Iðnneminn


Iðnneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 68

Iðnneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 68
ÞRAUTAGANGA FRUMVARPS Um það bil ári eftir að Emil Jónsson hafði skipað nefnd til að semja frumvarp til laga um iðnfræðslu, skilar hún af sér, með bréfi til ráðherra. Frumvarpið er tekið til 1. umræðu á alþingi tveimur dögum síðar þann 6. desember 1945. Stefán Jóhann Stefánsson, formaður Alþýðuflokksins hefur framsögu fyrir frumvarpinu og segir það byggja á þeirri gömlu meginreglu að meistarar sjái um verklega kennslu nemanna, en auk þess eigi nemendur að stunda nám í iðnskóla. Síðan segir hann: „Til að hafa eftirlit með iðnfræðslu skal skipa iðnfræðsluráð. Eftir 3. grein frumvarpsins á ráðherra að skipa 4 menn í þetta ráð, eftir tilnefningu Landssambands iðnaðarmanna 2 og Alþýðusambandsins 2, en síðan hefur nefndin óbundnar hendur um formannsval úr sínum hópi. Eg skal geta þess að mér finnst ráðið gæti verið öðru vísi skipað. Þingmenn vita að iðnnemar hafa myndað félagsskap, og fyndist mér ekki óviðeigandi, að slíkt iðnnemasamband hefði einhverja íhlutun um skipun iðnráðs.“ Stefáni Jóhanni verður nokkuð tíðrætt um deilurnar um rétt sveina og meistara til að takmarka fjölda nema í einstakar greinar. Emil Jónsson ráðherra tekur líka til máls og segir að deilumar hafi verið settar niður í þinginu í fyrra, með því að flutningsmenn (Jóhann Jósefsson o.fl.) hafi sæst á að frumvarpi þeirra um að leyfa ótakmarkaðam aðgang að iðngreinunum, verði vísað til ríkisstjómarinnar. A hennar vegum hafi málið allt verið skoðað og sé þaðan komið í formi þessa frumvarps... „Ég vænti því, að með frumvarpinu sé fengin eftir atvikum lausn, sem una megi við til frambúðar, og þætti þess vegna mjög æskilegt ef þetta mál gæti fengið afgreiðslu á þinginu nú og yrði gert að lögum á þessu þingi.“ Ekki varð ráðherranum að þessari ósk sinni. Neðri deild afgreiddi frumvarpið að sönnu frá sér til efri deildar, með 19 samhljóða atkvæðum þann 8. febrúar 1946. Þar sem fmmvarpið var fram komið fyrir tilstuðlan ráðherra í ríkisstjóm sem studdist við hreinan meirihluta í þinginu, hefði mátt ætla að það hlyti jafn skjóta og einróma afgreiðslu í efri deild. En það fór á annan veg. Iðnaðamefnd deildarinnar tók það til umfjöllunar og segist í áliti sínu hafa fjallað ítarlega um efni frumvarpsins, kynnt sér öll gögn sem þinginu hafi borist um málið, rætt við samgönguráðherra [Emil Jónsson innsk.] og við nefnd frá Landssambandi iðnaðarmanna sem kjörin var til að fylgjast með breytingatillögum sem fram kynnu að koma. Að öllu athuguðu telur nefndin nauðsynlegt að gera nokkrar breytingartillögur við fmmvarpið. Hún leggur til 10 breytingar sem flestar em léttvægar, nema ein. Alþingi skal kjósa í iðnfræðsluráð með hlutfallskosningu, en samkvæmt upphaflega fmmvarpinu áttu iðnaðarmenn að tilnefna í ráðið. Þótt nefndin hafi unnið vel að málinu þá verður ekki hið sama sagt um þingdeildina í heild. 9 apríl á að ræða frumvarpið öðm sinni ásamt breytingatillögum nefndarinnar en forseti tekur málið af dagskrá án umræðu og kemur það ekki til umfjöllunar aftur á því þingi. Ríkisstjórn á hverfanda hveli Þegar hér er komið sögu er styrjöldinni lokið og kjörtímabili þingmanna, sem kosnir höfðu verið á haustþingi 1942 er einnig að ljúka. Nýsköpunarstjómin hefur tekið rækilega til hendinni. Fyrirsjáanlegt er að þjóðlífið mun taka gríðarlegum breytingum fyrir tilstuðlan hennar. Búið er að semja um smíði margra nýtísku togara í Bretlandi, endurbætur og nýbyggingar frystihúsa standa yfir. Það er með öðmm orðum verið að leggja gmnn að nútíma atvinnulífi á íslandi, fyrir fúlgumar sem þjóðin græddi á stríðinu. Um sumarið era þingkosningar. Ríkisstjómarflokkamir halda meirihluta sínum og vinna meira að segja á, fremur en hitt. Því hefði mátt ætla að ríkisstjómin gæti setið áfram, og fylgt eftir öllu því sem hún var búin að hrinda af stað. En þrátt fyrir gott gengi í kosningunum er brestur í stjómarsamstarfinu, en ekki vegna þess að flokkar eða menn geti ekki unnið saman, að þeim miklu áætlunum sem þeir hafa sett sér. Astæðan er sú að Bandaríkjamenn, sem höfðu tekið við af Bretum á stríðsárunum, hafa áhuga á að vera með her sinn hér áfram. Haustið 1945 biðja þeir um aðstöðu fyrir herinn til 99 ára. Samstaða er um að hafna þessari beiðni, en öðm máli gegnir um samninga til styttri tíma. Og bandarísk stjómvöld eru afar ýtin. Haft er fyrir satt að forsætisráðherranum, Ólafi Thors, oddvita Sjálfstæðisflokksins sé meinilla við nuddið í þeim. Hann veit að Sósíalistaflokkurinn, þolir ekki tilhugsunina um að hér verði bandarískur her til frambúðar og allt bendir til að meirihluti þjóðarinnar sé sama sinnis. En hann á ekki auðvelda undankomuleið, svo ákveðnir sem Bandaríkjamenn em. Þann 19. september leggur hann fyrir ríkisstjómina samningsuppkast sem hann hefur gert við Bandaríkjamenn um að þeir afhendi íslendingum Keflavíkurflugvöll en fái þar aðstöðu í sex ár, eða svo. Þetta er of mikið fyrir Sósíalistaflokkinn, sem lítur svo á að samkomulagið sé bara dulbúinn samningur um viðvarandi hersetu. 5. október samþykkir Alþingi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Iðnneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.