Iðnneminn


Iðnneminn - 01.10.1993, Side 51

Iðnneminn - 01.10.1993, Side 51
/ Iðnneminn ræðir við fyrrum forystufólk INSI En hvað finnst þér um lokun iðngreina? Ég er algerlega á móti allri lokun, því að það er ekkert sem ræður að lokum nema þekking. Lokun þ.e. einokun hefur ekkert annað í för með sér en það að menn leysa málið bara öðruvísi. Á þennan hátt hafa heilu atvinnugreinamar horfið. Ein atvinnugrein var næstum orðin úrelt þar til hún breytti um taktík en það var múrverkið. Það tekur alltaf einhvem tíma fyrir menn að komast framhjá hlutunum en það kemur alltaf eitthvað nýtt í staðinn fyrir það sem hverfur. Það er alveg sama hvaða grein það er ef henni verður lokað þá kemur það niður á greininni síðar. Þetta er mín skoðun og það þurfa ekki allir að vera sammála mér, en fræðslan er alltaf grundvöllurinn. Það eru til afskaplega athyglisverðir skólar úti í heimi sem ég hef séð og þar hafa miklar breytingar verið gerðar. í Þýskalandi þótti mönnum í atvinnulífinu, bæði vinnuveitendum og launþegum skólamir orðnir of akademískir og sjálfstæðir. Þeir stofnuðu nýjan háskóla, þar varð vandamálið að fá nemendur heim á kvöldin. Mig dauðlangaði bara til þess að setjast á skólabekk aftur. Þar taka þeir verkefni úr atvinnulífinu og byrja á því að kenna öllum handverk og láta þá vinna. Meðal annars settu þeir sér það takmark að auka nýtingu í bensínvélum um 20% fyrir aldamót og allskonar hugleiðingar komu útúr því, hvemig væri hægt að nýta varma. Meðal annars kom útúr því tjakkur sem ekki þurfti annað en að pissa á þá tjakkaði hann bílinn upp, það þurfti ekki meiri varma. Þegar ég kom þama var búið að reka skólann í fögur ár og fyrstu nemamir höfðu útskrifast árið á undan. Þá vom þeir búnir að taka við 160 verkefnum frá atvinnulífinu og búnir að skila hundrað þeirra fullþróuðum útí atvinnulífið aftur, þama var lifandi tenging á milli. Þetta er að koma í ýmsum skólum í kringum okkur Fyrirtæki í rekstri setja sér kannski ákveðin markmið. Þessum markmiðum með tilheyrandi vandamálum er safnað upp í sérstakan tölvubanka. Skólamir hafa síðan beinan aðgang að tölvunni og geta sótt þangað verkefni. Ef einhvem langar að fá verkefni að kljást við, þá fær hann það og alla þá aðstoð frá fyrirtækinu, sem hann þarf. Víðast í kringum okkur er búið að henda pólitíkusum og embættismönnum út úr skólakerfinu, það em bara samtök vinnuveitenda og launþega viðkomandi svæðis sem stjórna skólunum. Síðan hafa ríkið og sveitafélögin áheymarfulltrúa án atkvæðisréttar bara til þess að fylgjast með hvemig er farið með peningana. Ákvarðanavaldið er í höndum skólanefndar eða skólastjóra og skólinn er sjálfseignarstofnun. Hann verður að reka sig sjálfur, hann fær ákveðna upphæð á hvern nemenda. Markmiðssetningin í menntuninni hlýtur alltaf að koma frá atvinnulífinu. Hér á landi hefur atvinnulífið nær ekkert haft um það að segja hvað er kennt. Iðnfræðsluráð átti að sjá um faglega hlutann og svo áttu aðrir að sjá um bóklega hlutann og svo voru þeir að kljást um það hvor ætti að hafa meira vægi. Á sama tíma lengdist aðfaranám að ljósmóðurstarfinu í sjö ár. Þegar ég var í skóla tók ljósmæðranámið tvö ár. í dag þarftu fyrst að verða stúdent svo þarftu að verða hjúkrunarfræðingur. Ég er samt alls ekkert viss um að við fáum neitt betri ljósmæður í dag. Ég hef ekki séð skrifað í bókmenntunum jákvæðara um nokkra starfsgrein á íslandi. Það eru svo mörg kerfi sem ganga sjálfala í stjómkerfinu, það er kerfið sjálft sem er að búa þetta til. Þetta hefur því miður skeð alltof mikið í kringum bóknámsgreinamar. Verknámsgreinamar hafa aftur á móti verið hundsaðar, í menntaskólum er jafnvel sagt að ef þú stenst ekki próf verður þú að fara í Iðnskólann eða á sjóinn. Iðnskólinn er bara fyrir tossana. Omar Orn Sigurðsson Tálknafjörður. Guðjón segist nota tímann samhliða trillustarfinu til að kanna hvaða umhóta er þöif á í kringum smábátaútgerðina. 51
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.