Iðnneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 107
IÐNNEMASAMBAND
ÍSLANDS OG
LÁNASJÓÐSMÁL
Á síðasta starfsári lét Iðnnemasamband Islands mikið til
sín taka í baráttunni fyrir bættri stöðu félagsmanna sinna
gagnvart námslánakerfinu. Iðnnemasambandið gerði kröfu
um að fá aðild að stjóm LÍN sem fulltrúi fyrir þann
fjölmenna hóp félagsmanna sinna sem er á námslánum. Sú
barátta bar þann árangur að nú eiga iðnnema sinn eiginn
fulltrúa innan stjómar LÍN, sem þeir hafa ekki átt áður.
Síðastliðið vor var ákveðið að gera þjónustusamning við
námsmannasamtökin um að þau tækju að sér ákveðna
þjónustu við sína félagsmenn tengda námslánum. Ekki
vom allir á því að iðnnemar ættu að eiga kost á samskonar
þjónustu hjá sínum samtökum og bjóða ætti öðmm
námsmönnum uppá. Iðnnemasambandið lagði mikla
áherslu á að samtökunum yrði gert kleyft að bjóða upp á
samskonar þjónustu og önnur námsmannasamtök, sem
aðild ættu að stjóm LÍN myndu gera. Þetta tókst og nú
hefur verið gengið frá þjónustsamningi milli Iðnnema-
sambands íslands og LÍN, sem mun hafa í för með sér
stórbætta lánasjóðsþjónustu fyrir félagsmenn
Iðnnemasambands íslands. Er þetta enn ein viðbótin í
stóraukinni þjónustu sem samtökin veita nú
félagsmönnum sínum.
Á seinasta ári lagði Iðnnemasambandið einnig mikla
áherslu á að fá viðurkenningu LÍN og menntamálaráðherra
á því að grunndeildir iðnnáms ættu að vera lánshæfar, hafi
menn náð 20 ára aldri. Var í þessu sambandi rætt við
menntamálaráðherra og ráðgjafa hans. Ekki tókst þó í
þessari lotu að vinna málinu framgang. Viðtökumar voru
þó ekki með þeim hætti að útilokað sé að koma málinu í
gegn. Verður haldið áfram að vinna að framgangi málsins
og má vel líta svo á að málið hafi örlítið þokast. Varðandi
lánshæfni tölvubrautanáms í Iðnskólanum í Reykjavík á
það sama við. Þó virðist að það nám þurfi að
endurskipuleggja svo það uppfylli þær kröfur sem eðlilegt
er að gera. Sú vinna er nú í gangi á vegum
tölvubrautamema.
Einn sigurinn í viðbót vann Iðnnemasamband Islands í
lánamálum. Hann fólst í fmmkvæði sambandsins og þeim
stóra þætti sem sambandið átti í því að frumgreinadeild
Tækniskóla íslands fékkst aftur inn sem lánshæft nám.
Námið hafði verið gert ólánshæft eftir að ný lög um LÍN
vom sett vorið 1992. Iðnnemasambandið skipulagði af
þessu tilefni fund í Tækniskóla Islands í byrjun vorannar
1993 með fulltrúum Alþýðusambands íslands, Sambands
byggingarmanna, Rafiðnaðarsambands Islands, Málm- og
skipasmiðasambands íslands, Landssambands
iðnaðarmanna, Félagi íslenskra iðnrekenda.
Tæknifræðingafélagi íslands, fulltrúum úr skólanefnd og
skólastjóm og fulltrúum nemenda og kennara. Á þessum
fundi var samþykkt ályktun að tillögu
Iðnnemasambandsins þar sem menntamálaráðherra var
bent á, að með því að gera nám í frumgreinadeild
Tækniskóla íslands ólánshæft, þá væri verið að kippa
grundvelli undan möguleikum iðnaðarmanna til
markvissrar framhaldsmenntunar. Þessi tillaga var síðan
send menntamálaráðherra og stuttu seinna bámst þær
fréttir að ráðuneytið væri farið að vinna í málinu. Að
tillögu Iðnnemasambandsins beittu þau samtök sem
fulltrúa áttu á fundinum áhrifum sínum gagnvart
ráðuneytinu til að ítreka alvöm málsins. Það skilaði síðan
þeim árangri að á seinasta vori var það samþykkt að
fmmgreindeild Tækniskóla íslands skyldi verða lánshæf,
frá og með næsta skólaári.
Á nýbyrjuðu starfsári mun verða unnið áfram að því að
bæta og tryg&ja hagsmuni félagsmanna
Iðnnemasambandsins gagnavart LÍN og verður vonandi
hægt að ná góðum árangri í því starfi.
TíffladjécSn - Grímsbas
Sími39260
107
SKÁKPRENT 1.11.'93