Fréttablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 50
38 22. október 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Nú þegar elleftu Airwaves-hátíðinni er lokið er ekki úr vegi að spá í
það hvernig til tókst og velta fyrir sér framtíðinni. Það er ekki hægt
að segja annað en að Airwaves 2009 hafi tekist mjög vel. Allt skipulag
var til fyrirmyndar, dagskráin hélt vel og sándið var fínt. Það sýndi sig
bæði á Réttum og Airwaves að
það er nóg til af fólki með þekk-
ingu og reynslu til að henda upp
nokkurra daga tónlistarhátíð
með hundruðum hljómsveita án
nokkurra vandkvæða.
Það var kannski ívið meira
af erlendum hljómsveitum sem
stóðust ekki væntingar á Air-
waves 2009 heldur en stundum
áður, en það er samt hluti af
pakkanum. Sumir valda von-
brigðum og aðrir fara fram úr
björtustu vonum. Og stemningin var frábær. Gleðin og stuðið réðu
ríkjum hvort sem það var hjá Introbeats sem lokaði hiphop-kvöldinu
með rjómanum af íslenskum röppurum, Anonymous á Weirdcore-
kvöldinu, Berndsen & the Young Boys á Batteríinu eða Casiokids í
Hafnarhúsinu. Í raun hefur Iceland Airwaves náð þeim stað að það
skiptir ekki öllu máli hvaða hljómsveitir eru að spila. Það er alltaf
gaman.
Samningur Hr. Örlygs við Icelandair og Reykjavíkurborg rennur út í
nóvember og að sjálfsögðu reikna allir með að hann verði endurnýjað-
ur, enda er Airwaves ekki bara erlendur gjaldeyrir heldur líka jákvæð
umfjöllun um land og þjóð. Góðar fréttir frá Íslandi. Rekstrar aðilar
Hr. Örlygs hafa undanfarið fengið á sig ásakanir um fjármálaóreiðu og
vanefndir á samningum. Að sjálfsögðu þurfa þeir að gera hreint fyrir
sínum dyrum til að fá samninginn framlengdan. Það er mikilvægt til að
allir geti sameinast um þessa mestu hátíð íslensks tónlistarlífs.
En aftur að Airwaves 2009. Hápunkturinn? Hiklaust Micachu & The
Shapes …
Góðar fréttir frá Íslandi
MICACHU & THE SHAPES Flottasta tónlistar-
atriði Iceland Airwaves 2009.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SVEINSSON
Jeremy Gara, trommari
kanadísku hljómsveitar-
innar Arcade Fire, spilar á
nýrri sólóplötu Bens Frost,
By the Throat. Ben hefur í
nógu að snúast auk sólóplöt-
unnar því hann samdi til að
mynda tónlist fyrir sjón-
varpsþættina Hamarinn.
„Hann er frábær náungi og hefur
mjög góða tilfinningu fyrir tón-
list,“ segir Ben Frost um Jeremy
Gara, trommuleikara Arcade Fire,
sem leikur á nýjustu plötu hans.
Platan er gefin út hjá íslenska
útgáfufyrirtækinu Bedroom
Community sem Valgeir Sigurðs-
son rekur en Ben hefur búið hér-
lendis undanfarin ár. „Hann var
að taka upp með Owen Pallett úr
Final Fantasy. Við vorum í stúdíó-
inu saman og ég var með hug-
myndir sem ég vildi prufa. Hann
var alveg til í að hjálpa mér,“ segir
Ben. „Það var magnað að vinna
með honum og mjög sérstakt að
hlusta á hvernig hann spilaði af
fingrum fram.“
Arcade Fire hefur gefið út tvær
plötur við frábærar undirtektir
og er sveitin ein sú virtasta í
tónlistarbransanum í dag. Hún
hefur á ferli sínum verið tilnefnd
til þrennra Grammy-verðlauna og
fimm Brit-verðlauna. Aðrir sem
aðstoða Ben á plötunni er hljóm-
sveitin Amiina, sænska rokksveit-
in Crowpath og Nico Muhly, sem
samdi tónlistina við Óskarsverð-
launamyndina The Reader.
Ben hefur haft í nógu að snúast
því tónlist hans hljómar einnig í
sakamálaþáttunum Hamrinum í
Sjónvarpinu sem Reynir Lyngdal
leikstýrir. „Við ræddum um sam-
starf fyrir löngu. Síðan bauð
hann mér þetta starf og ég var
mjög spenntur,“ segir hann og
er ánægður með samstarfið við
Reyni. „Hann gaf mér svigrúm
til að leika mér og búa til eitthvað
nýtt, enda er þetta ekki hefðbund-
in sjónvarpsþáttatónlist.“ Að auki
er hann nýkominn frá föðurlandi
sínu Ástralíu þar sem hann samdi
tónlist við nýtt dansverk Ernu
Ómarsdóttur, sem hún vinnur í
samstarfi við þarlendan dans-
flokk.
Ben heldur útgáfutónleika á
laugardaginn vegna evrópskrar
dreifingar By the Throat á tón-
listarhátíðinni Unsound í Kraká
í Póllandi. Ásamt honum spila á
hátíðinni þeir Valgeir Sigurðs-
son, Nico Muhly og Sam Amidon.
Í nóvember fer hann síðan í tón-
leikaferð um Evrópu sem nefnist
Hvalveiðitúrinn. Þar verða félag-
ar hans úr Bedroom Community
einnig með í för og leika sína eigin
tónlist, auk þess að aðstoða hver
annan. freyr@frettabladid.is
TROMMARI ARCADE FIRE Á
NÝRRI PLÖTU BENS FROST
BEN FROST Tónlistarmaðurinn Ben Frost
er ánægður með samstarfið við Jeremy
Gara úr Arcade Fire. Gara spilar á nýrri
sólóplötu Bens. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
> Í SPILARANUM
Sykur - Frábært eða frábært
Gummzter - Erkiengill
The Drums – Summertime EP
Ívar Bjarklind - Tíu fingur og tær
Jimi Tenor & Tony Allen – Inspiration Information 4
SYKUR JIMI TENOR & TONY ALLEN
> Plata vikunnar
Hallur Ingólfsson og Halldóra
Malín Pétursdóttir - Disaster
Songs
★★★★
„Mjög flott plata sem vantar
bara hittara til að verða enn
betri.“ Dr. Gunni
Íslandsvinurinn John Fog-
erty er búinn að gefa út
nýja plötu, The Blue Ridge
Rangers Rides Again. Plat-
an er óformlegt framhald
fyrstu sólóplötu kapp-
ans frá 1973, sem eins og
þessi inniheldur tökulög.
Á þessari kántríslegnu
plötu rennir John sér
meðal annars í lög eftir
John Denver, Rick Nelson
og Buck Owens. Meðlimir
úr Eagles eru til aðstoðar
svo og Bruce Springsteen
sem syngur Everly Broth-
ers-lagið „When Will I Be
Loved“ með hinum 64 ára
gamla kántrírokkara.
Fogerty tekur kántrílög
JOHN FOGERTY ROKKAR Í Laugardalshöll í fyrra.
FM Belfast er eina íslenska hljóm-
sveitin sem fær sess í upptalningu
breska tímaritsins Q á tíu bestu
sveitum Iceland Airwaves-hátíð-
arinnar.
„Á meðan sumar indísveitir eru
með áberandi fýlusvip þá hikar
FM Belfast ekki við að innleiða
húmor í lögin sín. Dæmi um það
er lag eins og Underwear sem
fjallar um að „hlaupa niður göt-
una á nærfötunum einum saman“,“
segir í umsögninni. Á meðal ann-
arra hljómsveita sem vöktu athygli
Q eru The Field frá Svíþjóð,
Metronomy, Thecocknbullkid og
Trentemøller.
Áhugi Q á FM Belfast kemur
ekki á óvart því starfsmaður
umboðsrisans William Morris
Endeavor njósnaði um sveitina á
tónleikum hennar á Nasa á laug-
ardagskvöld eins og komið hefur
fram í Fréttablaðinu.
Blaðamaður The Guardian gefur
Airwaves góða einkunn, rétt eins
og Q. Hann undrast að enginn sé
lengur reiður út af kreppunni.
Elíza Geirsdóttir Newman og Lóa
Hjálmtýsdóttir úr FM Belfast og
eru báðar teknar tali. Elíza segir
að íslenskur almenningur sé orð-
inn dauðþreyttur á að leita að
sökudólgum vegna kreppunnar á
meðan Lóa segir að erfitt sé að ná
langt erlendis án utanaðkomandi
styrkja. „Þrátt fyrir að tónlistar-
menn séu enn þá blankir er enn
von fyrir hendi,“ skrifar blaða-
maðurinn. „Sú staðreynd að jafn-
margir flytjendur voru á Airwaves
núna og undanfarin ár sannar
þetta. Mikill tónlistaráhugi Íslend-
inga sýnir að landið getur rifið sig
upp úr aðgerðaleysi kapítalism-
ans.“ Á heimasíðu MTV er skrif-
að um tónleika Hafdísar Huldar og
<3 Svanhvítar á föstudagskvöld-
inu. Þar kemur fram að <3 Svan-
hvít eigi framtíðina fyrir sér, sem
er nokkuð kaldhæðnislegt í ljósi
þess að þetta voru síðustu tónleik-
ar hljómsveitarinnar. - fb
Hrífast af <3 Svan-
hvíti og FM Belfast
FM BELFAST Hljómsveitin FM Belfast fær
góða dóma í breska tímaritinu Q.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Göldrótt
bókasafn
Dularfull mannshvörf, eldforn norn
og óvenjuleg geimferð – allt þetta
og margt fleira ber á góma í þessari
stórskemmtilegu furðusögu eftir
Þórarin Leifsson sem höfðar til
bæði barna og fullorðinna.
„Afar óvenjuleg barnabók, hugmyndarík
og stórskemm leg.“
Kolbrún Bergþórsdó r / Ísafold
(um Leyndarmálið hans pabba)