættulegt
getur verið að losa rærnar eftir að bíll hefur verið tjakkaður upp.
- Þá er tjakknum komið fyrir. Yfirleitt er sérstakur flötur undir bílnum þar
sem gert er ráð fyrir að tjakkurinn lendi svo ekkert skemmist.
- Síðan er bíllinn tjakkaður upp þar til dekkið er ekki lengur í snertingu við
jörðina. Þá eru rærnar losaðar af og dekkið fjarlægt.
- Nú er varadekkið sett á og rærnar skrúfaðar á. Ekki skal herða á rónum
meðan bíllinn er tjakkaður upp. Fyrst skal tjakka hann niður og síðan má
herða. Ef þetta er ekki gert er hætta á að bíllinn detti af tjakknum og eitt-
hvað skemmist. - sg
Sjaldgæft er að hægt sé að
kaupa mat, föt, lopa og dekk
og greiða fyrir það allt við
sama kassann. Sú er þó raunin
í Hagkaupum. Gunnar Ingi
Sigurðsson framkvæmdastjóri
lýsir fyrirkomulaginu nánar.
„Það er rétt. Þú getur keypt í mat-
inn, fatað fjölskylduna upp og
keypt dekkjagang í leiðinni á fínu
verði. Svo snýrðu þér til þjónustu-
aðila okkar sem er Borgardekk í
Borgartúninu í Reykjavík og þar
færðu afslátt af skiptingu og um-
felgun. Þetta fyrirkomulag hefur
verið við lýði bæði vor og haust
undanfarin tíu ár. Við erum stolt
af því og höfum verið að efla þessa
þjónustu frekar en hitt, enda er
almenn ánægja með hana. Hún
eykur þægindin fyrir viðskipta-
vininn því fólki finnst gott að geta
keypt allt á sama stað.“
Gunnar Ingi tekur þó fram að
dekkin séu til sýnis í anddyri Hag-
kaupa en ekki til afgreiðslu þar.
„Viðskiptavinurinn kemur ekki
með dekkin í körfu að kassanum,“
segir hann, „heldur skoðar núm-
erið á dekkjunum undir bílnum,
leggur inn pöntun og gengur frá
greiðslunni í Hagkaupum. Þá fær
hann beiðni og kvittun sem hann
framvísar í Borgardekkjum og
fær þar afslátt af skiptingu og um-
felgun. Við græðum ekkert á því
að selja viðskiptavininum eitthvað
sem hann lendir í vandræðum með.
Þess vegna lögðum við mikið upp
úr því að hafa góðan þjónustuaðila
og það er Borgardekk.“
Hagkaup selja að sjálfsögðu
sumardekk á vorin og vetrardekk á
haustin að sögn Gunnars, sem fær
dekkin hingað til lands frá Belgíu.
„Við leggjum upp úr því að bjóða
upp á ódýran valkost í þessu sem
öðru. Samt eru þetta fín dekk sem
við höfum góða reynslu af. Ég hef
sjálfur keyrt á þeim og er að fara
inn í fjórða veturinn á sömu vetrar-
dekkjunum.“
Bjóðum ódýran valkost
Gunnar Ingi
Sigurðsson
segir auðvelt
að kaupa
dekk í Hag-
kaupum um
leið og verslað
er í matinn.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
1.
3.
1. Wanli heilsársdekk
Heilsársdekk fyrir fólksbíla og jepplinga.
Verð frá 8.799 kr.
2. Wanli heilsársdekk
Heilsársdekk fyrir fólksbíla og jepplinga.
Felga ekki innifalin í verði.
Verð frá 8.799 kr.
3. Wanli vetrardekk
Nelgd vetrardekk fyrir fólksbíla og jepplinga.
Verð frá 9.999 kr.
2.