Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 52
40 22. október 2009 FIMMTUDAGUR bio@frettabla- Woody Harrelson fer með annað aðalhlutverkanna í grínhasarnum Zombieland sem verður frumsýndur á morgun. Zombieland er einn óvæntasti smellur ársins. Myndin fór beint á toppinn í Bandaríkjunum og hefur fengið góða dóma hjá gagnrýn- endum, enda uppfull af fyrirtaks ærslagangi. Uppvakningamyndir virðast njóta sívaxandi vinsælda og ekki skemmir fyrir ef hægt er að hlæja aðeins í leiðinni, rétt eins og gekk svo vel upp í hinni bresku Shaun of the Dead. Zombieland er fyrsta myndin í langan tíma þar sem hinn 48 ára Harrelson fer með aðalhlutverk- ið. Ferill hans fór gríðarlega vel af stað með þáttunum Cheers, eða Staupasteini, þar sem hann lék hinn vitgranna barþjón Woody Boyd. Fyrsta stóra hlutverkið á hvíta tjaldinu var í körfuboltamyndinni White Men Can´t Jump árið 1992. Árið eftir lék hann í Indecent Proposal á móti Demi Moore og smám saman var ljóst að stjarna var að fæðast. Staðfesting á því fékkst með góðri frammistöðu í hinni umdeildu Natural Born Killers í leikstjórn Olivers Stone. Þar lék Harrelson raðmorðingj- ann Mickey Knox sem lét sig ekki muna um að myrða alla sem á vegi hans urðu, í samfloti við kærustu sína Mallory. Tvö fín hlutverk fylgdu í kjöl- farið, fyrst í Farrelly-myndinni Kingpin og síðan í The People vs. Larry Flynt eftir Milos Forman, sem fjallaði um eiganda Hustler- klámtímaritsins. Harrelson fékk Óskarstilnefningu fyrir leik sinn en varð að lúta í lægra haldi fyrir Geoffrey Rush í Shine. Skömmu síðar lék Harrelson í ágætri mynd Michaels Winterbottom, Welcome to Sarajevo, en eftir það tók að halla undan fæti. Aukahlutverkin urðu sífellt fleiri og svo virtist sem frægðarsól hans væri farin að síga. Reyndar hefur Harrelson verið eft- irminnilegur í sínum auka rullum, sérstaklega í Semi-Pro og Óskars- verðlaunamyndinni No Country for Old Men. Núna virðast þó bjart- ari tímar fram undan, því næsta mynd hans á eftir Zombieland er hamfaramynd Rolands Emmerich, 2012, sem á væntanlega eftir að njóta hylli. Skipst hafa á skin og skúrir í einkalífi Harrelsons. Í fyrra kvæntist hann kærustu sinni til tíu ára, Laura Louie, en saman eiga þau þrjár dætur. Faðir hans lést aftur á móti í fangelsi árið áður. Hann var dæmdur í tvöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt alríkisdómara á sjöunda áratugn- um. Harrelson reyndi að fá dóminn ógildan en varð ekki að ósk sinni. Woody á beinu brautinni WOODY HARRELSON Harrelson fer með annað aðalhlutverkanna í grínhasarnum Zombieland. NORDICPHOTOS/GETTY > BELLUCCI BÆTIST VIÐ Monica Bellucci, Vanessa Redgrave og David Strathairn hafa bæst við leikaralið pólitíska dramans The Whistleblower. Rachel Weisz hafði áður tekið að sér aðalhlutverk myndarinnar, sem fjallar um lögreglukonu sem reynir að afhjúpa mikið hneykslismál. Leikstjórinn Ridley Scott er í viðræðum við Angelinu Jolie um að taka að sér hlutverk í mynd- inni Gucci. Hún myndi leika Patr- iziu Reggiano, sem var dæmd í 29 ára fangelsi fyrir að ráða leigu- morðingja til að myrða eigin- mann sinn, tískukónginn Maur- izio Gucci. Morðið átti sér stað fyrir utan heimili hans í Mílanó árið 1995. Í myndinni verður fjallað um Gucci-fjölskylduna á áttunda og níunda áratugnum þegar hún seldi hvað mest af vörum sínum. Jolie mun einnig leika dr. Kay Scarpetta í mynd sem er byggð á skáldsögum Patriciu Cornwell. Önnur mynd, tryllirinn The Tourist, er sömuleiðis á verk- efnalistanum. Angelina Jolie leikur þekkt glæpakvendi ANGELINA JOLIE Angelina mun hugsan- lega leika glæpakvendi í myndinni Gucci. Gamanmyndin Couples Retreat og heimildarmyndin Capitalism: A Love Story verða báðar frumsýndar hérlendis á morgun. Couples Retreat fjallar um fjögur pör sem ákveða að fara saman í frí til eyjarinnar Bora Bora. Þar er í boði parameðferð sem gengur út á að betrumbæta hjónabönd. Þrjú af pörunum vilja fara til eyjarinnar til að skemmta sér en eitt parið er þangað komið til að bjarga hjóna- bandi sínu. Fljótlega átta pörin sig á því að meðferð- in er engin paradís og ferðin breytist í eitthvað allt annað en áætlað var. Í helstu hlutverkum eru Vince Vaughn, Jon Favreau, Jason Batemen, Kristen Bell, Kristin Davis og Malin Akerman. Capitalism: A Love Story er nýjasta heimildar- mynd hins umdeilda Michaels Moore. Hér fjallar hann um afdrifarík áhrif stórfyrirtækja á hvers- dagslíf hins venjulega Bandaríkjamanns og annarra jarðarbúa. Hann rekur ástarsögu Bandaríkjanna og kapítalismans, heimsækir fjölskyldur í vandræðum og leitar að svörum hjá ráðamönnum í Washington DC. Pör í meðferð á Bora Bora COUPLES RETREAT Myndin fjallar um fjögur pör sem fara til eyjarinnar Bora Bora. HELSTU MYNDIR HARRELSON: Zombieland (2009) No Country for Old Men (2007) After the Sunset (2004) Ed TV (1999) The Thin Red Line (1998) Welcome to Sarajevo (1997) The People vs. Larry Flynt (1997) Kingpin (1996) Natual Born Killers (1994) The Cowboy Way (1994) White Men Can´t Jump (1992) Þegar John Travolta lenti einkaþotu sinni á Keflavíkur- flugvelli fyrr í vikunni var hann á heimleið eftir að hafa verið viðstadd- ur vísindakirkjuathöfn á Englandi ásamt eigin- konu sinni, Kelly Preston. Þau létu óvænt sjá sig á 25 ára afmæli alþjóðlegra samtaka Vísindakirkjunn- ar eftir að hafa framan af árinu syrgt son sinn Jett, sem lést í janúar aðeins sextán ára. Vinir þeirra, Tom Cruise og Katie Holmes, sem eru einnig í Vísindakirkjunni, mættu einnig í afmælið ásamt þriggja ára dóttur sinni, Suri. Travolta og Kelly héldust í hendur og höfðu sig lítið í frammi á meðan Cruise var afar líflegur. Þegar kór steig á svið og flutti gospel- lög lifði hann sig mjög inn í tónlistina og nokkru síðar hélt hann ræðu fyrir gestina, sem voru fjögur þúsund tals- ins. Hvort Cruise-fjölskyld- an hafi fengið far með einka- þotu Travolta eftir athöfnina og komið við á Íslandi fylgir aftur á móti ekki sögunni. Travolta kom til Íslands úr afmæli JOHN TRAVOLTA Hollywood- leikarinn lenti einkaþotu sinni á Keflavíkurflugvelli í vikunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.