Iðnneminn - 01.10.1993, Page 99
byggist á samþættingu margra
mismunandi námsgreina, verklegra
og bóklegra. Fyrsta önn byggist á
almennu námi og þemaáfanga sem
tekur á grunnþáttum bókagerðarinnar.
A seinni stigum námsins er meiri
áhersla lögð á faglega kennslu.
Námssamningur
Námssamningur er gerður í upphafi
náms þar sem tímasett er hvenær
neminn skuli sækja skólann og
hvenær vinnustaðinn. Samninginn
undirrita nemi, meistari og fulltrúi
skóla. Ekki er mögulegt að halda
námi áfram ef námssamningur liggur
ekki fyrir.
Leiðbeinandi
Fyrirtæki tilnefnir leiðbeinanda á
vinnustað sem fylgir nemanum eftir í
náminu. Hlutverk hans er að fylgjast
með námsframvindu nemans í
samræmi við markmiðslýsingar
námsins.
Viðurkenning fyrirtækja
Fyrirtæki þurfa að hafa hlotið
viðurkenningu til að geta tekið nema
á námssamning. Ákveðin skilyrði
sem stýrihópur setur þarf að uppfylla
til að viðurkenning fáist. Tilraunin er
skilgreind til tveggja ára og verður þá
gerð úttekt á henni og
menntamálaráðherra gerð grein fyrir
niðurstöðum. Mikilvægt er að allir
leggist á eitt og vinni saman að
uppbyggingu grunnnáms í
prentiðnaði til að byggja iðnaðinn
upp í heild sinni.
Georg Páll Skúlason.
Höfundur situr í stýrihópi fyrir
hönd Félags bókagerðarmanna.
DRAUGAGANGUR
í BÓKAGERÐ
Nú hefur verið lagt útí tilraun í
kennslu bókiðnagreina. Að tilraun
þessari standa: Menntamálaráðherra,
Iðnskólinn í Reykjavík, Félag
íslenska prentiðnaðarins, Félag
bókagerðarmanna og Prenttækni-
stofnun.
Þær breytingar sem helstar verða á
bókagerðamámi eru í grófum dráttum
þær, að nú verður eingöngu um að
ræða nám samkvæmt meistara-
samningi. Einnig að nú munu þeir
nemar sem innritast í Iðnskólann í
Reykjavík allir fara í gegnum sama
námsefnið fyrstu önnina, en áður var
fólk skráð beint á þá námsbraut sem
það ætlaði að taka þ.e. prentsmíði,
prentun eða bókband. Þetta fólk þarf
svo að verða sér úti um samning við
meistara fyrir næstu önn, svo að því
sé heimilt að halda áfram námi.
Þetta eru stæstu og augljósustu
breytingamar.
Aðstandendur tilraunarinnar virðast
fullvissir um ágæti hennar enda er
ekki annað að sjá en nokkur vinna
hafi verið lögð í útfærslu hennar.
En, er þetta allt svona
æöislegt?
Eg sé strax nokkur atriði sem verða
til bóta, t.d. skilgreiningu á faglegri
kunnáttu, nokkuð sem hefur vantað.
Einnig að nú mun námsskráin ná líka
til þess náms sem fram fer í
fyrirtækjunum. Samt em ýmsar
áleitnar spumingar sem læða inn hjá
mér efa og valda mörgum
samnemenda minna áhyggjum
Fyrst er að spyrja, til hvers að
henda því kerfi sem ekki var
fullmótað og aðeins fjögurra ára
gamalt. Kerfi sem auðveldlega hefði
mátt laga og gera markvissara,
einmitt með þeim skilgeiningar-
þáttum sem em í tilrauninni, ásamt
virkri endurmenntun kennara og
bættum tækjakosti.
Mig gmnar að einhverskonar
örvænting hafi tmflað svolítið þetta
ágæta fólk sem vann að tilrauninni og
skekkt sjónarhom þeirra. Örvænting
sem væntanlega stafar af atvinnuleysi
og þeim miklu breytingu sem em í
þessum greinum og þá sérstaklega í
prentsmíði. Ég held að það hafi verið
þess vegna, sem farið var útí að vekja
upp þann gamla draug sem hið lokaða
meistarkerfi er. Þannig hafa menn
ímyndað sér að hægt væri að loka
faginu, öllum nema þeim sem þeir
hafa velþóknun á. En hvað gerist?
Menn finna sér bara leiðir framhjá
þessu. Þetta er sérstaklega auðvelt í
prentsmíðinni. Menn bara kaupa sér
tölvu og sækja eitt námskeið hjá