Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 55

Fréttablaðið - 22.10.2009, Side 55
FIMMTUDAGUR 22. október 2009 43 Idol-dómarinn Simon Cowell er í miklu uppnámi eftir óvæntan dauða Stephens Gately, fyrrum meðlims breska strákabandsins Boyzone. Gately lést á Mallorca í síðustu viku, aðeins 33 ára, og var jarðsettur á laugardaginn. „Ég var í sjokki út af Stephen. Hann var heillandi og kurteis ungur maður sem lét frægðina ekki stíga sér til höfuðs,“ sagði Cowell. Áfallið fékk hann til að hugsa um lífið og tilveruna. „Maður á ekki að taka lífinu of alvarlega. Þú veist aldrei hvað getur gerst.“ Í uppnámi vegna Gately SIMON COWELL Cowell er í miklu upp- námi eftir dauða Stephens Gately úr Boyzone. Brasilíska söngkonan Jussanam Dehja heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld í til- efni af útkomu plötunnar Juss- anam Ela é carioca. Þar flytur hún bossa nova-tónlist ásamt Hauki Gröndal, Ásgeiri Ásgeirs- syni og Eric Qvick. Jussanam er fædd í Rio de Janeiro en hefur búið og starfað á Íslandi í rúmt ár, meðal annars með Tómasi R. Einarssyni bassaleikara. Hún er einnig menntuð leikkona og hefur komið fram í fjölda sjónvarps- þátta og í leikritum í föðurlandi sínu. Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20.30 og er miðaverð 2.600 krónur. Brasilískt bossa nova JUSSANAM DEHJA Brasilíska söngkonan heldur útgáfutónleika í kvöld. Söngkonan Jessica Simpson segir ekkert að því að leita að ástinni á alnetinu. Simpson, sem hætti með ruðningskappanum Tony Romo í júlí, segist sjálf ekki hafa nýtt sér stefnu- mótasíður á net- inu. „Ég hef aldrei reynt að finna ást- ina á netinu, en ef einhver er svo heppinn þá finnst mér það gott. Hver veit, kannski slæ ég til,“ sagði söng - konan. Finnur ástina á netinu ÓHRÆDD VIÐ NETSAMBAND Jessica Simp- son segist ekki sjá neitt að því að finna ástina á alnetinu. Tónleikaröðin Afleggjarar hefur göngu sína á skemmtistaðnum Sódómu í kvöld á vegum Xins 977. Fram koma hljómsveitirnar Dikta, Ourlives og Sykur. Munu þær allar spila lög af væntanlegum plöt- um sínum sem koma út í nóvem- ber undir merkjum Kölska, nýs útgáfufyrirtækis Barða Jóhanns- sonar. „Við ætlum að bjóða upp á rjómann af bestu hljómsveitunum í bland við gamlar sveitir. Við ætlum að dusta rykið af gömlum og góðum sveitum og fá þær til að spila aðeins,“ segir Máni á X-inu. Stefnt er á að halda Afleggjara á nokkurra vikna fresti. Sódóma verður opnuð klukkan 21 í kvöld og fyrsta hljómsveitin stígur á svið kl. 22. Miðaverð er 1.000 krónur. Afleggjarar hefjast DIKTA Hljómsveitin Dikta spilar á Sódómu í kvöld ásamt Ourlives og Sykri. Lynn Harless, móðir poppstjörnunnar Just- in Timberlake, sagði í viðtali við E! að hún kynni sérstaklega vel við tengdadóttur sína, leikkonuna Jessicu Biel. „Hún er frá- bær. Hún er vinur sem Justin getur spjall- að við, auk þess sem hún siðar hann til þegar þess þarf og stendur uppi í hárinu á honum,“ sagði Harless. Margir halda að samband Biel og Timber lakes standi á brauðfótum og vilja sumir meina að hann hafi átt í leynilegu sambandi við söngkonuna Rihönnu nú fyrir stuttu. Jessica Biel þykir góð tengdadóttir GÓÐ TENGDADÓTTIR Móður Timberlakes finnst Jessica frábær. Gjöfin þín Allt þetta fyrir þig ef þú verslar vörur frá Estée Lauder fyrir 5.500 kr. eða meira í Debenhams dagana 22. - 28. október Gjöfin inniheldur: DayWear Plus 7ml – dagkrem Idealist 7ml – undrakremið Eyeshadow Duo – augnskuggasett Pure Color Lipstick – litur Rose Tea, Pure White Linen 4ml - ilmvatn Fallega snyrtibuddu Verðgildi kr. 14.472.- *meðan birgðir endast Er í raun og veru hægt að gera við DNA-skemmdir? – Vísindamenn okkar telja svo vera Nýtt: Advanced Night Repair Synchronized Recovery Complex Á grundvelli tímamótarannsókna á genum þeim er stjórna lífsklukku okkar og því mikilvæga hlutverki sem þau gegna í viðgerðum á erfðaefni húðarinnar (DNA), hefur Estée Lauder nú framleitt einhverja áhrifamestu öldrunarvörn sem fram hefur komið fyrir húðina. Notaðu þessa frábæru vöru á hverjum degi til að stuðla að samfellu í viðgerð á ummerkjum fyrri skemmda sem orðið hafa vegna mikils umhverfisáreitis - útfjólublárra geisla, reyks, mengunar, jafnvel tilfinningastreitu. Líttu á þetta sem "tryggingu" fyrir húð sem virðist yngri og við betri heilsu dag eftir dag. ALVÖRU FULLYRÐINGAR STUDDAR ALVÖRU VÍSINDUM Leitaðu uppi www.esteelauder.com á Vefnum til að fræðast betur um þessa frábæru nýjung sem húð þín ætti ekki að vera án.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.